Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 102

Fréttablaðið - 07.06.2014, Page 102
7. júní 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 66 * Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín „Ég drap næstum því Tom Cruise.“ LEIKKONAN EMILY BLUNT UM TÖKUR Á KVIKMYNDINNI EDGE OF TOMORROW. „Þetta er skemmtileg og ánægjuleg viðurkenning,“ segir eigandi tískuhússins ELLU, Elínrós Líndal, en ELLA hlaut tilnefningu til búlgörsku tísku- verðlaunanna í gær. Verðlaunin eru veitt þeim sem lagt hafa sitt að mörkum í þróun og uppbygg- ingu tískuiðnaðarins en þau hafa verið veitt frá árinu 2002. Alls hlutu tíu tilnefningu til verðlaunanna í ár en verðlaunin eru 100.000 evrur. Elínrós segir frábært að hljóta tilnefningu til verðlauna á alþjóðavettvangi. Fyrirtækið stefni þó ekki í útrás alveg strax. „Markmið okkar er að hafa áhrif á tískubransann og við erum með ákveðin plön í gangi. Við viljum verða tíu ára gamalt fyrirtæki á heimamark- aði og ná þriggja prósenta veltu hér heima áður en við förum í einhverja útrás,“ segir Elínrós, spurð út í þá þýðingu sem til- nefning sem þessi hefur fyrir hana og tískuhúsið. ELLA gerir út á klassískan fatnað úr gæðaefnum, fatnað sem endist ævilangt, en fyrir- tækið var eitt þeirra sem talið var að gæti stuðlað að auknum hagvexti á Íslandi í McKinsey- skýrslunni frá árinu 2012. Elínrós er ekki í neinum vafa um að fyrirtækið verði eitt það áhrifamesta í sínum geira í framtíðinni. „Ég er ekki með eina einustu vafafrumu í líkam- anum. Eins og staðan er núna eru fáir að fjárfesta í nýsköp- unarfyrirtækjum en þegar íslenskt hagkerfi lagast og við fáum fjármagn til þess að fara út verður ELLA eitt af áhrifa- mestu fyrirtækjunum. Ef maður er með gott fólk með sér sem hefur flotta hugsjón þá gengur dæmið upp.“ kristjana@frettabladid.is Tilnefnd til búlgörsku tískuverðlaunanna Elínrós Líndal, eigandi tískuhússins ELLU, hlaut tilnefningu til búlgörsku tísku- verðlaunanna í gær. Verðlaunin eru veitt þeim sem lagt hafa sitt að mörkum í þróun og uppbyggingu tískuiðnaðarins. Ánægjuleg viðurkenning, segir Elínrós. MEÐ SKÝRA STEFNU Elínrós er ekki í neinum vafa um að ELLA verði eitt áhrifa- mesta fyrirtækið í sínum geira í framtíðinni. MYND/ALDÍS PÁLSDÓTTIR „Þetta var alveg ótrúlega skemmti- legt og ég myndi segja að ponsjóið væri alveg fullkomið fyrir íslenska veðráttu,“ segir Erna Bergmann fatahönnuður, en hún hannaði á dögunum skemmtileg ponsjó fyrir Pæjumótið í Vestmannaeyjum sem haldið verður dagana 12.-14. júní. Hátt í 2.000 manns leggja leið sína til Vestmannaeyja á Pæjumótið ár hvert. Styrktaraðili mótsins, Tryggingamiðstöðin, hefur haft þann sið að gefa stúlkunum gjöf fyrir hvert mót og segir Arn- heiður Leifsdóttir, verkefnastjóri hjá TM, að nú hafi verið ákveðið að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt. „Okkur langaði að gera eitthvað óhefðbundið og fengum hana Ernu með okkur í lið. Hún hannaði þetta flotta ponsjó og þegar við fengum það í hendurnar var það í raun mun flottara en við bjuggumst við.“ Það er ljóst að hinum ungu og efnilegu knattspyrnustúlkum verð- ur ekki kalt í Eyjum en ponsjóið á eflaust eftir að nýtast vel á milli knattspyrnuleikjanna. - ka Hannaði ponsjó fyrir Pæjumótið Erna Bergmann hannaði ponsjó fyrir efnilegar knattspyrnustúlkur. ALGJÖR PÆJA Ponsjóin eiga eflaust eftir að slá í gegn á Pæjumótinu. FULLKOMIÐ FYRIR ÍSLENSKA VEÐRIÐ Erna Bergmann segir ponsjóin eiga eftir að henta íslensku veðráttunni vel. FRÆGAR MEÐ FATAMARKAÐ Leikkonurnar Elma Lísa Gunnars- dóttir, Tinna Hrafnsdóttir og María Heba standa fyrir fatamarkaði í dag í FÍL húsinu, Lindargötu 6. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikkonurnar brydda upp á þessu og er ávallt mikið af góssi til sölu á góðu verði. Þá eru þær einnig með barnaföt til sölu og María Heba lofar því að eitthvað verði um óléttufatnað og brjóstagjafarföt. - lkg GUSGUS Á TOPPNUM Hljómsveitin GusGus trónir á toppi þýska danstónlistarlistans, German Club Charts, með lagið sitt Crossfade. Um er að ræða nýjasta lagið sem sveitin hefur sent frá sér. Fyrir skömmu var það tilkynnt að sveitin muni hita upp fyrir Justin Timberlake í Kórnum þann 24. ágúst. GusGus sendir frá sér nýja plötu þann 11. júní næstkomandi og ber hún nafnið Mexico. Þá er fyrirhugað tónleikaferða- lag í haust. - glp SAMARIS Á FARALDSFÆTI Tríóið Samaris, sem vann Músíktil- raunir árið 2011, verður á faraldsfæti í sumar við kynningu á nýjustu plötu sinni, Silkidrangar. Í júlí fer hljómsveitin í tónleikaferð um Írland og spilar jafn- framt á hinum ýmsu tónlistarhátíðum, þar á meðal Hróars- kelduhátíðinni. Eftir tónleikahald í ágúst verður ferðinni svo heitið til Þýskalands í september. Síðasta fimmtudagskvöld var Samaris gestur útvarpsþáttarins Late Junction á BBC 3 þar sem hún spilaði nokkur vel valin lög. - fb
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.