Fréttablaðið - 16.06.2014, Síða 19
SKRIFSTOFAN
MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 2014 Kynningarblað Fundir, ráðstefnur, stólar, borð, möppur, prentarar.
Fyrirtækjasvið A4 sérhæfir sig í lausnum fyrir fundar-herbergi og ráðstefnusali.
„Við bjóðum allt sem þarf fyrir
fundinn eða ráðstefnuna, allt
frá f letti- og tússtöflum til gagn-
virkra lausna fyrir snertiskjái og
spjaldtölvur,“ segir Jóhann Más-
son, framkvæmdastjóri hjá A4.
„Þessa dagana erum við að
kynna fyrir fyrirtækjum tíma-
mótalausn sem byggir á nýjum
Clervertouch-snertiskjáum frá
Sahara. Með skjánum f ylgir
hugbúnaðarlausn og app fyrir
snjalltæki sem gerir raunveru-
lega gagnvirkni að veruleika.
Skjáirnir sem eru með gljálaust
gler og háskerpu-upplausn eru
með nýrri snertitækni sem gerir
mögulegt fyrir marga notendur
að vinna á skjánum í einu. Eins er
hægt með appi fyrir Android og
Apple að virkja alla aðila fundar
á einfaldan hátt.“
Cleverlynx-hugbúnaðurinn
sem fylgir Clevertouch-skján-
um gerir notendum kleift að
sækja skjöl eins og til dæmis
Excel, Word eða Powerpoint og
vinna með þau á snertiskjánum.
„Með hugbúnaðinum er auðvelt
að bæta inn skýringum á skjöl-
in með penna, pensli, áherslu-
penna og svæðafyllingu. Hægt
er að vista skjölin með breyting-
unum til notkunar síðar.“
Jóhann nefnir líka að gagn-
virkur hluti lausnarinnar bygg-
ir á Displaynote-hugbúnaðin-
um sem gerir notendum kleift að
stýra snertiskjá með spjaldtölvu
eða snjallsíma. „Hægt er að fá
leyfi fyrir ótakmörkuðum fjölda
notenda snjalltækja sem tengjast
yfir þráðlaust net eða skýið. Not-
endur geta sótt efni sem verið er
að kynna, bætt inn skýringum og
athugasemdum með möguleika á
að deila með öðrum notendum.“
Lausnirnar sem A4 býður fyrir
fundi og ráðstefnur eru tíma-
mótalausnir sem virkja alla aðila
á fundum og kynningum.
Snertu framtíðina með nýrri tækni
A4 er með allan búnað fyrir fundarherbergi og ráðstefnusali. Fyrirtækið kynnir nú tímamótalausn sem byggir á nýjum snertiskjám
sem gerir mörgum notendum kleift að vinna á skjánum í einu. Lausnirnar sem A4 býður virkja alla aðila á fundum og kynningum
þar sem gagnvirkni verður að veruleika.
Clevertouch-skjárinn gerir notendum kleift að sækja skjöl og bæta inn á þau skýringum.
Jóhann Másson og félagar hjá A4 bjóða allt sem þarf fyrir fundinn eða ráðstefnuna. MYND/GVA