Fréttablaðið - 07.06.2014, Síða 96
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 60
FÓTBOLTI „Þessi leikur gegn Dönum er úrslitaleikur
fyrir okkur til að komast í umspil um laust sæti á HM.
Því miður er það ekki alfarið í okkar höndum. Riðl-
arnir eru að spilast þannig að okkar riðill er í hvað
verstri stöðu að fá umspilssæti,“ segir Freyr Alex-
andersson, þjálfari kvennalandsliðsins, en hann til-
kynnti í gær leikmannahóp sinn fyrir næstu tvo leiki
í undankeppni HM.
Úrslitaleikurinn sem Freyr talar um fer fram í
Vejle í Danmörku þann 15. júní. Malta kemur svo í
heimsókn fjórum dögum síðar. Ísland vann fyrri leik-
inn gegn Möltu 0-8 og sá leikur ætti því að vera forms-
atriði.
Tvær breytingar eru á leikmannahópnum frá síð-
asta leik. Katrín Ómarsdóttir og Ásgerður Stefanía
Baldursdóttir eru ekki með að þessu sinni. Í staðinn
eru komnar inn þær Rakel Hönnudóttir og Guðný
Björk Óðinsdóttir. Guðný er að koma til baka eftir
enn ein krossbandaslitin.
„Við erum búin að búa til þá pressu að við verðum
að vinna Danina. Það er ekkert annað í boði ef við
ætlum að eiga von um að komast í þetta umspil,“ segir
Freyr og bætir við að það skipti líka máli að halda
áfram að þróa leik liðsins.
„Fyrir fram hefði ég verið sáttur við stig í Dan-
mörku en okkur langar í umspilið og að fara Krýsu-
víkurleiðina á HM. Er það raunhæft? Það er ég ekki
viss um ef ég á að vera hreinskilinn. Ég er ekki viss
um að liðið sé orðið nægilega gott. Við erum samt búin
að vinna Svíþjóð og Noreg á þessu ári og það væri
gaman að ná líka að leggja Dani.“ - hbg
Algjör úrslitaleikur í Danmörku
Kvennalandsliðið á fram undan leiki gegn Dönum og Möltu í undankeppni HM.
PRESSA Freyr og stelpurnar okkar verða að sækja þrjú stig til
Vejle. MYND/KSÍ
HANDBOLTI „Það er fínt stand á
öllum og allir tilbúnir í slaginn,“ segir
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari
frá Sarajevo en hans menn voru þá
nýbúnir að klára æfingu.
Ísland mætir Bosníu í kvöld
en þetta er fyrri leikur liðanna
í umspili um laust sæti á HM
í Katar.
„Stefnan er að ná sem hag-
stæðustum úrslitum. Við vitum vel
að við getum unnið þennan leik og
við vitum líka að við getum tapað
með átta marka mun,“ segir Aron.
Bosnía hefur aldrei komist á
stórmót en Aron segir að liðið sé
engu að síður gott– sérstaklega á
heimavelli.
„Þetta lið tapar eiginlega aldrei á
heimavelli. Auðvitað stefnum við að
sigri en þetta snýst um að komast
áfram eftir tvo leiki.“
Það er búist við um sjö þúsund
manns á leikinn og þessir áhorfendur
eiga klárlega eftir að láta vel í sér
heyra. Þjálfarinn segir að hausinn
á mönnum verði að vera í lagi.
Strákarnir geti lent í mótlæti og það
verður pressa á rúmenskum dóm-
urum leiksins.
„Erfitt ferðalag, erfiður útivöllur og
rúmenskir dómarar. Það er mikilvægt
að vera yfirvegaðir. Við verðum að
vera mjög skipulagðir og agaðir að
öllu leyti,“ segir Aron.
Leikurinn hefst klukkan 18.15 og
verður í beinni á Stöð 2 Sport og í
beinni textalýsingu á Vísi. - hbg
Þetta lið tapar eiginlega aldrei heima
EINBEITTUR Aron þarf að vera klókur í
kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Verst geymda leyndar-
málið í evrópskum handbolta var
opinberað í gær þegar Barcelona
tilkynnti á heimasíðu sinni að það
hefði gert tveggja ára samning
við landsliðsfyrirliðann Guðjón
Val Sigurðsson, leikmann Þýska-
landsmeistara Kiel. Guðjón Valur
gat því loksins tjáð sig um vista-
skiptin í gær en þá var hann að
undirbúa sig fyrir mikilvægan leik
íslenska landsliðsins gegn Bosníu í
Sarajevó í undankeppni HM 2015.
Guðjón Valur á glæsilegan
feril að baki en síðustu tvö árin
hefur hann leikið með Kiel og
orðið Þýskalandsmeistari í bæði
árin. En fyrr í vetur varð ljóst að
hann yrði ekki áfram í herbúðum
félagsins eftir að samningur hans
rennur út í sumar.
Þakkaði fyrir og sagði bless
„Ég fékk tilboð frá Kiel sem ég var
ekki nógu ánægður með, í hrein-
skilni sagt. Ég bað því umboðs-
mann minn um að kanna hvaða
möguleikar væru í stöðunni fyrir
mig,“ segir Guðjón Valur um
aðdraganda félagaskiptanna en
bætir því við að hann hafi ekki
verið sáttur við hversu lengi hann
þurfti að bíða eftir samningstil-
boði Kiel.
„Það var búið að halda manni
í óvissu í tvo, þrjá mánuði og svo
þegar tilboðið kom loksins hafði ég
aðeins þrjá daga til að gefa svar.
Þá þakkaði ég bara fyrir mig og
sagði bless,“ segir Guðjón Valur en
bætir við að hann hafi rætt málin
við stjórn Kiel og skilji við félagið
á góðum nótum.
