Fréttablaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 04.07.2014, Blaðsíða 8
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is Kia Sorento EX 2,2 Árg. 2012, ekinn 53 þús. km, dísil, 198 hö., sjálfskiptur, 4x4, eyðsla 6,7 l/100 km.* Verð: 5.690.000 kr. Kia cee‘d LX 1,4 Árg. 2013, ekinn 28 þús. km, dísil, 90 hö., beinskiptur 6 gíra, eyðsla 4,1 l/100 km.* Verð: 2.990.000 kr. Kia Sportage EX 2,0 Árg. 2013, ekinn 39 þús. km, dísil, 136 hö., sjálfskiptur, 4x4, eyðsla 6,9 l/100 km.* Verð: 5.390.000 kr. Kia cee‘d LX 1,6 Árg. 2012, ekinn 45 þús. km, dísil, 116 hö., 6 gíra, sjálfskiptur, eyðsla 4,4 l/100 km.* Verð: 2.850.000 kr. 5 ár eftir af ábyrgð 5 ár eftir af ábyrgð 6 ár eftir af ábyrgð 6 ár eftir af ábyrgð Veldu notaðan Kia með lengri ábyrgð Kia Picanto LX 1,0 Árg. 2012, ekinn 73 þús. km, bensín, 69 hö., beinskiptur 5 gíra, eyðsla 4,2 l/100 km.* Verð: 1.480.000 kr. Greiðsla á mánuði 19.990 kr.** **M.v. 39% innborgun og 60 mán. óverð- tryggt lán á 9,4% vöxtum. Árleg hlutfalls- tala kostnaðar: 12,08%. 5 ár eftir af ábyrgð Kia Sorento EX Lux 2,2 Árg. 2012, ekinn 75 þús. km, dísil, 198 hö., sjálfskiptur, eyðsla 6,7 l/100 km.* Verð: 5.890.000 kr. Greiðsla á mánuði 49.900 kr.** **M.v. 61% innborgun og 60 mán. óverð- tryggt lán á 9,4% vöxtum. Árleg hlutfalls- tala kostnaðar: 11,42%. 5 ár eftir af ábyrgð Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 4x4 Grænn bíll4x4 4x4 *Uppgefnar eyðslutölur framleiðanda m.v. blandaðan akstur. JAFNRÉTTISMÁL Ellefu konur og 40 karlar sóttu um þrjár stöður aðstoð- aryfirlögregluþjóna hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu. Í hæf- isnefnd sem úrskurðaði um hæfi umsækjenda sátu Hörður Jóhann- esson aðstoðarlögreglustjóri, Egill Bjarnason yfirlögregluþjónn og Sig- ríður Hrefna Jónsdóttir, mannauðs- stjóri lögreglunnar. Sigríður Hrefna segir að matið hafi byggst á þeim kröfum sem gerð- ar eru til aðstoðaryfirlögregluþjóna samkvæmt reglugerð. „Embætti lögreglustjórans á höf- uðborgarsvæðinu er stórt og aðstoð- aryfirlögregluþjónar eru stöðvar- stjórar og yfirmenn á vinnustöðum þar sem starfa 30 til 50 manns,“ segir Sigríður Hrefna. Hún segir að tekið hafi verið mið af því við ráðningu aðstoðaryfirlög- regluþjónanna að þeir hefðu víðtæka stjórnunarreynslu. Þá hafi hæfis- nefndin tekið tillit til samskipta- hæfni, skipulagshæfileika, frum- kvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum og umsagna. „Allir sem sóttu um uppfylltu grunnhæfisskilyrði sem sett voru. Það er þeir höfðu lokið prófi frá lög- regluskólanum og starfað í fimm ár í lögreglunni,“ segir Sigríður Hrefna. Á fyrsta stigi ráðningarferlisins var fækkað niður í 25. Þar af voru þrjár konur og voru allir boðaðir í viðtöl. Að því loknu var fækkað niður í tíu, þá var ein kona orðin eftir í hópnum. Umsækjendur voru aftur boðaðir í viðtal og enn var fækkað í hópnum og nú niður í fimm. Engin kona var í lokahópnum en aðstoðar- yfirlögregluþjónarnir voru ráðnir