Fréttablaðið - 19.08.2014, Blaðsíða 4
19. ágúst 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
7.356 svartbakar voru skráðir í veiði-
skýrslur árið 2012
en mesta skráð veiði á þessari
tegund var árið 1995 eða 35.787
fuglar.
NÁTTÚRA Verndarsjóður villtra
laxastofna, NASF, hefur óskað
eftir því við Sigurð Inga Jóhanns-
son umhverfisráðherra að óháð
rannsókn verði tafarlaust gerð á
fiskeldi á Vestfjörðum. Tilefnið er
slysaslepping úr kvíum Fjarðalax
í Patreksfirði, og að í sumar hefur
eldisfiskurinn veiðst í sjó, árósum
og ám vestra.
Orri Vigfússon, sem skrif-
ar bréfið fyrir
h ö nd N A S F,
segir að upplýs-
ingum um slysa-
sleppinguna, og
almennt um fisk-
eldi á svæðinu,
sé ekki treyst-
andi. „Nú þegar
er langt komið
með að veiða 200 laxa við og í
nálægum ám og að sögn heima-
manna sjást ennþá laxatorfur í
sjónum. Það eru því nægar vís-
bendingar um að umhverfisskað-
inn hlýtur að hafa verið miklu
meiri en fram hefur komið,“ skrif-
ar Orri.
Fiskistofa heimilaði 17. júlí neta-
veiðar á laxi undir eftirliti í Pat-
reksfirði til að freista þess að ná
eldislöxunum sem sluppu úr eld-
iskvíum Fjarðalax í nóvember.
Árangur netaveiðanna er lítill, en
Guðni Magnús Eiríksson, sviðs-
stjóri á lax- og silungsveiðisviði
Fiskistofu, telur líklegt að alls hafi
veiðst á annað hundrað laxar á síð-
ustu vikum, mest á stöng. Veiði-
málastofnun erfðagreindi 21 lax
sem hafði veiðst í ferskvatni fyrir
Fiskistofu og enginn vafi leikur á
því að um eldislax úr slysaslepp-
ingunni er að ræða. Það sem talið
er alvarlegast er að laxarnir sýndu
merki þess að þeir væru kynþroska
og Veiðimálastofnun staðfestir að
laxarnir voru af tegund norskra
eldislaxa.
Upphaflega gerði Fjarðalax ráð
fyrir því að 200 laxar hefðu slopp-
ið, eins og Fréttablaðið greindi frá
á sínum tíma. Spurður hvort van-
mat hafi verið um að ræða segir
Guðni Magnús að svo virðist vera.
Hann hafi fengið þau svör frá fyr-
irtækinu að laxarnir hafi verið allt
að 500 talsins, en fleiri geti laxarn-
ir ekki hafa verið er mat Fjarða-
laxmanna þar sem slátrun úr sjó-
kvínni var að ljúka.
Guðni segir sleppinguna líklega
vera bundna við þennan tiltekna
atburð. „En ef við horfum til lengri
tíma þá er fyrirhugað að byggja
upp mikið fiskeldi og þar geta orðið
óhöpp. Þessu er tekið mjög alvar-
lega hér,“ segir Guðni.
svavar@frettabladid.is
Ráðherra krafinn um rann-
sókn á fiskeldi á Vestfjörðum
Fjöldi þeirra eldislaxa sem sluppu úr sjókví Fjarðalax í nóvember virðist hafa verið vanáætlaður. Taldir hafa
verið 500 en ekki 200 eins og upphaflega var sagt. Ráðherra er beðinn um að hefja óháða rannsókn vestra.
Í PATREKSFIRÐI Við Ósá, sem einnig er nefnd Botnsá, hafa veiðst á annað hundrað eldislaxar. MYND/ORRI
ORRI VIGFÚSSON
Jónatan Þórðarson, eldisstjóri Fjarðalax, sagði í viðtali við Fréttablaðið
1. apríl að 200 laxar hefðu sloppið og það væri vitað mjög nákvæmlega.
Hann sagði umræðuna um hættu á erfðamengun frá norska eldiskyninu
á villigötum og hættuna á erfðamengun hverfandi litla, enda væri
fiskurinn ókynþroska. Hann taldi víst að fiskurinn dræpist í sjó, enda yrði
eldiskynið svo seint kynþroska að hann myndi aldrei ganga í laxveiðiá
fyrr en mörgum árum eftir að hann sleppur. Líkurnar á að hann dræpist í
millitíðinni væru yfirþyrmandi miklar.
Jónatan segir í viðtali við Fréttablaðið að þróunin hafi komið á óvart.
Hins vegar sé enginn villtur lax á því svæði sem eldislaxinn kom fram
og því hætta lítil.
