Fréttablaðið - 04.07.2014, Qupperneq 16
4. júlí 2014 FÖSTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
Ekki hefur starfsfólk Fiskistofu stokkið
hæð sína af fögnuði þegar sjávarútvegs-
ráðherra tilkynnti að störf þess myndu
flytjast frá Hafnarfirði til Akureyrar í
einu vetfangi, enda bárust fréttir af því
að starfsfólki hefði verið boðin áfalla-
hjálp í framhaldinu. Hugmyndin með
flutningi Fiskistofu er að færa störf út á
landsbyggðina – jákvætt og mikilvægt
markmið – en í ljósi frétta af því hvern-
ig staðið er að flutningnum hljóta allir
að velta því fyrir sér hvort ríkisstjórnin
vinni hér meiri skaða en gagn.
Um langt árabil var litið á það sem
eins konar náttúrulögmál að opinberar
stofnanir væru á höfuðborgarsvæðinu,
helst í Reykjavík. Vissulega eru það úrelt
sjónarmið, ekki síst nú á tímum þegar
tækniþróun gerir fólki mögulegt að sinna
margs konar vinnu hvar sem er í heim-
inum. Það er líka eðlileg krafa að opinber
störf dreifist um landið allt. Flutningur
opinberra starfa út á land hefur oft geng-
ið vel, bæði með flutningi stofnana en líka
þegar svokölluð „störf án staðsetningar“
eru auglýst, en þá velur starfsfólk sjálft
hvar á landinu það kýs að sinna vinnu
sinni.
Í ljósi þessarar góðu reynslu má spyrja
hvort ekki hefði verið hægt að bera sig
öðruvísi að í tilfelli Fiskistofu. Í stað þess
að tilkynna starfsfólki að stofnunin yrði
flutt á einu bretti hefði mátt starfrækja
áfram starfsstöð Fiskistofu í Hafnarfirði
þar sem þeir starfsmenn sem svo kjósa
gætu unnið áfram samhliða því að starfs-
stöð Fiskistofu á Akureyri yrði efld stig
af stigi með það í huga að höfuðstöðvarn-
ar yrðu þar til framtíðar.
Vinnubrögðin eru svo kapítuli út af
fyrir sig en í þessu tilfelli ætti að vinna
með starfsfólki en ekki tilkynna ákvarð-
anir ráðherra einhliða. Alþingi þarf líka
að hafa aðkomu að málinu, til að mynda
virðist vanta lagastoð fyrir flutningn-
um og að sjálfsögðu þarf að liggja fyrir
kostnaðarmat. Þá þyrfti Alþingi að marka
heildstæða stefnu um flutning opinberra
starfa þannig að starfsfólk hinna ýmsu
stofnana þurfi ekki að lifa í sífelldum ótta
um að störf þess verði flutt til fyrirvara-
laust. Góð vinnubrögð frá upphafi myndu
skila betri árangri.
Vond vinnubrögð
STJÓRNSÝSLA
Katrín
Jakobsdóttir
formaður
Vinstri grænna
➜ Vinnubrögðin eru svo kapítuli
út af fyrir sig en í þessu tilfelli
ætti að vinna með starfsfólki en
ekki tilkynna ákvarðanir ráðherra
einhliða. Alþingi þarf líka að hafa
aðkomu að málinu …
E
in af röksemdum andstæðinga hvalveiða er að veiðarnar
séu ómannúðlegar; vegna ófullkominna veiðiaðferða sé
dauðastríð hvalanna oft langt. Þetta er raunar röksemd
sem meira mark er takandi á en ýmsum öðrum, eins og
þeirri að hvalategundirnar sem íslenzkir hvalveiðimenn
veiða séu í útrýmingarhættu, sem er augljóslega rangt.
Þeir sem eru fylgjandi hvalveiðum Íslendinga hafa hins vegar
átt í ákveðnum erfiðleikum með að svara röksemdinni um ómann-
úðlegar veiðiaðferðir, því að haldbærar rannsóknir á aðferðunum
og skilvirkni þeirra hefur vantað.
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra taldi sig
reyndar þess umkominn í
umræðum á Alþingi í vor að lýsa
því yfir að hvalveiðar Íslendinga
væru „gerðar með eins mannúð-
legum hætti og hægt er“. Í sömu
ræðu sagði hann engu að síður
frá því að í fyrsta skipti ætti að
afla haldbærra upplýsinga um
að sú væri raunin og að aðferðir íslenzkra hvalveiðimanna væru
sambærilegar við aðferðir sem notaðar eru í Noregi.
Samanburður á veiðiaðferðum norskra og japanskra hval-
veiðimanna hefur einmitt leitt í ljós að þeir norsku ná í um 80
prósentum tilvika að drepa dýrið strax, en Japanirnir ná því ekki
nema kannski í helmingi tilvika.
