Fréttablaðið - 04.07.2014, Side 20

Fréttablaðið - 04.07.2014, Side 20
4. júlí 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT „Við komum hingað saman í nám árið 1993 og heilluðumst. Lærðum í Ari- zona og höfum búið í Chandler á stór- Phoenix-svæðinu síðan við keyptum húsið okkar árið 2001. Skóla gjöldin voru viðráðanleg og svo er hér hlýtt og notalegt allan ársins hring,“ segir Kristín Ólafsdóttir en í dag er þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna sem þau halda upp á á hverju ári. Kristín starfar sem viðburðastjóri fyrir rektor verkfræðideildar háskól- ans í Arizona, sem er einn stærsti háskóli Bandaríkjanna með yfir 76 þúsund nemendur, en þar sér hún um stórar og smáar uppákomur, veislur, ráðstefnur og útskriftir af öllum stærðum og gerðum. Baldur Bene- diktsson, eiginmaður hennar, starfar hjá APS (Arizona Public Service) sem er stærsta rafveita Arizona, þar sem hann sér um viðhald og uppbyggingu á vefsíðum fyrirtækisins. Saman eiga þau svo drengina Alex Óla, níu ára, og Aron Ben, fjögurra ára. Fjórði júlí er mikill hátíðardag- ur í Bandaríkjunum og gjarna frí- dagur. Ef daginn ber upp á helgi eru oft dagarnir í kring teknir í frí til að lengja helgina. „Þar sem við búum á Phoenix-svæðinu sem er í Sonora-eyði- mörkinni er hér yfirleitt mjög heitt 4. júlí og yfirleitt fer fólk út úr bænum eða safnast saman í bakgarðinum hjá vinum. Við höfum þann sið á að fara út úr bænum alltaf helgina fyrir eða eftir og þá yfirleitt til Kaliforníu eða Norður-Arizona til að komast í aðeins kaldara loftslag en grillum alltaf eða förum til vina sem grilla þegar 4. er í miðri viku. Eitt árið vorum við á ströndinni í San Diego og horfðum á flugeldana frá Sea World sem var mjög gaman. Í ár er planið að grilla heima hjá okkur og kæla sig í lauginni,“ segir Kristín en yfirleitt eru hefðbundnar amerískar pylsur, steikur og hamborg- arar á boðstólum. Hvernig er 4. júlí frábrugðinn 17. júní-hátíðahöldunum í Reykjavík? „Hér í Arizona er meira um heimasam- kvæmi og minna um það að fólk fari niður í bæ. Þó er boðið upp á samkom- ur en þær eru ekki eins vel sóttar nema þær séu innandyra. Einnig eru alltaf flugeldar um klukkan 10 á kvöldin á 4. júlí niðri í bæ en það er algerlega bannað fyrir almenning að skjóta upp nokkru sem Íslendingar myndu kalla alvöru flugelda, hér eru bara á boð- stólum hálfgerðir prumphlutir sem varla fara upp í loftið því það er svo mikil eldhætta og nóg um skógarelda í kringum okkur svo ekki er á bætandi.“ Kristínu og fjölskyldu líkar lífið vestanhafs vel og stefna ekki heim í nánustu framtíð. „Það er mjög gott að búa hér og okkur líður mjög vel, en auðvitað hefur oft komið upp sú hugmynd að fara heim eða færa sig nær Íslandi, en rétta tækifærið aldrei komið enn þá. Aldrei að vita samt.“ alfrun@frettabladid.is Alltaf fl ugeldar 4. júlí Kristín Ólafsdóttir hefur verið búsett ásamt fj ölskyldu sinni í Bandaríkjunum síðan árið 1993. Hún ætlar að halda upp á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna í góðra vina hópi, grilla og kæla sig í lauginni enda heitasti tími ársins um þessar mundir í bænum Chandler á stór-Phoenix-svæðinu í Arizona þar sem fj ölskyldan býr. GRILLA OG BUSLA Í LAUGINNI Það er aðeins öðruvísi loftslag á þessum tíma árs í Arizona og segir Kristín daginn fara í grill, busl í sundlaug- inni og svo er flugeldasýning um kvöldið. Amerísku flugeldarnir jafnast þó ekkert á við þá sem Íslendingar skjóta upp. Hér má sjá þau Kristínu, Baldur, Alex Óla og Aron Ben. MYND/ÚR EINKASAFNI Klaus Barbie, sem gekk undir nafninu slátrarinn í Lyon, var dæmdur í lífs- tíðarfangelsi þann 4. júlí árið 1987 fyrir stórfellda glæpi gegn mann- kyninu. Klaus var einn yfirmanna Gestapó-sveitar nasista í