Fréttablaðið - 07.06.2014, Side 78

Fréttablaðið - 07.06.2014, Side 78
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 42TÍMAMÓT Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, LÓU ÞORKELSDÓTTUR frá Álftá í Mýrasýslu Sléttuvegi 11, Reykjavík, sem lést 16. maí, fór fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. júní. Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð, vináttu og virðingu við Lóu. Sérstakar þakkir til alls þess góða starfsfólks á Hjúkrunarheimilinu Eir sem af alúð annaðist Lóu og hjúkraði síðustu æviár hennar. Heiðar Þór Hallgrímsson Halldóra Margrét Halldórsdóttir Björn Ólafur Hallgrímsson Helga Matthildur Bjarnadóttir Heiðrún Gréta Heiðarsdóttir Þorkell Heiðarsson Elín Hrund Heiðarsdóttir Ragnheiður Lóa Björnsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Hallgrímur Thorberg Björnsson og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, amma, dóttir, systir og mágkona, ELÍSABET MARKÚSDÓTTIR Sævangi 4, lést föstudaginn 30. maí á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 13. júní kl. 15.00. Viktoría Guðmundsdóttir Fannar Freyr Guðmundsson Markús Sigurgeir Kristjánsson Bára Magnúsdóttir Sigurlaug Markúsdóttir Hilmar Frímannsson Sigurður Gunnar Markússon Valborg Elísabet Jóhannesdóttir Reynir Smári Markússon Bergþóra Pálína Björnsdóttir Kristín Bára Gautsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DÓRA GUÐFINNA JOHNSEN STELLA andaðist þann 6. júní sl. Útför fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 11. júní kl. 11.00. Kærar þakkir til starfsfólks á Eir og deild B2 á Landspítalanum í Fossvogi fyrir umönnun og vinarhug. Ástríður Johnsen Gunnar V. Johnsen Bergþóra Sigmundsdóttir Guðni Ingi Johnsen Helga Sæmundsdóttir Inga Dóra Sigvaldadóttir barnabörn og barnabarnabörn. „Frúin klippir og þegar ég er laus þá sópa ég og helli upp á kaffi,“ segir Hörður Jóhannsson, annar eigandi rakarastof- unnar Hjá Sigga hárskera en hana á Hörður ásamt eiginkonu sinni, Þorbjörgu Bergþórsdóttur hársnyrti. Þau keyptu fyrir skömmu rakarastofu af Sigurði Sigurðs- syni hárskera en stofan fagnar í dag fimmtíu ára afmæli. Sig- urður opnaði stofuna árið 1964 og rak stofuna í 49 ár, en þegar hjónin keyptu stofuna var planið að breyta henni aðeins. „Við ætluðum að breyta henni meira en við gerðum, þegar við keyptum stofuna var stutt í jólatörnina og ætluðum við því að bíða aðeins. Þegar við nefndum mögulegar breytingar við viðskiptavinina var fólk ekki að taka vel í það,“ útskýrir Hörð- ur. Hann segir fólk greinilega kunna vel við útlit stofunnar, enda sé hún rótgróin og gamaldags. „Ég held að fólki finnist það notaleg tilfinning að koma hingað inn. Flestir sem koma til okkar tala um að það sé algjör nostalgía.“ Einu breytingarnar sem hjónin gerðu voru að mála stofuna, kaupa hárþvottastól og nýja kaffivél. Þeir fastakúnnar sem Sigurður hafði hafa haldið áfram að koma þrátt fyrir eigendaskiptin. „Fastakúnnarnir hafa haldið sér, það er kannski að einum eða tveimur hefur ekki litist á blikuna og fóru annað en annars eru allir þessi gömlu áfram. Ég held þú finnir hvergi jafn fjölbreytta flóru kúnna og hér,“ bætir Hörður við léttur í lundu. Þegar Sigurður rak stofuna var hún einungis rakarastofa og því nær eingöngu karlmenn sem sóttu þjónustu þangað. „Það hafði ekki mikið verið um dömur hérna áður fyrr en í dag koma hingað jafn margar konur og karlar og dömurnar taka vel í þetta.“ Eins og fyrr segir eru innanstokksmunir stofunnar flestir upprunalegir og má þar finna ýmislegt skemmtilegt. „Ég held við séum með eitt elsta litasjónvarp landsins, Siggi var mikið fyrir handbolta og því sjónvarpið mikið notað til handboltaá- horfs.“ Hálfrar aldar afmælisveisla fer fram í dag en stofan er staðsett að Laugarnesvegi 74a. „Það verður heljarinnar gleði hjá okkur í dag, við bjóðum kúnnum upp á fimmtíu prósenta afslátt af klippingum og svo ætlum við einnig að bjóða upp á ýmsar veigar.“ Veislan verður frá klukkan 10 til 15.00. gunnarleo@frettabladid.is Hárskurður í hálfa öld Rakarastofan hjá Sigga hárskera fagnar fi mmtíu ára afmæli í dag. Mikill fögnuður fer fram í tilefni þess en stofan er nánast óbreytt frá því árið 1964. Herjólfur hefur verið heiti á þremur ferjum sem gengið hafa á milli Heimaeyjar í Vest- mannaeyjum og Þorlákshafnar, og seinna meir Landeyjahafnar. Núverandi Herjólfur, sá þriðji í röðinni, gengur á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Hann var tekinn í notkun þann 7. júní árið 1992, og var þar um að ræða margfalt stærra og hraðskreiðara skip en það sem á undan gekk. Hann tekur um 60 fólksbíla og allt að 388 farþega. Herjólfur er gerður út af Eimskipum, elsta og stærsta skipafélagi landsins. Herjólfur hefur þó átt í vandræðum með innsiglingu í Landeyjahöfn og því eru ein- hverjar líkur á því að nýr Herjólfur, sem ristir grynnra, komi til með að leysa þann gamla af hólmi. Flestir Íslendingar eiga góðar minn- ingar úr þessu skemmtilega skipi. ÞETTA GERÐIST 7. JÚNÍ ÁRIÐ 1992 Hinn nýi Herjólfur kemur til bjargar NOSTALGÍA Innanstokksmunir stofunnar eru flestir upprunalegir og líta ansi vel út. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EIGENDURNIR Hörður Jóhannsson og Þorbjörg Bergþórsdóttir eiga rakarastofuna Hjá Sigga hárskera. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.