Fréttablaðið - 27.08.2014, Síða 8

Fréttablaðið - 27.08.2014, Síða 8
27. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR LEKAMÁLIÐ | 8 PI PA R\ TB W A A BW A R\ TB IP A R PI •• SÍ A SÍ A S • 14 2 3 8 5 8 5 4 2 3 8 1 4 Skeifunni 11B • Reykjavík • Sími 519 7550 • promennt@promennt.is • promennt.is TÖLVUNÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR OG 60+ Sími 519 7550 Námskeið sérsniðið fyrir byrjendur og lítt vana tölvunotendur. Hæg yfirferð með reglulegum upprifjunum og endurtekningum í umsjá þolinmóðra kennara. Í lok námskeiðs eiga þátttakendur að vera færir um að skrifa texta í Word ritvinnslu- forritinu, setja hann snyrtilega upp og prenta, nýta sér internetið og meðhöndla tölvupóst. Einnig er kennt á ýmsa samskiptamiðla eins og Facebook. VIÐFANGSEFNI • Windows – Grunnatriði tölvunnar • Æfingar í að skrifa texta í tölvu og prenta út (ritvinnsla í Word) • Internetið til gagns og gamans • Upplýsingaleit og vinnsla á internetinu • Tölvupóstur. Æfingar í að senda og taka á móti tölvupósti (viðhengi o.fl.) • Facebook og Skype fyri þá sem vilja og hafa áhuga Hefst: 9. sept. • Lýkur: 30. sept. • Kennt: þri. og fim. (sjö skipti) kl. 13–16 Verð: 34.900 kr. Kennsluhefti á íslensku innifalið. Vinsælt og gagnlegt námskeið þar sem tekið er fyrir það helsta sem almennir notendur þurfa að kunna um stafrænar myndavélar. Yfirfærsla mynda í heimilistölvuna, skipulag myndasafns, einfaldar lagfæringar, myndir prentaðar og sendar í tölvupósti. Hefst: 2. okt. • Lýkur: 14. okt. • Kennt: þri. og fim. (fjögur skipti) kl. 13–16 Verð: 24.900 kr. Kennsluhefti á íslensku innifalið. TÖLVUNÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR OG 60+ STAFRÆNAR MYNDAVÉLAR OG TÖLVAN 60+ Formenn stjórnarflokkanna, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson, bera enn traust til Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur. Þeir vilja ekki taka afstöðu til þess hvort eðlilegt hafi verið að innanríkisráðherra hafi hlutast til um rannsókn lögreglu á ráðuneyti sínu. Sigmundur Davíð segist enn bera traust til Hönnu Birnu meðan hún gegni embætti innanríkisráðherra. „Hún hefur einnig gefið það út að hún sjálf sé að kanna stöðu sína sem ráðherra og hún hefur fullt ráðrúm til að meta það.“ Bjarni Benediktsson telur málið erfitt fyrir Hönnu Birnu en átelur þau vinnubrögð umboðsmanns Alþingis að gera bréf sitt til innan- ríkisráðherra opinbert. „Það er ekki venjan að umboðsmaður deili bréfum sínum til stofnana með fjöl- miðlum, það er langt frá því að vera vanalegt.“ Spurður hvort Hanna Birna hafi glatað trausti almenn- ings segir hann: „Það dylst engum að þetta mál hefur verið ráðherr- anum erfitt en ég get að öðru leyti ekki tjáð mig um álit almennings enda veit það enginn.“ - sa Forystumenn stjórnarandstöðunnar telja Hönnu Birnu þurfa að segja af sér: Faglegri stjórnsýslu ábótavant GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON BIRGITTA JÓNSDÓTTIR Formenn stjórnarflokkanna, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson, bera enn traust til Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur. Þeir vilja ekki taka afstöðu til þess hvort eðlilegt hafi verið að innanríkisráðherra hafi hlutast til um rannsókn lögreglu á ráðuneyti sínu. Sigmundur Davíð segist bera traust til Hönnu Birnu meðan hún gegni embætti innanríkisráðherra. „Hún hefur einnig gefið það út að hún sjálf sé að kanna stöðu sína sem ráðherra og hún hefur fullt ráðrúm til að meta það,“ segir for- sætisráðherra. Bjarni Benediktsson telur málið hafa verið erfitt fyrir Hönnu Birnu og átelur þau vinnubrögð umboðs- manns Alþingis að gera bréf sitt til innanríkisráðherra opinbert. „Það er ekki venjan að umboðsmaður deili bréfum sínum til stofnana með fjölmiðlum, það er langt frá því að vera vanalegt.