Hann segir að nokkrir kostir
hafi staðið sér til boða þegar ljóst
varð að hann myndi fara frá Kiel.
„En um leið og ég heyrði af áhuga
Barcelona þurfti ekki meira til,“
segir Guðjón Valur og viðurkenn-
ir að það sé draumi líkast að fá að
spila með þessu fornfræga félagi.
Guðjón Valur rifjar upp að hans
fyrsta tilboð frá atvinnumanna-
félagi kom árið 2000 þegar hann
var á mála hjá KA. „Það kom frá
spænsku félagi og síðan þá hefur
það ávallt blundað í mér að fara til
Spánar. Svo hélt ég að ég myndi
þurfa að gefa þann draum upp á
bátinn miðað við þá þróun sem
hefur orðið í spænsku deildinni
síðustu ár,“ sagði hann en fjárhag-
ur margra spænskra liða hefur
verið erfiður síðustu ár. „Það kom
mér þar að auki á óvart að Barce-
lona vildi fá mann til liðs við sig
sem er á þessum aldri,“ bætir
hann við en Guðjón Valur verður
35 ára gamall í sumar.
Hann segist ekki hafa velt því
fyrir sér hvort samningurinn sé
mögulega hans síðasti á atvinnu-
mannaferlinum. „Aðrir hafa meiri
áhyggjur af aldrinum mínum en
ég. Mér líður vel, hef verið að spila
ágætlega og er í góðu formi. Ég er
ekkert að spá í því hvort eða hve-
nær ég eigi að hætta.“
eirikur@frettabladid.is
Draumur að rætast
Barcelona tilkynnti í gær að Guðjón Valur Sigurðsson hefði gert tveggja ára
samning við félagið. Landsliðsfyrirliðinn var ósáttur við tilboð Kiel og ákvað að
róa á ný mið en hann segir að það hafi lengi blundað í sér að spila á Spáni.
Á LEIÐ TIL SPÁNAR Guðjón Valur Sigurðsson mun klæðast frægum búningi Barce-
lona næstu tvö árin að minnsta kosti. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
20% AFSLÁTTUR
AF DEEP HEAT OG FREEZE
3. JÚNÍ TIL 30. JÚNÍ
Velkomin í Flensborg!
• Bóknámsbrautir til stúdentsprófs
• Frábær námsaðstaða
• Mjög góður árangur í háskólanámi
• Fjölbreytt félagslíf, leikhús, íþrótta- og tónlistarstarf og margt fleira
• Íþróttaafrekssvið í samstarfi við fjölda íþróttafélaga
• Öflugur skólakór
Innritun nýnema í Flensborg stendur til 10. júní
Sérkennsluráðgjafi við Flensborg
Skólinn auglýsir eftir sérkennsluráðgjafa í 50% starf.
Ráðgjafinn vinnur með greiningar vegna námserfiðleika
nemenda og veitir nemendum, kennurum og
foreldrum ráðgjöf.
Umsóknarfrestur til og með 14. júní.
Sjá nánar á Starfatorgi eða hjá skólameistara,
Magnúsi Þorkelssyni, maggi@flensborg.is
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son leikur í dag sinn 300. landsleik
á ferlinum samkvæmt úttekt Ósk-
ars Ófeigs Jónssonar, blaðamanns
Fréttablaðsins. Ísland mætir þá
Bosníu í fyrri umspilsleik liðanna
um laust sæti á HM 2015 í Katar.
Samkvæmt gögnum HSÍ mun
Guðjón Valur þó leika landsleik
númer 299 í dag og því komu
fregnirnar flatt upp á hann þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í gær.
„En ef hann kemur fyrr þá er
það bara ágætt,“ sagði Guðjón
Valur og vissi vart hvernig hann
ætti að taka tíðindunum. „En leik-
urinn sjálfur skiptir okkur öllu
máli því við ætlum okkur á HM
í Katar. Þetta eru mikil tímamót
fyrir mig persónulega, enda fáir
sem hafa náð 300 landsleikjum á
ferlinum en það er í raun aukaat-
riði þegar kemur að leiknum sjálf-
um,“ segir Guðjón Valur hógvær.
„Ég hef aldrei fylgst mikið með
tölfræðinni sjálfur á meðan ég
spila en það verður gaman að líta
til baka yfir ferilinn í tölum eftir
að honum lýkur.“
Lista yfir landsleiki Guð-
jóns Vals í heild sinni má finna á
íþróttavef Vísis. - esá
300. leikurinn í dag
Guðjón Valur Sigurðsson stendur á tímamótum.
SPORT
HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU
5 DAGAR Í FYRSTA LEIK
BRASILÍUMENN klikkuðu á því að fá vináttulandsleik
við Ísland í lokaundirbúningi sínum fyrir HM í fótbolta í
Brasílíu í sumar en þeir hafa orðið heimsmeistarar í tvö
síðustu skipti sem þeir hafa spilað við Ísland rétt fyrir
keppnina. Brasilía vann 3-0 sigur á Íslandi í Florianópolis
4. maí 1994 þar sem Ronaldo skoraði fyrsta markið, hans
fyrsta mark af 62 fyrir Brasilíu, en Ronaldo fiskaði líka vítið
sem gaf annað markið. Brasilía vann síðan HM í Bandaríkj-
unum tveimur mánuðum síðar. Brasilíumenn unnu síðan 6-1
sigur á Íslandi í Cuiabá 7. mars 2002 þar sem Kaká skoraði
sitt fyrsta landsliðsmark. Brasilía varð síðan heimsmeistari í
fimmta sinn eftir 2-0 sigur á Þjóðverjum í úrslitaleik HM í
Japan og Suður-Kóreu fjórum mánuðum síðar.