Samanburðurinn við Noreg skiptir þess vegna máli. Í sumar
mun norskur dýralæknir, sem hefur rannsakað veiðiaðferðir
hvalveiðimanna í Noregi, gera slíkt hið sama um borð í íslenzku
hvalveiðiskipi. Verkefnið er á vegum Fiskistofu og NAMMCO,
Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins.
Í umræðunum á þingi í vor sagði sjávarútvegsráðherra að
upplýsingar sem safnað yrði í leiðangrinum yrðu „án efa aðgengi-
legar, til þess er þetta gert“. Verið væri að safna upplýsingunum í
opinberum tilgangi og þess vegna yrðu þær aðgengilegar.
Nú kveður hins vegar skyndilega við annan tón. Fréttablaðið
sagði í gær frá því að sjávarútvegsráðherra hefði fyrr í vikunni
svarað fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri
grænna, á þann veg að niðurstöður rannsóknarinnar yrðu ekki
gerðar opinberar. Þær yrðu eingöngu kynntar í nefnd NAMMCO
um veiðiaðferðir og bornar þar saman við niðurstöður sambæri-
legra mælinga annarra aðildarríkja.
Þetta eru ekki traustvekjandi vinnubrögð. Ef niðurstöðurnar
sýna að hvalveiðarnar eru eins mannúðlegar og hægt er, eins og
sjávarútvegsráðherrann heldur fram, getur ekki verið að stjórn-
völd vilji halda þeim leyndum. Leyndin hlýtur að vekja tortryggni
um að glansmyndin sé eitthvað krumpaðri en menn hafa látið í
veðri vaka.
Auðvitað á að birta almenningi niðurstöðurnar, á hvorn veginn
sem þær eru. Ef eitthvað má betur fara varðandi veiðiaðferðirnar,
á að nýta niðurstöðurnar til að bæta úr því.
Það er misskilningur að halda að hægt sé að forðast erfiða
umræðu um hvalveiðar með því að halda upplýsingum leyndum.
Leyndin skapar tortryggni og ýtir undir getgátur. Opnar upp-
lýsingar gera umræðuna hins vegar oftast betri, þótt menn kunni
að túlka staðreyndir á mismunandi hátt.
Opnar upplýsingar gera umræðuna oftast betri:
Leynd hvílir yfir
mannúðinni
Gasgrill 3j
a brennar
a
49.998 kr
www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri
Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Grandi |
VÖNDUÐ OG GÓÐ
GRILL Á FRÁBÆRU VERÐI!
Skammvinnar vinsældir
Ragnheiður Elín Árnadóttir var lang-
vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar
í tvo daga eftir að hafa verið jákvæð
fyrir því að hægt yrði að láta það ganga
að magnvöruverslanakeðjan Costco
kæmi hingað til lands þrátt fyrir kröfur
keðjunnar um að fá að selja ferskt
bandarískt kjöt, lyf og
áfengi í verslunum sínum,
en slíkt er óheimilt eins
og stendur samkvæmt
gildandi lögum. Ragn-
heiður sagðist fagna
aukinni samkeppni og
vera tilbúin að gera
það sem í hennar
valdi stæði til
að greiða úr
fyrirliggjandi úr-
lausnarefnum.
Aukin samkeppni af hinu góða
Bændablaðið var ekki lengi að bregðast
við yfirvofandi ógn í orðum ráðherra
en í samtali við blaðið sagðist hún ekki
vera að boða innflutning á hráu kjöti að
kröfu Costco heldur að ákveðnar kröfur
yrðu teknar til skoðunar. Hún sagðist
þó almennt mjög hlynnt komu Costco
vegna samkeppni í verslun og sagði
að skoða skyldi ákveðna hluti sem
þeir óskuðu eftir. Þótt ráðherrann
segist ekki boða innflutning á hráu
kjöti að utan má í orðum hennar
greina ákveðinn vilja til þess að
endurskoða reglur sem
hingað til hafa hamlað
samkeppni í landinu
og hvort sem
það leiðir til
breytingar
á inn-
flutningi á kjötvörum eða einhvers
annars er það jákvætt. Kannski verða
vinsældirnar langvinnar.
Frelsi í viðskiptum
Flokkssystir ráðherrans og þingkonan
Unnur Brá Konráðsdóttir tók í sama
streng á vef Morgunblaðsins í gær
þar sem hún sagði Costco ekki
munu fá sérstakar undanþágur.
Unnur sagði hins vegar að þetta
myndi vonandi leiða til þess
að liðkað yrði fyrir meira frelsi
í viðskiptum. Að auki
sagðist hún bjartsýn á
að lögum um áfengis-
sölu yrði breytt. Það er
greinilegt að þeir sem
eru hlynntir frjálsum
viðskipum eiga von á
góðum vetri. fanney@