“ Þegar hann er spurður að því hvort hún hafi glatað trausti almennings „Það dylst engum að þetta mál hefur verið ráðherran- um erfitt en ég get að öðru leyti ekki tjáð mig um álit almennings enda veit það enginn.“ - sa Formenn stjórnarflokkanna telja málið hafa skaðað Hönnu Birnu pólitískt: Hanna Birna nýtur enn trausts SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON Telur innanríkisráðherra njóta trausts. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra telur lekamálið vera moldviðri og skoðar nú sína pólitísku framtíð eftir að umboðs- maður Alþingis sendi ráðherra bréf, þriðja sinni, um embættis- færslur ráðherrans í lekamálinu. Umboðsmaður kannar nú hvort stórvægileg mistök eða afbrot stjórnvalds hafi átt sér stað hvað varðar störf ráðu neytis innan- ríkismála. Í kjölfar bréfs umboðs- manns sendi Hanna Birna frá sér yfirlýsingu þar sem hún gagnrýn- ir harðlega störf umboðsmanns Alþingis. Í bréfi umboðsmanns Alþingis er ítarlega farið yfir samskipti innanríkisráðherra eða starfs- manna ráðuneytisins við lögreglu- yfirvöld þar sem hlutast er til um rannsókn lögreglu á starfsemi ráðuneytisins. Þar kemur fram að Hanna Birna hafi tilkynnt Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra að hún vildi kanna þann möguleika hvort ráðuneytið þyrfti að rannsaka rannsókn lögreglu. Þetta segir Hanna Birna vera alrangt í við- tali við Gunnar Atla Gunnarsson í þættinum Ísland í dag. „Ég er þeirrar skoðunar að allt þetta mál, líka hvernig stjórnkerf- ið taki á máli af þessu tagi, þurfi að skoða sérstaklega. Ég hef aldrei hótað lögreglurannsókn heldur að stjórnmálin þurfi að skoða þessi mál. Rannsókn þýðir það að við sem erum í Stjórnarráðinu þurfum að vinna með það þegar ráðuneyti og ráðherrar eru kærðir.“ Hanna Birna ítrekar að ríkis- saksóknari hafi talið rannsókn lögreglu vera faglega og hafna yfir vafa miðað við aðstæður. „Það liggur fyrir að það fór fram ákveðin rannsókn. Það liggur fyrir að ríkissaksóknari hefur ákveðið að ákæra í málinu. Það eitt segir okkur að ríkissaksóknari taldi rannsóknina fullkomlega eðlilega, frambærilega og góða eins og hún átti að vera,“ segir Hanna Birna. „Mér finnst í þessu máli ítrek- að verið að fella dóma án þess að dómar liggi fyrir.“ Innanríkisráðherra ítrekaði í þættinum að hún hefði ekki á nokkurn hátt haft bein afskipti af rannsókn málsins. Þrátt fyrir þau orð innanríkisráðherra er farið ítarlega yfir það í bréfi umboðs- manns að samskipti innanríkis- ráðuneytisins eða starfsmanna þess hafi verið nokkuð fjölbreytt meðan á rannsókn málsins stóð. Þar er haft eftir lögreglustjóra að ráðherra hafi oft gagnrýnt fram- vindu rannsóknar lögreglustjóra. Hanna Birna telur að hún eigi fullt erindi í íslensk stjórnmál. „Það er auðvitað þannig að stjórn- málamaður veltir fyrir sér að segja af sér embætti ef hann hefur ekki gert neitt rangt. Ég hef ekki brotið af mér með neinum hætti. Ég hef ekki gert neitt sem sam- viskan mín segir mér að ég hafi gert rangt.“ „Ég mun ekki segja af mér embætti fyrir eitthvað moldviðri í kringum mál sem er sannarlega óheppilegt“, sagði Hanna Birna. sveinn@frettabladid.is Finnst lekamálið pólitískt moldviðri Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra metur nú framtíð sína í stjórn- málum í kjölfar bréfs umboðsmanns Alþingis. Í bréfinu er ítarlega greint frá sam- skiptum lögreglustjóra og innanríkisráðherra meðan á rannsókn lekamálsins stóð. Mér finnst í þessu máli ítrekað verið að fella dóma án þess að dómar liggi fyrir. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra ALVARLEGAR ÁSAKANIR Hanna Birna Kristjánsdóttir svaraði fyrir samskipti sín við Stefán Eiríksson í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.