Fréttablaðið - 19.07.2014, Blaðsíða 12
19. júlí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 12
Gunnar Lárus Hjálmarsson,
Doktor Gunni, tónlistarmaður
Hangi líklega í rigningunni í bænum
„Ég hangi nú líklega bara í bænum í rigningunni
nema ég skreppi í bíltúr, t.d. til meistaranna í
Sólheimum, sem alltaf er æðislega gaman að
heimsækja.“
Mér finnst það mjög skemmtilegur máti til að tjá sig að klæða sig í eitt-hvað flippað eða skemmtilegt,“
segir Rósa Birgitta Ísfeld, söng-
kona Sometime sem er ein þeirra
hljómsveita sem koma fram á tón-
leikunum Kexport Block Party í
dag. „Það verður líka að vera
skemmtilegt fyrir augað að vera
á tónleikum. Ég er einmitt á fullu
núna að púsla saman átfitti fyrir
Kexport-tónleikana.“
Rósa segir þó tímann sem fari
í að velja klæðnað á tónleika hafa
minnkað með árunum. „Þegar ég
var að byrja þá var ég oft í brjál-
uðu stressi vikuna fyrir tónleika
að reyna að redda einhverju til
að vera í, fá vini til að hjálpa
mér að sauma og svona. Núna
er ég komin með góðan grunn af
skemmtilegum hlutum og bún-
ingum sem ég hef sankað að mér
í gegnum árin svo þetta er orðið
minna stress. Það má þó alls ekki
nota sama búninginn of oft, þá
hættir þetta að vera spennandi.“
Rósa er í sumarfríi eins og
er en í haust taka við spenn-
andi hlutir sem hana hefur lengi
dreymt um að koma í fram-
kvæmd. „Ég ætla að skella mér
í flugnám,“ segir hún skælbros-
andi. „Ég byrja á að læra einka-
Vonandi mætir sólin líka
Rósa Birgitta Ísfeld, söngkona hljómsveitarinnar Sometime, er þekkt fyrir frumlegan klæðnað á tónleikum.
Sometime kemur fram á Kexport Block Party í dag en í haust ætlar Rósa að skella sér í fl ugnám.
RAUÐHETTA Rósa leggur mikið upp úr flippuðum og skemmtilegum búningum á
tónleikum og er alltaf að þróa stíl sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● 1860
● Atónal blús
● DIMMA
● Dj Flugvél & Geimskip
● Ghostigital
● kimono
● Kött Grá Pje
● Low Roar
● Mr. Silla
● Pétur Ben
● Reykjavíkurdætur
● Sometime
Tónleikarnir fara fram í
portinu við Kex Hostel,
hefjast klukkan 12 á hádegi
og lýkur um miðnætti.
➜ Þessir koma
fram á Kexporti
VW Passat Variant
Highl.TDI. Árgerð 2011, dísil
Ekinn 97.000 km, sjálfsk.
VW Tiguan Track&Style
2,0 TDI. Árgerð 2012, dísil
Ekinn 42.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
4.190.000,-
Land Rover Freelander II
Árgerð 2008, dísil
Ekinn 142.000 km, sjálfsk.
Toyota Land Cruiser
150 GX. Árgerð 2012, dísil
Ekinn 44.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
2.990.000,-
Ásett verð
5.890.000,-
Ásett verð
8.480.000,-
Komdu og skoðaðu úrvalið!
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
VW Touareg V6 TDI
245 hö. Árgerð 2013, dísil
Ekinn 31.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
9.890.000,-
GOTT ÚRVAL AF
NÝLEGUM GÆÐINGUM
Opið í dag frá kl. 12-16
flugmanninn og svo tek ég von-
andi atvinnuflugmanninn í
kjölfarið. Það er gamall draum-
ur sem ég er að láta rætast núna.
Kannski verð ég í framtíðinni
eins og Bruce Dickinson í Iron
Maiden og flýg túrvélinni sjálf
þegar ég fer á langa túra.“ Spurð
hvað hafi valdið því að hana lang-
aði að fljúga segir Rósa: „Ég er
dálítill adrenalínfíkill og ég held
að það sé mikið kikk að stjórna
flugvél. Ég hlakka æðislega til.“
Sometime vinnur nú að sinni
þriðju plötu og á tónleikunum í
dag fá áheyrendur að heyra lög af
henni. „Við erum nýbúin að gefa út
„single“ og erum á fullu í stúdíói
að vinna plötuna,“ útskýrir Rósa.
Hún segist ekki vita nákvæmlega
hvenær Sometime stígur á svið
í dag en tónleikarnir standa frá
klukkan tólf á hádegi til miðnætt-
is og hljómsveitirnar tólf koma
fram með klukkutíma millibili.
„Ég held samt að við séum frekar
snemma svo ég hvet áhorfendur
til að vera ekkert að hangsa við
að drífa sig niður í Kexport. Von-
andi mætir sólin líka.“
REYKJAVÍKURDÆTUR
M
YN
D
/A
N
TO
N
ÍA
B
ER
G
ÞÓ
RS
D
Ó
TT
IR
HELGIN
19. júlí 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
Á TÓNLISTARHÁTÍÐINA
Engla og menn í Strandarkirkju
í Selvogi klukkan 14.30 í dag.
Fram koma feðgarnir Bragi Bergþórs-
son og Bergþór Pálsson ásamt Þóru
Fríðu Sæmundsdóttur.
Á PLÖTU
Grísalappa-
lísu, Rökrétt
framhald. Eitt það
ferskasta í íslenskri
samtímatónlist.
Bætir hressir og
kætir í rigningunni.
Á THE CALL á
Stöð 2 klukkan
22.25 í kvöld.
Spennumynd frá 2013 með
Halle Berry og Abigail
Breslin í aðalhlut-
verkum. Leikstjóri er
Brad Anderson.
SKÁLDSÖGUNA Bragð af ást,
hörkuspennandi og tilfinninga-
þrungna sögu
frá Dorothy Koomson
í þýðingu Höllu
Sverrisdóttur. Matur,
morð og ást hafa
sjaldan blandast
betur saman.
Fanndís Friðriksdóttir,
knattspyrnukona
Ánægjustundir
í Eyjum
„Ég verð á árgangsmóti
í Vestmannaeyjum um
helgina. Í dag fer ég í ratleik
og svo verður líklega hitað
upp fyrir Þjóðhátíð. Það gæti
líka verið að maður finni sér
pláss fyrir Þjóðhátíð, fyrst
maður er staddur í Eyjum.“
Salka Sól Eyfeld, söng-
og dagskrárgerðarkona
MC-ast á Paloma
„Í dag er ég að fara í mynda-
töku fyrir plötuumslagið
hjá Amaba Dama og í kvöld
er ég að syngja með RVK
Sound system á Paloma
svona MC-ast eins og það
kallast. Sunnudagurinn
verður bara tekinn rólega.“
Helgi Seljan,
dagskrárgerðarmaður
Nýtur leiðsagnar
dótturinnar
„Helginni ætla ég að eyða á
hestbaki og njóta leiðsagnar
dóttur minnar, stórknapans. Og
hugsa í leiðinni sterkt til Bjössa
míns og Hrefnu hans, sem ætla
að láta pússa sig saman í dag í
fjarveru minni. Sem verður jú
einhver veislan maður.“
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is