seinni heimsstyrjöldinni og árið 1984 var hann ákærður fyrir glæpi sem hann framdi fyrir Gestapó í Lyon á árunum 1942 til 1944. Réttarhöldin hófust þann 11. maí árið 1987 í Lyon og voru kærur á hendur honum alls 177 talsins. Var Klaus sagður ábyrgur fyrir flutningi meira en 7.500 franskra gyðinga og upp- reisnarseggja í útrýmingarbúðir. Klaus starfaði í áratugi fyrir banda- rísk yfirvöld sem leyniþjónustumaður og var á endanum fluttur til Suður- Ameríku þar sem hann settist að í Bólivíu og varð kaupsýslumaður. Hann hélt áfram leyniþjónustu- störfum sínum fyrir Bandaríkjamenn þrátt fyrir sífellt vaxandi óánægju franskra gyðinga sem réttilega töldu hann komast allt of vel frá hrikalegri fortíð sinni. Eftir stjórnarskipti í Bólivíu í kringum 1980 samþykktu stjórnvöld þar í landi að framselja Klaus í skiptum fyrir frönsk hjálpargögn. Klaus lést úr krabbameini í fangelsi árið 1991, þá 77 ára gamall. - lkg ÞETTA GERÐIST: 4. JÚLÍ ÁRIÐ 1987 Klaus Barbie dæmdur í lífstíðarfangelsi MERKISATBURÐIR 1685 Halldór Finnbogason er brenndur á báli á Þingvöllum fyrir að snúa Faðirvorinu upp á andskotann. Þetta er síðasta galdra- brennan á Íslandi. 1827 Þrælahald er afnumið í New York-ríki. 1862 Lewis Carroll segir Alice Liddell sögu sem seinna varð að Lísu í Undralandi. 1886 Frakkar gefa Bandaríkjamönnum Frelsisstyttuna. 1903 Dorothy Levitt er fyrsta konan til að keppa í kappakstri. 1914 Jarðarför Franz Ferdinands og konu hans, Sofíu, fer fram í Vín, sex dögum eftir að þau voru ráðin af dögum í Sarajevó. 1946 Filippseyjar fá sjálfstæði frá Bandaríkjunum. 1951 Bandaríski blaðamaðurinn William N. Oatis er dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir njósnir í Tékkóslóvakíu. Það er algerlega bannað fyrir almenning að skjóta upp nokkru sem Íslendingar myndu kalla alvöru flugelda, hér eru bara á boðstólum hálfgerðir prumphlutir sem varla fara upp í loftið því það er svo mikil eldhætta og nóg um skógarelda í kringum okkur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KOLBRÚN ÁRMANNSDÓTTIR frá Tindum, Neskaupstað, til heimilis að Funalind 7, Kópavogi, sem andaðist fimmtudaginn 26. júní, veður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 4. júlí, kl. 13.00. Hallveig Hilmarsdóttir Ingimundur Sigurpálsson Birna Hilmarsdóttir Samir Hasan Tómas Hilmarsson Valgerður Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGA INGIMUNDARSONAR Borgarbraut 46, Borgarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- og dvalarheimilisins Brákarhlíðar. Jónína Björg Ingólfsdóttir Unnur Ingadóttir Grímur Lúðvíksson Brynja Ingadóttir Magnús Sigurðsson Ingimar Ingason Guðrún Margrét Hannesdóttir Anna Ingadóttir Sigurþór Leifsson barnabörn og barnabarnabörn. Við sendum okkar hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og veittu aðstoð við andlát og útför okkar elskulegu ERNU BRYNDÍSAR HALLDÓRSDÓTTUR. Starfsfólk krabbameinsdeildar 11E fær okkar bestu þakkir fyrir hlýja og góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Gabríela Bryndís Ernudóttir Björn Þór Hilmarsson Helga Bryndís Ernudóttir Lilja Björk Björnsdóttir Egill Tryggvason Sturla Þór Björnsson Rebekka Halldórsdóttir Sigrún Guðmundsdóttir Helga G. Halldórsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, BIRNA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR Ársölum 3, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 28. júní. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 7. júlí kl. 13.00. Haraldur Kristjánsson Kolbrún Haraldsdóttir Kristján Björn Haraldsson Guðfinna Unnur Gunnarsdóttir Ásmundur Haraldsson Berglind, Birna, Brynjar, Aron Gauti, Ástrós, Björn Henry, Björn Darri og Gunnar Alfreð.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.