REIKNAÐ MEÐ AÐ LAXINN DRÆPIST Í HAFI
LEIÐRÉTTING
Ranglega var sagt í Fréttablaðinu í
gær að skuldir spænska ríkisins væru
milljarður evra. Þær eru miklu meiri en
það því þær fóru yfir billjón evrur. Það
er að segja 1.000.000.000.000 evrur.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
BRETLAND „Þetta var nú allt saman hálfgerður
misskilningur,“ segir Kristinn Hrafnsson, tals-
maður Wikileaks, um fréttir þess efnis að Juli-
an Assange væri farinn að hugsa sér til hreyf-
ings úr sendiráði Ekvadors í London.
„Hann var að svara spurningum sem sneru
að einhverjum orðrómi sem komst á flot í gær-
kvöldi og nótt um að hann ætlaði að gefa sig
fram við lögreglu í dag [í gær]. Það var enginn
fótur fyrir því,“ segir Kristinn.
Sjálfur hafi Kristinn svo fengið spurningar
snemma í gærmorgun um það hvort Assange
væri tilbúinn til þess að yfirgefa sendiráðið.
„Ég gat ekki svarað öðru vísi en þannig að hann
væri auðvitað tilbúinn til þess hvenær sem er, og
það helst sem fyrst. En það getur náttúrlega ekki
gerst nema að breyttum forsendum, þannig að
Bretar fari að virða það hæli sem búið er að veita
Julian í samræmi við alþjóðasamninga.“
Tilefni blaðamannafundarins með Julian
Assange, sem haldinn var í sendiráði Ekvadors
í London í gærmorgun, hafi fyrst og fremst
verið það að tvö ár voru um helgina liðin síðan
Ekvador veitti Assange hæli. Ricardo Patino,
utanríkisráðherra Ekvadors, hafi verið stadd-
ur í London og því tekið þátt í fundinum til að
ítreka stuðing Ekvadors við Assange.
gudsteinn@frettabladid.is
Kristinn Hrafnsson blæs á orðróm um að Julian Assange hafi ætlað að gefa sig fram við lögreglu í gær.
Fréttir af Assange voru misskilningur
Í SENDIRÁÐI EKVADORS Ricardo Patino, utanríkis-
ráðherra Ekvadors, ásamt Julian Assange á blaða-
mannafundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
BJARTVIÐRI VÍÐAST HVAR Á LANDINU NÆSTU DAGA og fremur hægur vindur.
Hiti verður með ágætum í innsveitum og þar sem skjóls nýtur en nokkuð svalara með
ströndum.
12°
7
m/s
11°
4
m/s
12°
3
m/s
11°
7
m/s
Strekkings-
vindur með
S-ströndinni
annars
hægari.
Hæg breyti-
leg átt, stífari
vindur með
A-ströndinni.
Gildistími korta er um hádegi
26°
33°
18°
21°
21°
20°
21°
19°
19°
27°
18°
31°
31°
31°
24°
19°
16°
20°
16°
2
m/s
12°
3
m/s
13°
2
m/s
11°
3
m/s
16°
3
m/s
15°
5
m/s
11°
4
m/s
13°
13°
10°
10°
13°
12°
9°
9°
9°
10°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN
ÚTIVIST Gönguhópur Blindra-
félagsins stóð fyrir afmælis-
göngu á Akrafjall síðastliðinn
sunnudag. Blindrafélagið, sem
fagnar 75 ára starfsafmæli sínu
í vikunni, og Akraneskaupstaður
stóðu sameiginlega að göngunni
og var markmiðið að vinna gegn
staðalímynd blindra og sjón-
skertra, samkvæmt frétt Akra-
nes.is.
Blindrafélagið lagði til sjón-
skerðingar-hermigleraugu. Með
þau á nefinu fengu sjáandi göngu-
garpar smá hugmynd um hvernig
það er að vera sjónskertur og
þurfa að fóta sig á fjalli. - fb
Blindir og sjáandi í samfloti:
Afmælisganga
á Akrafjall
VIÐSKIPTI Jón Sigurðsson, fyrr-
verandi forstjóri FL Group, gefur
kost á sér í stjórn N1 á hluthafa-
fundi sem fram fer á morgun. Jón
gaf kost á sér til setu í stjórninni
fyrir aðalfund.
Kauphöllin taldi vafa leika á
hæfi Jóns til setu í stjórn félaga
með skráða fjármálagerninga og
dró hann því framboð sitt til baka
fyrir síðasta aðalfund félagsins.
Í bréfi til stjórnarformanns
vegna framboðsins nú segir
Jón að Kauphöllin hafi nú stað-
fest við hann að hún muni ekki
gera athugasemdir við framboð
hans eða setu í stjórn félaga með
skráða fjármálagerninga. - jhh
Stjórnarkjör í N1 í vikunni:
Jón Sigurðsson
gefur kost á sér