Fréttablaðið - 07.06.2014, Blaðsíða 72
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 36
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Brandarar Hvernig fékkstu vinnu í sirkus?
„Ég var að æfa á sama stað
og Sirkus Íslands er að æfa, í
Ármanni, og bróðir minn var
alltaf að leika sér þarna með
þeim. Mér fannst alltaf gaman
að horfa og svo var mér boðið
að prufa hitt og þetta. Þau
tóku öll svo vel á móti manni
svo þetta varð mjög gaman og
maður gat ekki hætt að leika
með þeim.“
Varstu þá byrjaður að príla í
blöðrunni? „Nei, ég sá þetta
fyrst hjá öðrum strák í sirkus
en hann fékk svo mikið að gera
og var eitthvað upptekinn svo
það þurfti einhvern nýjan í hans
hlutverk. Ég fór að æfa mig og
endaði svo á að sýna þetta.“
Er ekki svakalega erfitt að
leika listir sínar inni í blöðru?
„Nei, nei, eða það er náttúru-
lega ekkert erfitt ef maður æfir
sig nóg. Fyrst var það dálítið
erfitt og maður var hræddur um
að sprengja blöðruna, en núna
er þetta bara gaman og ekkert
erfitt.“
Hvað er skemmtilegast við að
vinna í sirkus? „Það skemmti-
legasta er að geta skemmt
öðrum, það er svo gaman
þegar maður er að sýna og fólk
kann að meta það sem maður
er búinn að vera æfa. Svo sér
maður að þau brosa og klappa
og þá er gaman.“
Hefur atriðið einhvern tíma
mistekist? „Já, eða svona næst-
um því. Það gerist alveg stund-
um að blaðran springi en þá
blæs maður bara upp nýja og
byrjar aftur. Það versta er þegar
maður missir gripið á stútnum
og þá tæmist loftið úr henni og
maður verður eins og lítil rúsína.
Þá er bara ekkert sem maður
getur nema biðja um hjálp og
láta blása smá lofti í hana aftur
en sem betur fer gerist það ekki
oft.“
Geta allir lært að leika svona
listir? „Já, það geta allir lært
eitthvað, því að sirkus er svo
fjölbreyttur og maður getur bara
gert það sem manni hentar.“
Gerirðu fleiri kúnstir en í
blöðrunni? „Ég er líka í því að
halda á öðru fólki á öxlunum á
mér og í höndunum og fleira.
Það er kallað „acrobalance“. Svo
er ég líka í loftfimleikum og er
þá að sveifla mér í böndum.
Stundum er ég líka í svona rólu
sem maður rólar sér ekki í held-
ur er hún alveg kyrr og maður
gerir alls konar stöður og hreyf-
ingar í henni með annarri mann-
eskju. Eitt enn sem mér finnst
mjög gaman er „teeterboard“,
það er eins og vegasalt og þá
stendur maður á öðrum endan-
um á meðan einhver hoppar á
hinn endann og kastar þér upp
í loftið. Þá getur maður gert alls
konar heljarstökk og snúninga.“
Hefurðu aldrei slasað þig í
sirkusnum? „Nei, aldrei neitt
alvarlega. Það er alltaf hugsað
mikið um að gera allt öruggt
og ef maður er ekki tilbúinn að
gera eitthvað þá æfir maður það
betur og gerir kannski seinna.“
Hvað eiga krakkar að gera ef
þá langar að vinna í sirkus?
„Það er um að gera að æfa sig
og æfa. Svo er Sirkus Íslands
líka með námskeið í sumar og
líka á haustin sem hjálpar
krökkum mjög mikið að vinna
að því að verða sirkusfólk. Það
er mjög gaman að sjá hvað þau
eru dugleg og fljót að ná hlut-
unum.“
Hvað þarftu að æfa þig lengi
á dag? „Sirkusinn æfir alla virka
daga þrjá tíma á dag, svo það
eru um 15 tímar á viku sem að
við æfum, en svo er alls konar
auka sem maður gerir, því það
er bara svo gaman. Manni líður
ekki eins og maður sé á æfing-
um heldur er þetta bara eins og
maður sé að leika sér.“
Eins og lítil rúsína
Sindri Diego hefur vakið athygli í blöðrunni sinni á sýningum Sirkuss Íslands.
Honum fi nnst skemmtilegast að skemmta fólki og heyra það hlæja og klappa.
LISTIR Sindri getur leikið alls kyns listir í blöðrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
99
Haförn
Hávella
Hrafn
Kría
Lundi
Rita
Rjúpa
Sjósvala
Æðarfugl
„Hér er alvöru stafasúpa Róbert minn,“ sagði Konráð. „Þetta er
Getið þið
fundið þessi
9 fuglanöfn Ú Ú T É X R Ð I Æ S Ð
D Æ H T H K R Í A O Ö
B D G D H R Y Þ U J Í
B L U N D I A V K Æ J
H Á T I Ó M R F N Ð R
Á F F L Æ O J H N A J
V B H A F Ö R N U R Ú
E S J Ó S V A L A F P
L Á Á Á X Ð Þ Ö G U A
L Æ R T Ö O H M M G O
A R I T A A I I Æ L L
Vitringarnir þrír komu inn í fjárhús þar María og Jósef voru með nýfætt barn
í jötunni.
Einn vitringanna var frekar hár í loftinu og varð fyrir því óláni að reka hausinn
harkalega upp í loftið. Hann greip um höfuð sér af sársauka og hrópaði upp
yfir sig: „JESÚS KRISTUR!“
Þá hvíslaði Jósef að Maríu: „Skrifaðu þetta niður, þetta er miklu betra en
Hilmar …“
Hvað er grátt, með stór eyru og í stuttbuxum?
Mús í sumarfríi.
Af hverju borða ljón alltaf hráan mat?
Þau kunna ekki að elda.