Fréttablaðið - 19.07.2014, Page 44

Fréttablaðið - 19.07.2014, Page 44
19. júlí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 24 TEIKNAR ÞÚ FLOTTAR MYNDIR? Sendu okkur myndina þína í pósti til Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is Brandarar Að venju efna Borgarbókasafn og Reykjavík Bókmenntaborg til sumarlesturs á meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá les- endur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og skila í kassa sem eru í öllum söfnum Borgarbókasafns. Vikulega er dregið eitt nafn úr kassanum og Lestrarhestur vikunnar útnefndur, sem hlýtur bók að launum frá Forlaginu. Benedikt Þórisson 7 áraLestrarhestur vikunnar Hvenær byrjaðir þú að stunda hestamennsku? „Þegar ég var fjögurra ára byrj- aði ég af alvöru í hestamennsk- unni. Fjölskyldan mín er í hest- unum og ég byrjaði að ríða út alveg ein sex ára þegar ég fékk fyrsta hestinn minn, hann Síríus.“ Hvað heitir hesturinn þinn? „Hann heitir Sproti og er tólf vetra. Hann er algjört æði.“ Hvernig gekk á landsmótinu? „Mér gekk mjög vel á lands- mótinu– ég var í 3. sæti eftir milliriðla og fór þá beint í A-úrslit, en svo endaði ég í 6. sæti í úrslitum.“ Hvaða grein ætlar þú að keppa í á Íslandsmótinu? „Ég mun keppa á tveimur hest- um í fjórgangi og svo í töltinu líka.“ Hvað er erfiðast og skemmti- legast við hestamennskuna? „Það er eiginlega erfiðast að vera í burtu frá hestunum. Það skemmtilegasta við hesta- mennskuna er að vera innan um hestana, ríða út, kemba og hugsa um þá.“ Hver er skemmti- legasta gangteg- undin? „Mér finnst stökkið langskemmti legast.“ Ferðu í hestaferða- lög og hvernig er það? „Já, við ríðum mikið út í sveit- inni á sumrin og förum í hestaferð- ir, en svo er ég núna í sveit á Álfhólum hjá frænkum mínum og þá erum við stundum í hestaferðum og rekum hestana. Mér finnst það mjög skemmtilegt.“ Hversu mikið æfir þú þig fyrir keppni? „Ég æfi allan veturinn fyrir ýmis mót en sérstaklega æfi ég fyrir hvert og eitt mót, í svona sirka tvær vikur fyrir hvert.“ Hefurðu einhvern tíma lent í slysi á hestinum? „Já, ég var átta ára þegar ég datt af Síríusi, hestinum sem ég átti áður. Þá lenti ég beint á andlitinu og var í sex klukku- tíma á slysó eftir það. Það þurfti að sauma og hreinsa skurð sem ég fékk á andlitið og þurfti að kalla út lýtalækni svo þetta væri nógu vel gert, þetta var svo stórt sár. En það gekk allt vel og sést ekkert í dag.“ Ætlarðu að halda áfram að stunda hestamennskuna þegar þú eldist? „Já, að sjálfsögðu, þetta er svo skemmtilegt sport.“ Finnst stökkið langskemmtilegast Selma María Jónsdóttir er tólf ára og hefur stundað hestamennsku síðan hún var fj ögurra ára. Hún er þaulvanur keppnisknapi, keppti á Landsmóti hestamanna og æfi r nú af kappi fyrir Íslandsmót. HESTAKONAN Selma María veit ekkert skemmtilegra en hestamennskuna. MYND/ÚR EINKASAFNI Hvað er svart, hvítt, grænt, svart, hvítt? Tveir sebrahestar að slást um gúrku. Hvað er grænt og eldrautt? Mjög reiður froskur. Hvað er brúnt og svart og situr uppi í tré? Kúkur í leðurjakka. Hvað er gult, blátt og hvítt og situr uppi í tré? Hef ekki hugmynd en reynið að giska sjálf. Hvað er skemmtilegast við bækur? Að lesa þær og það er ekki erfitt nema þegar letrið er lítið. Hvaða bók lastu síðast og um hvað var hún? Sög- una um Svan. Bókin var skemmtileg, Svanur er góður strákur sem hjálpar öðrum. Hvaða bók lastu á undan? Sögur af Frans. Sú bók var aðeins léttari. Manstu eftir fyrstu bókinni sem var í uppáhaldi hjá þér? Bóbó bangsi, mamma og pabbi lásu hana mjög oft fyrir mig. Hvers lags bækur þykja þér skemmtilegastar? Ævintýrabæk- ur. Í hvaða skóla gengur þú? Austurbæjarskóla. Ferðu oft á bókasafnið? Já, nokkuð oft. Hver eru þín helstu áhugamál? Fótbolti, ég æfi með Val og er í sjöunda flokki. Ég fylgdist líka með heims- meistarakeppninni og hélt bæði með Argentínu og Þjóðverjum. Ertu búinn að lesa Móa hrekkju- svín: kúreki í Arisóna eftir Kristínu Helgu Gunnars- dóttur? Bara fyrsta kaflann. GÓÐIR BRÆÐUR Benedikt sjö ára og Bjartur fimm ára. Bragi Halldórsson 105 Á himninum sáu þau hóp af fuglum á flugi en þeir voru svo lagt í burtu að þeir voru bara sem svartir skuggar að sjá. „Skyldu einhverjir af þessum skuggum vera alveg eins?“ spurði Konráð. „Ég skal!“ gall í Róberti. „Ég er með svo góða sjón.“ Hann rýndi með haukfránum augum á fuglahópinn. „Búinn að sjá þetta, tveir eru alveg eins, en ég segi ykkur ekki hverjir, þið verðið að leysa þetta sjálf.“ Það urraði reiðilega í Kötu en hún sagði ekki neitt, heldur rýndi hún í fuglahópinn. Hún skyldi sjá hverjir væru eins og láta Róbert ekki komast upp með þetta mont. Getur þú séð hvaða tveir fuglar eru alveg eins?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.