Fréttablaðið - 19.07.2014, Side 56

Fréttablaðið - 19.07.2014, Side 56
19. júlí 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 36 MMA „Þetta eru búnir að vera fínir dagar hérna. Þetta er mitt annað heimili enda hef ég verið mikið í Dublin. Ég er búinn að vera hérna í þrjár vikur og það er þægilegt að þurfa ekki að fljúga eitthvert viku fyrir bardaga,“ segir Gunnar Nel- son en hann var einstaklega yfir- vegaður og afslappaður að venju er Fréttablaðið hitti á hann. Gunnar er ósigraður í þrettán bardögum en bardaginn í kvöld gegn Zak Cummings verður hans fjórði bardagi í UFC. Hann verð- ur á heimavelli í kvöld enda elska Írarnir Gunnar og segjast hafa ættleitt hann. „Ég á mikið af góðum vinum hérna og hef keppt hér margsinnis. Það verða örugglega svolítil læti í höllinni. Miðað við fyrri reynslu þá eru írsku áhorfendurnir alveg klikkaðir. Ég hugsa að þakið fari af húsinu,“ segir Gunnar en hann segir stemninguna hjálpa sér. „Ég finn alveg fyrir stemning- unni og heyri lætin. Fyrst þegar ég kom í UFC þá var sérstaklega mikill kraftur í áhorfendum enda munar þúsund á fólki í húsinu. Ég finn fyrir þessu en um leið og ég er byrjaður í bardaganum þá heyri ég voðalega lítið nema í þjálfaranum mínum.“ Ferillinn í húfi hjá Cummings Andstæðingur kvöldsins er 29 ára gamall Bandaríkjamaður. Hann hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á Gunnari en engu að síður muni Gunnar ekki fá neitt ókeypis frá honum í kvöld. „Þetta er sterkur gæi og hrika- lega reyndur. Ég ber líka virðingu fyrir honum. Hann er góður alls staðar en kannski bestur í stand- andi glímu. Ég hlakka til að djöfl- ast í honum. Ég mun fara eins í þennan bardaga og alla hina. Ég bregst bara við því sem gerist. Mér er eiginlega sama hvert bar- daginn fer en þeir vilja oft enda í jörðinni hjá mér,“ segir Gunnar en menn segja að tapi Cummings í kvöld þá sé ferli hans lokið. Hann mun því selja sig dýrt. „Það er svo sem alltaf í þessu. Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is Frá Dublin Mér er eiginlega sama hvert bardaginn fer en þeir vilja oft enda í jörðinni hjá mér. Gunnar Nelson Írarnir alveg klikkaðir Gunnar Nelson er öruggur og yfi rvegaður að venju fyrir bardaga kvöldsins í Dyfl inni. Hann fær mikinn stuðning frá heimamönnum og Gunnar segir góðar líkur á því að bardaginn klárist í fyrstu lotu. Svo þegar komið er í bardagann er þetta alltaf ákaflega svipað hjá mönnum sem eru í þessum gæðaflokki. Þetta snýst alltaf um hversu vel menn hafa æft og hversu vel kollurinn er skrúfaður á þig.“ Ég er bara svona Eitt af einkennum Gunnars er þessi ótrúlega yfirvegun sem hann sýnir. Er hann eins rólegur og yfir- vegaður og hann lítur út fyrir að vera? „Ég veit það ekki. Ég hef aldrei verið neinn annar en ég sjálfur. Ég er bara svona. Stundum er ég mjög æstur ef ég er að æfa og í einhverj- um spenningi. Það er mismunandi hvernig fólk er dagsdaglega en ég er bara svona.