Fréttablaðið - 19.07.2014, Blaðsíða 2
19. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÓLK „Þetta var mjög strembin og erfið
keppni. Tók virkilega á geðheilsu og líkam-
lega heilsu manna. En var algjörlega þess
virði,“ segir Ragnheiður Björk Halldórs-
dóttir, liðsmaður í rúmlega þrjátíu manna
liði verkfræðinema úr Háskóla Íslands sem
hélt út til Englands síðastliðna helgi til þess
að taka þátt í keppninni Formula Student.
Keppnin snýst um að nemar setji saman
eins manns rafknúinn kappakstursbíl.
Íslenska liðið, Team Spark, náði undra-
verðum árangri og fékk verðlaun sem besti
nýliðinn í keppninni í fyrsta flokki. 103
bílar úr rúmlega 130 liðum alls frá 38 lönd-
um tóku þátt. Þar af voru tuttugu til þrjátíu
nýliðar að sögn Ragnheiðar. Liðin kepp-
ast um að klára lokaáfanga keppninnar en
þar fær bíllinn að aka á kappakstursbraut.
Fyrst þurfa bílarnir að standast ströng
öryggispróf.
„Það eru tæplega 50 prósent liða sem
komast í gegnum öryggis próf,“ segir Ragn-
heiður. „Þessi próf eru svo óbærilega flókin
og nákvæm.“ Aðeins 25 prósent liða kom-
ast síðan í lokaáfangann. Íslenska liðið var
aðeins hársbreidd frá því að ná á þennan
lokahluta en stóðst nær öll öryggisprófin.
„Við féllum á tíma en við komumst engu
að síður miklu lengra en við þorðum að gera
ráð fyrir.“ Gríðarleg vinna liggur á bak við
góðan árangur liðsins. Liðsmenn vöknuðu
klukkan sex að morgni alla daga keppninn-
ar, unnu í bílnum allan daginn þangað til
þeim var hent út úr bílskúrnum klukkan ell-
efu að kvöldi.
Hópurinn vakti athygli í kynningum
á bílnum. „Við vorum sérstaklega nefnd
í verðlaunaafhendingunni fyrir óvænta
en skemmtilega nálgun á sjálfbærni.“
Aukin áhersla hefur verið lögð á sjálf-
bærni í keppninni á undanförnum árum.
„Við vorum eina liðið í ár sem fékk fullt
hús stiga fyrir sjálfbærni,“ útskýrir Ragn-
heiður. „Íslenskt samfélag er þekkt fyrir
endurnýjanlega orku og þaðan kemur þessi
hugsun hjá okkur með sjálfbærnina.“ Hún
segir að hópurinn sé þegar farinn að huga
að næsta ári. nanna@frettabladid.is
Formúluliðið frá HÍ var
valið besti nýliðinn í ár
Rúmlega þrjátíu nemar í verkfræði við Háskóla Íslands héldu utan um síðustu helgi til að keppa í
smíði besta kappakstursbílsins. Liðsmaður segir góðan árangur liðsins uppskeru mikillar vinnu.
DUGNAÐUR
Atorkusemi
skilaði nemunum
góðum dómum
í keppninni.
„Dómarar sögðu
að bíllinn okkar
væri einn af tutt-
ugu flottustu í
keppninni,“ segir
Ragnheiður Björk,
liðsmaður Team
Spark.
MYND/JÓHANN ODDUR
Smalaði hundrað
hrossum á flugvél
Magnúsi Víkingi Grímssyni
tókst að smala úr lofti um
hundrað hrossum, sem sloppið
höfðu úr gerði í óbyggðum fyrir
rúmum tveimur vikum, inn í
gerði á Svínárnesi. Magnús
kvaðst hafa verið feginn að vera
einn á ferð í flugvélinni því hver
sem er hefði orðið flugveikur
eftir hringbunurnar sem hann
fór. Sagðist hann sjálfur hafa
verið orðinn ringlaður.
FRÉTTIR
FIMM Í FRÉTTUM ÍSLENDINGAR UMBURÐARLYNDIRGLEÐIFRÉTTIN
VIKAN 11.7.–18.7.2014
Íslenskt samfélag er
þekkt fyrir endurnýjanlega
orku og þaðan kemur þessi
hugsun hjá okkur með
sjálfbærnina.
Ragnheiður Björk Halldórsdóttir,
verkfræðinemi við Háskóla Íslands.
Fulltrúar í minnihlutanum
í Árborg segja að mánaðar-
laun Ástu Stefánsdóttur
bæjarstjóra nemi 1,6 millj-
ónum á mánuði. Þeir segja
launin taktlaus.
Tónlistarkonan Elín Ey segir
að Íslendingar séu alltaf
að verða umburðarlyndari.