úr honum. „Það var mjög hæft fólk sem sótti um. Ég skil vel reiði kvenna yfir því að engin kona var ráðin en hæfnis- matið réð. Í framtíðinni stendur upp á stjórnendur að gera áætlun um hvernig hægt sé að styrkja konur í lögreglunni. Slíkt gerist ekki á einum degi, það er langhlaup,“ segir Sigríður Hrefna. Í október 2013 var kynnt skýrsla um vinnumenningu innan lögregl- unnar. Í skýrslunni, sem byggð er á könn- unum og viðtölum við lögreglumenn, kemur meðal annars fram að konur telja sig ekki hafa aðgang að efstu starfsstigum lögreglunnar, og að þær séu af samstarfsmönnum sínum tald- ar síður hæfar til lögreglustarfa en karlar. Embætti Ríkislögreglustjóra ákvað í kjölfar skýrslunnar að bregð- ast við. Eins og kom fram í Frétta- blaðinu í gær er stefnt að því að boða lögreglustjóra landsins á námskeið síðar á árinu þar sem sérstök áhersla verður lögð á jafnréttismál. Þá ætlar Ríkislögreglustjóri að leggja áherslu á að bæta hag kvenna í neðri þrepum lögreglunnar. johanna@frettabladid.is Engin kona í lokahóp vegna yfirmannsstöðu hjá lögreglu Konur voru rúmlega fimmtungur þeirra sem sóttu um þrjár lausar stöður aðstoðaryfirlögregluþjóna á höfuð- borgarsvæðinu. Þrjár konur komust í viðtöl en engin komst í lokahópinn sem valið var úr. Hann er yfirlögregluþjóni til aðstoðar. Stjórn og ábyrgð á deildum svo og tilteknum verkefnum sem honum eru falin og krefjast sérstakrar þekk- ingar, þjálfunar og/eða menntunar, þar með talin rannsókn mála og aðstoð við saksókn. Eftirlit með reglum og að fyrirmælum sé framfylgt og að fjár- hagslegur rekstur deilda eða eininga sé innan fjárheimilda. Verksvið aðstoðaryfirlögregluþjóns FÁAR KONUR Af öllum lögreglumönnum í landinu eru um þrettán prósent konur. Mörgum þeirra finnst þær hafa átt erfitt uppdráttar innan lögreglunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STJÓRNSÝSLA Flutningur Fiski- stofu norður í land hlýtur stuðn- ing meirihluta bæjarráðs Akur- eyrar. Þetta kom fram í bókun ráðsins í gær. Þar segir jafnframt að ákvörðunin sé í samræmi við ítrekaðar ályktanir bæjarráðs um mikilvægi þess að fjölgað sé í bænum. Lýsir meirihlutinn yfir skilningi á aðstæðum starfsmanna og vill „aðstoða þá starfsmenn sem vilja flytja með stofnuninni og hvetur þá til að útiloka ekki strax þann möguleika“. - nej Sátt með flutning Fiskistofu: Meirihluti lýsir yfir stuðningi SKAGASTRÖND Sveitarstjórn Skaga- strandar hefur samþykkt samning við Hjallastefnuna ehf. Markmiðið er að rekstur leik- skólans Bjarnabóls færist alfar- ið yfir til Hjallastefnunnar um áramótin 2014-2015 en gangi það ekki þá ekki síðar en 1. ágúst 2015. Þangað til verður rekstur leikskól- ans áfram hjá sveitarfélaginu. Samkvæmt heimasíðu stefnunnar verður þetta átjándi skólinn sem rekinn er í samræmi við Hjalla- stefnuna. - nej Rekstur Bjarnabóls færist: Skagaströnd vill Hjallastefnu FÓLKSFÆKKUN Bærinn hefur fundið fyrir fækkun starfa á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.