Fréttablaðið - 04.07.2014, Síða 6

Fréttablaðið - 04.07.2014, Síða 6
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hversu mörg vændiskaupamál voru skráð hjá ríkislögreglustjóra í fyrra? 2. Hvað á Ólafur Sigurðsson mein- dýraeyðir margar grammófónplötur? 3. Við hvaða lið hefur knattspyrnu- maðurinn Alfreð Finnbogason samið? SVÖR: 1. 249. 2. Yfi r þrjátíu þúsund. 3. Real Sociedad. VEISTU SVARIÐ? DÝRAVELVERÐ Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráð- herra fullyrti í vetur að niðurstöð- ur rannsókna á dauðatíma hvala yrðu birtar hverjum þeim sem þær vildi sjá, enda verið að safna upplýsingum í opinberum tilgangi. Hann segist enn þeirrar skoðunar að birta eigi niðurstöðurnar. Hvort tveggja gengur þvert á svar hans við fyrirspurn á Alþingi sem birt var um mánaðamótin. „Þær upplýsingar sem koma munu út úr þessum leiðangri verða án efa aðgengilegar, til þess er þetta gert. Verið er að safna upp- lýsingunum í opinberum tilgangi og því verða þær gerðar aðgengi- legar og menn upplýstir um málið sem það vilja, þannig að ég tel að það sé nú bara nokkuð augljóst,“ sagði Sigurður Ingi í þingræðu 7. apríl síðastliðinn. Edward H. Huijbens, þingmað- ur Vinstri grænna, spurði þá ráð- herra í óundirbúnum fyrirspurn- artíma: „Verða þessar upplýsingar aðilanna birtar opinberlega svo almenningur geti kynnt sér þær og í framhaldinu lagt mat á hvort aðferðirnar séu mannúðlegar eða ekki?“ Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær verða rannsóknarniðurstöð- ur um dauðatíma hvala í veiðum við Ísland ekki birtar almenningi. Vegna fyrirspurnar Fréttablaðsins til Sigurðar Inga í gær var þeim skilaboðum frá ráðherra komið til skila að hann væri enn þeirrar skoðunar að birta ætti upplýsing- arnar „á einhverjum tímapunkti“, hins vegar hefði hann ekki vitað af aðkomu Norður-Atlantshafs - sjávarspendýraráðsins (NAMMCO), sem vinnur rann- sóknina í samstarfi við Fiskistofu. Að sögn Eyþórs Björnssonar fiskistofustjóra hafa sambæri- legar upplýsingar ekki verið gerð- ar opinberar í Noregi og „á þessum tímapunkti sjáum við ekki frekar ástæðu til að gera það hér,“ sagði Eyþór í viðtali við Fréttablaðið á miðvikudag. Engar vísindalegar upplýsingar eru til um dauðatíma hvala í hval- veiðum við Ísland – en þá er átt við hversu lengi það tekur dýrið að deyja eftir að það er skotið. Hvorki Hafrannsóknastofnun né Fiskistofa hafa hingað til safn- að slíkum gögnum. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðsson- ar, þingmanns Vinstri grænna, á Alþingi í apríl – og var ástæða fyr- irspurnar Edwards. Þá liggur fyrir að 73 prósent Íslendinga telja mikilvægt að hval- veiðar séu mannúðlegar. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoð- anakönnunar Capacent Gallup sem dýravelferðarsamtökin Internation- al Fund for Animal Welfare (IFAW) létu gera. Í könnuninni kemur jafn- framt fram að 59,3 prósent Íslend- inga telja að hvalveiðar fari mann- úðlega fram. svavar@frettabladid.is Verið er að safna upplýsing- unum í opin- berum tilgangi og því verða þær gerðar aðgengilegar og menn upplýstir um málið sem það vilja, þannig að ég tel að það sé nú bara nokkuð augljóst.“ Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra, 7. apríl 2014 Sjónmælingar í Optical Studio Tímapantanir í síma: Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811 Optical Studio í Leifsstöð, 4250500 Sagði augljóst að gögn um dauðatíma hvala yrðu birt Sjávarútvegsráðherra segist enn þeirrar skoðunar að birta eigi niðurstöður rannsóknar á dauðatíma hvala. Þvert á undirstofnun sína, og svar hans við fyrirspurn á Alþingi, sem segir að gögnin verði ekki gerð opinber. Í HVALFIRÐI Almenningur mun að óbreyttu ekki fá upplýsingar um aðferðir við hvalveiði, en það er eitt helsta deilumálið vegna veiðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LANDBÚNAÐUR Framkvæmdir hefj- ast í haust á alifuglabúi við Rauða- læk í Ölfusi. Stefnt er á að þar geti verið fjörutíu þúsund fuglar. Það eru Kristján Karl Gunnarsson og Ögmundur Jónsson sem sameina krafta sína við þessi áform. „Við hefjum framkvæmdir núna í haust og fuglarnir verða komnir inn fyrir vorið,“ segir Kristján. Í fyrsta áfanga verða tíu þúsund fuglar í stæðum og svo ráða mark- aðsaðstæður því hvenær farið verð- ur í fulla stærð. Með þessu móti eru tvímenn- ingarnir að skapa sjálfum sér störf. „Þetta er nú bara fjölskyldu- fyrirtæki. Þetta verður væntanlega til þess að við Ögmundur getum minnkað við okkur í þeim störfum sem við sinnum núna. Hann er sjálf- stætt starfandi smiður og ég vinn á sambýli á Selfossi.“ Það er nóg að gera í þessum geira á svæðinu því til stendur að reisa stærsta minkabú landsins, með tíu þúsund læðum, á Hafnarsandi við Þorlákshöfn. - jse Tvímenningar í Ölfusi skapa sér störf með miklum áformum um fuglarækt: Reisa alifuglabú við Rauðalæk KJÚKLINGAR Í BÚI Þ eir fiðruðu munu fá bróðurpartinn af tíma þeirra tví- menninga í Ölfusi. PERSÓNUVERND Persónuvernd hefur hafið frumkvæðisathugun á því hvernig stjórnmálaflokkar vinna persónuupplýsingar um stjórnmálaskoðanir einstaklinga. Þetta kemur fram í bréfi frá stofnuninni dagsettu 30. júní. Vestnord lögmenn sendu erindi til Persónuverndar í maí fyrir hönd stjórnmálaflokksins Dög- unar þar sem óskað er eftir því að stofnunin kanni hvort flokkar haldi skrár yfir stjórnmálaskoð- anir fólks aðrar en félagaskrár. - nej Persónuvernd athugar skrár: Skoða starfsemi fjórflokkanna TRÚNAÐARMÁL Fólk á samkvæmt lögum rétt á því að eiga stjórnmála- skoðanir sínar fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SAMGÖNGUR Jarðgangagröftur í Vaðlaheiðargöngum hefur verið stopp í viku vegna sprunguleka. Valgeir Bergmann Magnússon, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðar- ganga hf., segir að vinna hefjist á ný á næstu dögum þegar búið sé að gera við þann leka sem kom upp. - nej Vaðlaheiðargöng stopp í bili: Vika síðan sprengt var RÖR Starfsmenn lögðu rör í vegginn fyrir vatnið. MYND/VHG FERÐAÞJÓNUSTA Norðlenska hefur óskað eftir leyfi bæjar- yfirvalda í Norðurþingi fyrir sölu á gistingu í húsinu þar sem útgerðarfyrirtækið Vísir rak áður fiskvinnslu á Húsavík. Sigmundur Ófeigsson, fram- kvæmdastjóri kjötvinnslufyr- irtækisins, segir fyrirtækið ætla leigja leyfið til aðila sem vilji selja gistingu á efstu hæð hússins. Þar voru áður íbúðir starfsfólks fiskvinnslufyrir- tækisins. -hg Norðlenska sækir um leyfi: Selja gistingu í Vísis-húsinu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.