Fréttablaðið - 19.07.2014, Page 28

Fréttablaðið - 19.07.2014, Page 28
| ATVINNA | TANNLÆKNASTOFA Aðstoðarmann vantar á Tannlæknastofunni Vegmúla 2 í Reykjavík.Um er að ræða fullt starf. Vinnutíminn er til 17 virka daga. Vinsamlegast sendið umsóknir á box@frett.is merktar „Tannlæknastofa“ Um ós knafrestur e r til 31. júlí. FRAMLEIÐSLUSTJÓRI ÓSKAST Gæðabakstur/Ömmubakstur óskar eftir fram- leiðslustjóra til starfa sem fyrst. Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi í framtíðarstarf. Framleiðslustjóri sér um vöruþróun og daglegan rekstur á framleiðslustarfsemi fyrirtækisins. Þar fellur undir, verkstjórn, innkaup,starfsmannahald. Hæfniskröfur: • Menntaður bakari. • Námkvæmni og skipulögð vinnubrögð • Áreiðanleiki og frumkvæði • Hæfni í mannlegum samskiptum • Getu til að vinna undir álagi Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á villi@gaedabakstur.is fyrir 25.07.2014 Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Matreiðslumeistari Staða matreiðslumeistara við Áslandsskóla Hafnarfirði er laus til umsóknar. Allar upplýsingar um starfið veitir Leifur S. Garðarsson, skólastjóri í síma 664 5501, netfang leifur@aslandsskoli.is Sjá nánar á heimasíðu skólans. www.aslandsskoli.is Umsóknarfrestur er til og með 30. júlí 2014. Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. Fræðslustjórinn í Hafnarfirði Grindavíkurbær óskar eftir starfsmanni í þjónustumiðstöð Leitað er að metnaðarfullum og traustum einstakling sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum. Karlar sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Um framtíðarstarf er að ræða. Verksvið og ábyrgð • Starfsmaður er umsjónarmaður grænna- og opinna svæða • Yfirmaður vinnuskóla • Áætlunargerð og skipulagning • Viðhald með götugögnum • Umsjón með efnislosun og sorphirðu í bæjarlandinu auk ýmissar þjónustu við bæjarbúa vegna þessara verkefna • Bakvaktir skv. bakvaktarkerfi Þjónustumiðstöðvar. • Öll tilfallandi störf í þjónustumiðstöð, m.a. afleysingar á þjónustubifreið, snjómokstur ofl. Hæfniskröfur • Starfsreynsla æskileg sem nýst getur í starfi • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum • Tölvukunnátta í outlook, word og excel. • Bílpróf, og vinnuvélaréttindi • Rík þjónustulund við íbúa bæjarins • Lipurð í mannlegum samskipum Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja. Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst nk. Senda skal umsókn og starfsferilskrá til Sigmar B. Árnason byggingafulltrúa á bygg@grindavik.is , nánari uppl. í síma 420 110 Grindavíkurbær Jafnræði, jákvæðni, þekking, framsækni og traust Helstu verkefni: • Umsjón og daglegur rekstur á Avaya IP símstöð og öðrum símstöðvum Reykjavíkurborgar. • Umsjón og daglegur rekstur tæknirýma. • Ráðgjöf við hönnun á tölvu- og símalögnum í húsnæði á vegum borgarinnar. • Lágmörkun rekstrartruflana með skilgreindum vinnuaðferðum. • Samskipti við fjarskiptafyrirtæki og birgja. • Samskipti við starfsmenn og stjórnendur hjá borginni. • Þátttaka í stefnumótun. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi og/eða víðtæk reynsla. • Reynsla af rekstri símkerfa. • Reynsla af notendaþjónustu kostur. • Skipulagsfærni. • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. • Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund. • Góð færni í greiningu vandamála. Starfsmaður kerfisteymis upplýsingatæknideildar Upplýsingatæknideild Reykjavíkurborgar óskar eftir starfsmanni með reynslu af rekstri símstöðva í öflugan starfsmannahóp kerfisteymis deildarinnar. Boðið er upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni sem reyna á fagþekkingu, skipulagshæfni og sam- vinnu. Reykjavíkurborg rekur eitt viðamesta upplýsingatæknikerfi landsins og er í fremstu röð við innleiðingu nýrra lausna. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endur- spegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni. Skrifstofa þjónustu og reksturs Skrifstofa þjónustu og reksturs hefur yfirumsjón með og annast samræmingu á þjónustu borgarinnar, sérstaklega rafrænni þjónustu og þjónustu í framlínu borgarinnar. Skrifstofan ber ábyrgð á rekstri þjónustuvers, undir hana heyra skjalasafn Ráðhúss og skjalaver á Höfðatorgi sem og upplýsingatæknimál borgarinnar með tilheyrandi rekstri tölvubúnaðar, tæknilegu þróunarstarfi og hugbúnaðarþróun. Skrifstofan ber ennfremur ábyrgð á rekstri stjórnsýsluhúsa sem og mötuneyta Ráðhúss og Höfðatorgs. Á Skrifstofu þjónustu og reksturs starfa um 125 manns. Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar um starfið veita Tómas Guðmundsson, teymisstjóri eða Óskar J. Sandholt, skrifstofustjóri, í síma 4 11 1111. Við leitum að þjónustufulltrúum til starfa hjá okkur! Helstu verkefni eru upplýsingagjöf til ferðamanna, sala ferða, innritun farþega ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Góð enskukunnátta og þekking á Íslandi er nauðsynleg ásamt mikilli þjónustulund og sveigjanleika. Önnur tungumálakunnátta er kostur. Um er að ræða vaktavinnu. Sendu okkur umsókn á atvinna@grayline.is merkt „Þjónustufulltrúi“ fyrir 25. júlí 2014. Nánari upplýsingar gefur Guðný Erla Guðnadóttir, þjónustustjóri söluskrifstofu, í síma 660 1302 eða gudnyerla@grayline.is Gray Line Iceland er alhliða ferðaþjónustufyrirtæki og ferðaskrifstofa í örum vexti. Fyrirtækið kappkostar að veita góða og persónulega þjónustu við ferðamenn á Íslandi. Við leitum að drífandi einstaklingum sem vilja verða hluti af skemmtilegum hóp í góðu starfsumhverfi. Viltu vinna í ferðaþjónustu? Rekstrarstjóri á Norðurlandi 19. júlí 2014 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.