Fréttablaðið - 19.07.2014, Side 38
FÓLK|HELGIN
Það er aldrei ásættanlegt að skilja gæludýr eftir eitt þegar farið er í sumarfrí og
beinlínis ljótt að skilja dýr eftir
heima,“ segir Hallgerður Hauks-
dóttir, formaður Dýraverndarsam-
bands Íslands (DÍS).
Hallgerður bendir á nýja reglu-
gerð í dýraverndunarlögum þar
sem kveðið er á um að hundar
séu ekki skildir eftir einir lengur
en sex klukkustundir.
„Hundar eru mjög háðir
manninum og hluti af fjölskyldunni. Þeir
eru raunar eina dýrið sem er beinlínis til
fyrir tilstuðlan mannsins og hafa þróast
með honum frá því hann tók sér úlfa til
fylgdar fyrir þúsundum ára. Best er því
að skilja hunda eftir hjá fólki sem þeir
þekkja því hundar geta orðið miður sín
af hótelvist með vélrænni umönnun hjá
ókunnugu fólki.“
Öðru máli gegni um ketti. „Kettir vilja
helst vera heima hjá sér og á sínu yfir-
ráðasvæði. Ellegar geta þeir strokið við
fyrsta tækifæri. Best er að velviljaður vinur
búi hjá kisa meðan á fríinu stendur en þó
slyppi að sá hinn sami kæmi til að klappa
kettinum og gefa að morgni og horfði svo
til dæmis á sjónvarpið hjá kisa á kvöldin til
að halda honum félagsskap.“
SMÁDÝRAHÓTEL ÓSKAST
Hallgerður segir gæludýr hafa
ríka félagsþörf og því dugi ekki
eingöngu að fóðra dýrin.
„Gæludýrahald snýst ekki um
það eitt að halda dýrunum á lífi
heldur þarf að gefa sig að þeim
og hlúa að þeim. Því er áríðandi
í upphafi að gæludýraeigendur
geri sér grein fyrir hvað þeir
ætli að gera við dýr sín í
fríum.“
Á Íslandi skorti sár-
lega smádýrahótel og
dýravænni hótel en
tíðkast hafa.
„Smádýrum, eins og
hömstrum, músum,
naggrísum og fuglum,
er auðveldara að
koma í pössun því
þau ferðast um í
búrum sem eru í raun
heimili þeirra. Hins
vegar gefum við smá-
dýrum oft ekki nógu mik-
inn gaum og stundum eru
þau geymd og gleymd úti í horni,“
segir Hallgerður og nefnir naggrísi
og fugla sem dæmi um smádýr
sem fari illa út úr félagslegri van-
rækslu ef dýrin eru haldin ein.
„Þegar fugl er hávær og eigend-
urnir fara að breiða yfir búr hans
í tíma og ótíma er verið að mis-
nota nótt og dag fuglsins og valda
honum vanlíðan. Þá er kurteisara
gagnvart fuglinum að flytja hann í
næsta herbergi í bili. Það sama á
við naggrísinn sem er mikil félags-
vera og verður einmana án dag-
legra samskipta við manninn, getur veslast
upp af einsemd og hreinlega drepist.“
ALMENNINGI TREYST FYRIR DÝRAVERND
Samkvæmt nýjum lögum um dýravernd
er sú skylda lögð á fólki á herðar að það
kynni sér vel hvaða þarfir dýrið hefur og
sinni þeim.
Hallgerður segir erfitt að hafa eftirlit
með dýrahaldi á heimilum landsmanna.
„En á sama hátt og við treystum almenn-
ingi til að tilkynna illa meðferð á börnum
treystum við hinu sama þegar kemur að
vanrækslu dýra. Slíkt ber að tilkynna til
Matvælastofnunar (MAST) sem grennslast
þá fyrir um dýrin. Í slíkri tilkynningu felst
ekki ákæra heldur ábending og ósk um að
aðstæður dýrs séu kannaðar.“
Hún segir Íslendinga almennt vera góða
við gæludýr sín og þegar gæludýrum sé illa
sinnt sé yfirleitt pottur brotinn hjá
viðkomandi gæludýraeigendum,
andlega eða siðferðislega.
„Sem betur fer er fátítt að dýr
séu skilin eftir ein svo dögum
skiptir enda er það ill meðferð á
dýrum og byggir á mikilli vanþekk-
ingu. Því miður er eitthvað um
að dýr séu skilin eftir ein og
umkomulaus á heiðum þegar fólk
þarf að losa sig við þau og enn er
til í dæminu að fólk drekki dýrum
sínum. Það er með öllu ólöglegt
og hefur fólk hlotið dóm fyrir.“
Hallgerður segir búrfiska einu
gæludýrin sem geti verið ein svo
vel sé, með traustu matarskömmt-
unarkerfi.
„Þó ber að benda á þá skyldu að
vitja allra gæludýra. Margt getur
farið úrskeiðis, matarskammtari
getur stíflast og dæla bilað. Sé
ekki að gætt gætu allir fiskarnir
verið dauðir við heimkomu eig-
endanna. Það er ekki góð heim-
koma úr fríi.“
■ thordis@365.is
DÝR ÆTTI EKKI AÐ
SKILJA EFTIR HEIMA
HEIMILISDÝR Gæludýr geta ekki verið ein heima meðan húsbændurnir fara
burt í sumarfrí. Best er að fá velviljaða vini eða ættingja til að annast dýrin.
DÝRAVINUR
Hallgerður Hauks-
dóttir er formaður
Dýraverndarsam-
bands Íslands.
MYND/GVA
EINMANA
Hallgerður segir hunda
geta orðið taugaveiklaða
á hundahótelum með
vélrænni umönnun.
Dýrahjálp Íslands hjálp-
ar til við að miðla dýrum
og finna þeim nýtt heim-
ili ef eigendurnir flytjast
búferlum.
TEKK COMPANY OG HABITAT
KAUPTÚN 3
SÍMI 564 4400
VEFVERSLUN Á WWW.TEKK.IS
Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
Til í
fjórum
litum
WILBO frá Habitat
3ja sæta sófi 138.600 kr.
2ja sæta sófi 124.600 kr.
Stóll 87.500 kr.
BALTHASAR frá Habitat
3ja sæta sófi 156.000 kr.
2ja sæta sófi 139.200 kr.
Stóll 76.000 kr.
Ath. Öll birt verð eru afsláttarverð
ETHNICRAFT
SÓFUM
ÚTSA
LA!
ÚTSA
LA!
Til í
fjórum
litum
OAK SLICE
borðstofuborð.
Gegnheil eik.
90x180
125.300 kr.
ÖLLUM
BORÐSTOFU-
HÚSGÖGNUM
20-50
ALLRI
SUMARVÖRU
20-60
ÖLLUM
SÓFUM
20-50
30
20
30
Save the Children á Íslandi