Fréttablaðið - 04.07.2014, Qupperneq 41
FÖSTUDAGUR 4. júlí 2014 | MENNING | 25
FÖSTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FÖSTUDAGUR
4. JÚLÍ 2014
Tónleikar
20.00 Frumkvöðlar á fertugasta sumri,
Jaap og Skálholtskvartettinn í Skál-
holtskirkju.
Leiklist
20.00 Sumarsýning ársins á Norður-
landi kallast RÆFLAVÍK og verður sýnd
í Norðurbandalaginu.
Sýningar
22.30 Skinnsemi er kabarettsýning
með sirkusívafi þar sem lögð er áhersla
á fullorðinshúmor en Sirkus Íslands
setur hana upp. Sýning fer fram á
Klambratúni.
Hátíðir
19.00 Nú á dögunum sendi listafígúran
Mar frá sér stuttskífuna, Mellows og
í tilefni þess verður haldið útgáfuhóf
á Loft Hostel, í kvöld og hefst það
klukkan 19.00. Skífan verður að sjálf-
sögðu seld á staðnum en hún kemur í
mjög takmörkuðu handprentuðu upp-
lagi. Einnig verður frumsýnt nýtt tón-
listarmyndband við eitt af lögum Mars;
Twisted Figures. Að sjálfsögðu
verður hlustað á skífuna en
þess á milli mun austurríski
skífuþeytirinn Hans Kulisch
spila ofurtóna fyrir gesti og
gangandi.
Tónlist
20.00 Djasstrompetleikarinn
ástsæli Wynton Marsalis mun
koma fram í Eldborgarsal
Hörpu í kvöld ásamt hljóm-
sveit sinni Jazz at the Lincoln
Centre Orchestra.
20.00 Sönghópurinn Olga
kemur fram í Hafnarkirkju á
Höfn í Hornafirði.
21.00 Jenni og Franz ætla að keyra
stemninguna í gang í því tilefni að
Bar 11 fagnar 11 ára afmælinu.
21.00 KK bandið kemur fram á Café
Rosenberg. Félagarnir KK, Þorleifur
Guðjónsson og Kormákur Geirharðsson
skipa KK bandið, koma saman öðru
hvoru og spila gömlu lögin sem þeir
hafa verið að spila síðustu 20 ár.
21.00 Mercy Buckets mun gefa út
frumburð sinn, Lumberjack Fan-
tasies, í dag. Í tilefni þess verður
skellt í útgáfutónleika og veislu á
Gauknum í kvöld. Auk Mercy Buckets
koma fram We Made God, Elín Helena
og Conflictions. Handgerð eintök af
plötunni verða til sölu á litlar 2000
krónur á tónleikunum en rafræn útgáfa
af plötunni verður einnig á öllum
helstu miðlum eins og Youtube,
Spotify og Bandcamp.
22.00 Skuggamyndir frá
Býsans, hljómsveit Hauks
Gröndals saxófónleikara,
leikur margrómaðan heims-
tónlistarbræðing í Gamla
Bænum á Hótel Reynihlíð
við Mývatn. Sérstakir
gestir eru búlgarski
harmóníkuleikarinn
Boris Zgurovski og slag-
verksmeistarinn Claudio
Spieler.
22.00 Hljómsveitin Hjálm-
ar heldur tónleika á Græna
hattinum á Akureyri.
23.00 Danshljómsveit
Jonna Ólafs leikur og
syngur á Ob-La-Dí-Ob-
La-Da,Frakkastíg 8.
Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Hljómsveitirnar Sushi Submarine, Náttfari og Hellvar leika á Dillon í
kvöld, 4. júlí, sem er þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna. Bogi Reynis-
son, einn meðlima Sushi Submarine, segir að með því að velja þennan
dag vilji sveitirnar hvetja Bandaríkjamenn til að styðja ekki árásir á
Palestínu frekar. „Það er fínt að vekja athygli á því að þótt við höfum það
ágætt hérna, þá hafa það ekki allir,“ segir hann.
Hljómsveitirnar þrjár hafa ekki áður komið fram á sömu tónleikum en
Bogi segir þær eiga það sameiginlegt að spila kröftugt og hávært rokk
sem kemur fólki í gír. „Það verður magnað stuð og mikill hávaði, ekki
spurning,“ segir Bogi.
Aðgangseyrir er einungis 500 krónur og Bogi segir erfitt að finna betri
díl í borginni þessa dagana. „Þetta er algjört kostaboð fyrir aðdáendur
háværs rokks,“ segir hann. - fsb
Hellvar, Náttfari og Sushi Submarine á Dillon í kvöld:
Brjálað og hávært stuð
EIN AF
ÞREMUR
Hljómsveitin
Hellvar með
Heiðu Eiríks
í fremstu
víglínu leikur
ásamt Nátt-
fara og Sushi
Submarine á
Dillon.