Íslendingar standi framar-
lega í málefnum samkyn-
hneigðra.
Helgi Hrafn Gunnarsson
pírati stýrir nefnd sem á
að móta tillögur um rétt-
indi vímuefnaneytenda
í stað þess að refsa
þeim.
H alldór S. Guð-
bergsson segir að
heilbrigðisráðherra
hafi hækkað álögur
á veikt fólk í skjóli
sumarfría.
➜ Það kom Ragnheiði Elínu
Árnadóttur ekki á óvart
að sýslumaðurinn á
Húsavík skyldi sam-
þykkja lögbannskröfu
á gjaldtöku við Kröflu
og við hverina aust-
an Námaskarðs.
LAUGARDAGUR Mega ekki kynna íþróttir Fram-
kvæmdastjóri Íþróttafélags Reykjavíkur vill fá að kynna
íþróttir í skólum en það hefur verið bannað.
SUNNUDAGUR Þjóðverjar heimsins bestir Þjóð-
verjar urðu heimsmeistarar í fótbolta í fjórða sinn eftir
vítaspyrnukeppni gegn Argentínu.
MÁNUDAGUR Fleiri afpláni heima Páll Winkel,
forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir góða reynslu af því
að leyfa fólki að afplána heima. Hann vill frekari rýmkun
úrræðisins.
ÞRIÐJUDAGUR Eldur í bílum Að kvöldi þriðjudags
kviknaði í bílum við Hamraborg í Kópavogi. Svartan reyk
og lykt af brennandi gúmmíi lagði yfir Hamraborgina.
MIÐVIKUDAGUR Stutt vopnahlé milli Ísraels og
Palestínu Báðir aðilar í átökum Ísraels og Palestínu féll-
ust á 5 stunda vopnahlé til að koma mætti nauðþurftum
til íbúa á Gasasvæðinu. Þá höfðu nær 230 Palestínumenn
látið lífið.
FIMMTUDAGUR Gamla bíó verður sem fyrr
Guðvarður „Guffi“ Gíslason fer fyrir viðamiklum fram-
kvæmdum í Gamla bíói. Til stendur að færa húsið í upp-
runalega mynd.
FÖSTUDAGUR Til í
sam eigin legt guðshús
„Ég held að það yrði
alveg frábært. Það er
góð leið til að kynnast
og eyða fordómum.“
Salmann Tamimi, forstöðu-
maður Félags múslima á
Íslandi, tekur vel í hugmyndir
um sameiginlegt guðshús
kristinna manna, gyðinga og
múslima. SÍÐA 6
VIÐSKIPTI Stjórnendur trygginga-
fyrirtækisins Friends Provident,
sem þúsundir Íslendinga eru í við-
skiptum við, hafa íhugað að rifta
öllum lífeyristryggingasamning-
um gerðum eftir 28. nóvember
2008 og endurgreiða iðgjöld, vegna
ákvörðunar Seðlabankans um að
stöðva sparnað á grundvelli samn-
inganna.
Sem kunnugt er hefur Seðla-
bankinn stöðvað sparnað Íslend-
inga í erlendum gjaldeyri hjá fyr-
irtækjum eins og Allianz, Friends
Provident og Bayern-Versicherung
þar sem bankinn telur að samning-
ar um sparnaðinn gangi í berhögg
við gjaldeyrishöftin.
Fulltrúar frá tryggingafyrir-
tækinu Friends Provident eru
á Íslandi og funduðu í dag með
starfsmönnum Seðlabankans
vegna lífeyristryggingasamninga
sem Seðlabankinn telur ólöglega.
Milljarðahagsmunir eru í húfi
fyrir fyrirtækið vegna viðskipta-
vina þess hér á landi sem munu
ekki geta greitt inn á samningana
vegna túlkunar Seðlabankans á
lögum um gjaldeyrismál.
Óánægja tryggingamiðlara og
hinna erlendu fyrirtækja, Allianz,
Friends Provident og Bayern-Ver-
sicherung, er ekki síst til komin
vegna upplýsinga sem þau fengu
frá Seðlabankanum á fyrri stigum.
Starfsmaður gjaldeyriseftir-
lits Seðlabankans hafði áður sagt
að greiðslur vegna eingreiðslu-
líftrygginga væru undanþegnar
gjaldeyrishöftum. - þþ
Fulltrúar erlends lífeyristryggingafyrirtækis íhuga stöðu sína vegna haftanna:
Skoða að rifta samningum
MÁR GUÐMUNDS-
SON Seðlabanka-
stjóri segir að
Seðlabankinn vinni
að lausn sem eigi
að tryggja hagsmuni
allra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ora grillsósur fást í næstu verslun!
Lúxus
Bernaisesósa