Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 91

Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 91
LAUGARDAGUR 7. júní 2014 | LÍFIÐ | 55 KYNLÍF TAKTU ÞÁTT! Sendu Siggu Dögg póst og segðu henni frá vandamáli úr bólinu. Lausnin gæti birst í Fréttablaðinu. kynlif@frettabladid.is Tvennt áhugavert gerðist í liðinni viku. Ég sótti málþingið Út fyrir boxið – valdeflandi starf með börn- um og unglingum, þar sem ég hlýddi á virkilega áhugaverð erindi. Dana Edell kynnti fyrir okkur valdeflandi verkefni sem stelpur á aldrinum 13 til 22 ára víða um heima vinna að og kallast „Spark movement“. Verk- efnið gengur út á að sporna gegn staðalímyndum kynja og „klám- væðingu“ með því að benda á kyn- legar athugasemdir í samfélaginu, sérstaklega fjölmiðlum. Dæmi um þetta eru leikföng og fatnaður fyrir börn með kynferðislega skírskotun, myndvinnsla ljósmynda af ungling- um í tískutímaritum og auglýsing- ar sem hlutgerva konur. Dana bætti samt við að einnig eru stelpur hvatt- ar til að þekkja eigin líkama, unað og að sjá kynlíf í jákvæðu ljósi út frá eigin forsendum. Heimasíða verk- efnisins inniheldur margs konar fróðleik og hvet ég alla þá sem hafa einhvers konar tengingu við inter- net að kynna sér þetta verkefni. Hitt sem gerðist var að ég fékk ótrúlega áhugaverða spurningu frá stúlku í níunda bekk í kyn- fræðslutíma. Eftir miklar og lífleg- ar umræður um allt milli himins og jarðar er tengist kynlífi þá rétti ein ung dama upp höndina og spurði: „En hvað ef hún fær það á undan honum, hvað gerist þá?“ Ég verð að játa að ég varð smá kjaftstopp. Þessi spurning sýnir svo greinilega hversu langt í land við eigum í sam- ræðum um kynlíf og unað kvenna. Áður en ég náði að svara bætti bekkjarsystir hennar hneyksluð við: „Ég meina, það er alltaf bara þannig að hann fær það og þá er allt búið og maður er bara, frábært.“ Ég staldr- aði við og útskýrði hvernig fullnæg- ingar virka og almennt unaður og að það sé allt í lagi að fá nokkrar full- nægingar ef stemmingin er þannig. Þannig getur þú fengið fullnægingu í forleik og ef farið er í samfarir og hún þannig stemmd þá má fá aðra fullnægingu í samförum, jafnvel enn aðra að samförum loknum. Mér sýndist á svip þeirra að ég væri fullgráðug með því að stinga upp á þremur fullnægingum í einu keler- íi. Einnig er hægt að stunda kynlíf án þess að fá fullnægingu og það getur gerst fyrir drengi og stúlk- ur. Spurningin sagði mér einnig að þekking á unaði og píkunni er mjög takmörkuð. Ég benti þeim á að til að fá fullnægingu í samförum er mik- ilvægt að nudda snípinn og muna þá sérstaklega eftir að bleyta hann með eigin safa eða sleipiefni áður en hann er nuddaður. „Eigum við að gera það sjálfar?“ Það er engin regla um hver „eigi“ að gera hvað, kyn- líf og samfarir er samstarfsverk- efni, svo komið ykkur bara saman um hver nuddar hvað á hverjum. En þetta er einmitt staðreynd málsins. Unaður er órjúfanlegur hluti kynlífs og við verðum að impra á því, við unga sem aldna. Hugsum út fyrir boxið, förum að tala öðruvísi saman. Hvað ef hún fær það á undan honum? TÍST VIKUNNAR Þórir Sæ- mundsson @ThorirSaem 5. júní Þjóðhátíðarlag Jóns Jónssonar er nákvæmlega eins og öll önnur lög sem hann hefur samið. Nákvæmlega eins. Atli Fannar @atlifannar 5. júní Norðmaður vann fyrsta vinning í Vík- ingalottó inu í kvöld — 85 millj- ón ir króna. Megi hann troða peningunum upp í olíusjóðinn á sér. Bragi Valdimar @BragiValdimar 4. júní Ég hef svipaðar áhyggjur af dúxabörnunum með háu einkunnirnar og týndu adidasbörnunum. Steindi JR @SteindiJR 4. júní Búinn að lesa at- hugasemdirnar á DV og nýjustu þræðina á Bland. Ætla núna að taka 5 hvers- dagsmyndir og reyna að vinna brauðrist í like leik. Jón Jónsson @jonjonssonmusic 4. júní Djöfull er örugglega sweet að vera atvinnumaður og mæta bara elgtanaður heim í landsleik #mennskan #tan Sóli Hólm @SoliHolm 4. júní Spilaði Anthony Karl Gregory lands- leik? Ef ekki: Til hamingju, @ VictorPalsson. #MakingHistory #Glæsilegur Katrín Atladóttir @katrinat 5. júní Ég er á því að @ logibergmann hafi komist í tölv- una hennar @svanhildurholm og póstað flugumyndinni :) Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is E N N E M M / S ÍA / N M 6 0 2 9 4 www.samskip.is > Vel sjóaðir reynsluboltar Saman náum við árangri Þeir ná lengst sem sækja fram með samstilltum hætti og fylgja sendingum eftir alla leið. Samskip eru stoltur bakhjarl íslenska handboltalandsliðsins. Áfram Ísland!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.