“ Veðbankar spá Gunnari örugg- um sigri en sér Gunnar fyrir sér að þessi bardagi endi í fyrstu lotu eins og margir af bardögum hans? „Ég hugsa að það séu góðar líkur á því en síðan verður það að koma í ljós. Menn eru misjafnir og svo er mismunandi hvernig menn henta hver öðrum. Þetta gæti orðið langur og erfiður bardagi og hann gæti líka orðið mjög stuttur,“ segir Gunnar og bætir við að hann hafi aldrei verið í eins góðu formi enda æft hrikalega vel síðustu vikur. SPORT Á VETTVANGI Bardagi Gunnars fer fram í O2-höllinni í Dyflinni. Okkar maður er klár í slaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/FRIÐRIK Kapparnir 20 sem keppa á UFC- bardagakvöldinu í Dyflinni í kvöld voru vigtaðir í O2-höllinni í gær fyrir framan 5.000 manns. Mikil stemning var í salnum enda margir Írar sem berjast. Gunnar 170,5 pund | 77,1 kíló Zak Cummings mótherji Gunnars í kvöld 171 pund | rétt ríflega 77,5 kíló Kapparnir mega vera 77,5 kíló í veltivigtinni GUNNAR NÁÐI RÉTTRI VIGT Betra verð allt árið Sjö golfhótel í boði í grennd við Gatwick. Sendið okkur fyrirspurn á bse@mi.is eða hringið í 896-2245. Skoðið heimasíðu okkar www.betriferdir.is London Golf 5 stjörnur í gistingu, fæði og ótakmörkuðu golfi 11 dagar 30. sept – 11. okt. Fararstjóri Björn Eysteinsson. 10 dagar 11. okt. – 21. okt. Fararstjóri Jón Karlsson, golfkennari, sem býður upp á kennslu allan tímann. Skoðið og bókið á www.betriferdir.is La Sella***** hverja til lögu að hönnun Óðinstorgs. Greitt verður aukalega fyrir verðlaunatillögur, kr. 500.000 fyrir Laugaveg og kr. 350.000 fyrir Óðinstorg. Í hverju teymi skal a.m.k vera einn lands- lags arki tekt og einn arki tekt, sem hafa leyfi til að skila inn sér upp drátt um. Hvatt er til þver fag legr ar sam vinnu og þætti já kvætt að aðrir hönn uðir kæmu að gerð til lagna. Fag leg starfs reynsla tveggja aðal manna teymis skal ekki vera minni en 5 ár, hvor um sig. Allt að 6 teymi munu verða valin úr þessum hópi. Ung- um og óreynd ari hönn uðum er gefið tæki færi til þátt töku, en tvö teymi verða dregin úr potti þeirra sem ekki upp fylla 5 ára starfs reynslu. Sam setn ing þeirra skal vera sú sama og kveðið er á um hér að ofan. Lyst hafendur fari inn á vefi nn reykjavik.is/ hönnunarsamkeppni og nái í og fylli út eyðu- blað á PDF formi, þar sem spurt er um fyrri verk efni og reynslu. Eyðu blaðið sendist síðan út fyllt sem við hengi á net fangið skipulag@ reykjavik.is fyrir 15. ágúst n.k. Nánari upp lýs- ingar á ofan greindu vef svæði. Stefnt er að því að keppnis lýsing og nán ari keppnis gögn verði gerð að gengi leg fyrir völd teymi á vefnum hugmyndasamkeppni.is 15. september nk. Hönnunar- samkeppni um Laugaveg og Óðinstorg – forval Reykjavíkurborg, í samvinnu við Félag ís- lenskra lands lags arki tekta (FÍLA), aug lýsir eftir hönn uð um til að taka þátt í for vali vegna hönn un ar sam keppni um endur gerð á yfir- borði tveggja svæða í Reykja vík, annars vegar Lauga vegar milli Snorra brautar og Skóla vörðu- stígs og hins vegar Óðinstorgs. Við fangs efni hönn unar sam keppn inn ar er að hanna svæði fyrir al menn ing sem endur spegli bæði góðan borgar brag og verði vett vangur fjöl breytts mann lífs, þar sem aukin áhersla er lögð á gang andi og hjól andi um ferð auk góðs að gengis fyrir alla. Valdir verða allt að 8 hópar til þátt töku og mun verða greiddar kr. 850.000 fyrir hverja til lögu að hönnun Lauga vegar og kr. 600.000 fyrir Sn or ra br au t Sk óla vö rð us tíg ur Sk óla vö rð us tíg ur Njálsgata Njálsgata Vi ta st íg urF ra kk as tíg ur Ó ði ns ga ta Be rg st að as træ ti Hverfisgata Hverfisgata Kl ap pa rs tíg ur B ar ón ss tíg ur Óðinstorg Laugavegur Laugavegur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.