Fréttablaðið - 19.08.2014, Qupperneq 43
ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 2014 | LÍFIÐ | 27
Kíkið inná:
heklanotadirbilar.is
GÓÐIR, NÝLEGIR,
TRAUSTIR
GÆÐABÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
VW Touareg V6 TDi
Ásett verð:
4.790.000
VW Golf TDi Trendl.
VW Golf Trendline TDi
MM Colt AT
Ásett verð: 2.790.000
Ásett verð: 2.390.000
Ásett verð: 750.000
VW Bjalla Design 160 hö
VW Passat Alltrack
4Motion
Ásett verð: 3.990.000
Ásett verð: 5.990.000
VW Polo 1.4 Comfortl. AT
Kia Cee’d EX Sport Toyota Auris Terra
Ásett verð: 2.340.000
Ásett verð: 2.890.000 Ásett verð: 1.490.000
Komdu og
skoðaðu úrvalið!
Skoda FabiaAmb. 1.6 TDi
Ásett verð: 2.690.000
„Pælingin er að þegar þú labbar inn þá sértu kominn til Hawaii,“ segir
Jóel Briem en hann vinnur nú að því að opna staðinn
Bar Ananas á Klapparstíg þar sem Café List var
áður til húsa.
„Hugmyndin kviknaði þegar ég og Stulli
sátum og drukkum kokkteil,“ segir Jóel en
þá vísar hann til Einars Sturlu Moinichen.
Félagarnir eru vanir menn í veitinga-
rekstri og mun nýi staðurinn fara undir
hatt Bar Co, samsteypu sem á nokkra
skemmti- og veitingastaði í Reykjavík og
snýst um að halda stöðunum við og í góðu
ástandi. Nýi staðurinn er þó ögn öðruvísi en
gengur og gerist í Reykjavík þar sem staðurinn
er fyrsti strandbar Íslandssögunnar og mun
þemað vera ananas.
„Það mun allt tengjast ananas, ananasljós,
ananaskokteilar, allt út í ananas,“ segir Jóel
og hlær en hann er með góðan hóp lista-
manna að endurgera staðinn þessa dagana.
„Össi 7berg er að mála fyrir okkur ásamt
ástralska listamanninum Guido og hún
Skugga líka,“ segir Jóel. „Það er rosalega
góður hópur sem kemur að þessu og allir að
vinna að þessu konsepti.“
Fyrsti strandbarinn
Jóel Briem vinnur nú að því að opna Bar Ananas.
„Ég er búin að vera rosalega lengi
að koma plötunni frá mér,“ segir
Halla Norðfjörð en hún gefur út
sína fyrstu sólóplötu í dag sem ber
nafnið The Bridge. Varðandi tón-
listarstefnu segir Halla erfitt að
flokka plötuna. „Ég hef heyrt alls
konar pælingar, til dæmis álfa-
fólktónlist,“ segir Halla og hlær.
„Ætli þetta sé ekki bara einhvers
konar melankólísk fólktónlist.“
Halla hefur meira og minna
verið í tónlist allt sitt líf en hún
byrjaði að spila á píanó þegar hún
var þriggja ára. „Ég söng líka
alltaf í laumi,“ segir tónlistarkon-
an sem hætti síðan í píanónámi
þegar hún var átta ára. „Ég byrjaði
síðan aftur þegar ég var átján ára
í píanói við FÍH og söng við Söng-
skóla Sigurðar Demetz.“
Halla kenndi sér hins vegar sjálf
að spila á gítar og snertir á ýmsum
strengjahljóðfærum en hún spilar
meðal annars á mandólín og litla
hörpu á nýju plötunni. „Ég hef
stundum heyrt að ég sé með svo-
lítið öðruvísi stíl á gítarinn, en það
er örugglega þannig þegar maður
lærir sjálfur,“ segir hún. „Þá spil-
ar maður bara það sem maður
heyrir í hausnum og finnur út úr
því.“
Halla heldur útgáfutónleikana á
Café Rosenberg í kvöld og er það
Svavar Knútur sem hitar upp fyrir
tónlistarkonuna.
- bþ
Kenndi sér
sjálf á gítar
Halla Norðfj örð gefur út sína fyrstu sóló-plötu í dag
og blæs til útgáfutónleika á Café Rosenberg í kvöld.
SÖNG Í LAUMI Halla Norðfjörð hefur verið að syngja síðan hún var þriggja ára.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Ég hef stundum
heyrt að ég sé með
svolítið öðruvísi stíl á
gítarinn, en það er
örugglega þannig þegar
maður lærir sjálfur.