Fréttablaðið - 27.08.2014, Síða 18

Fréttablaðið - 27.08.2014, Síða 18
 | 2 27. ágúst 2014 | miðvikudagur EFNAHAGSMÁL Jón Hákon Halldórsson | jonhakon@frettabladid.is Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á Miðvikudagur 27. ágúst ➜ Hagstofan – Vísitala neyslu- verðs í ágúst 2014 ➜ Reginn – Uppgjör 2. ársfjórð- ungs ➜ Arion banki – Uppgjör 2. árs- fjórðungs Fimmtudagur 28. ágúst ➜ N1 – Uppgjör 2. ársfjórðungs ➜ Hampiðjan – Sex mánaða upp- gjör ➜ Reykjavíkurborg – Árshluta- reikningur birtur ➜ TM – Uppgjör 2. ársfjórðungs ➜ Hagstofan – Nýskráningar og gjaldþrot fyrirtækja ➜ Eimskip – Uppgjör 2. ársfjórð- ungs ➜ Skipti – Sex mánaða uppgjör Föstudagur 29. ágúst ➜ Hagstofan - Vísitala fram- leiðsluverðs í júlí 2014 ➜ Spölur – Sex mánaða uppgjör ➜ Hagstofan – Fjármál ríkissjóðs á greiðslugrunni Mánudagur 1. september ➜ Hagstofan - Þjónustuviðskipti við útlönd Þriðjudagur 2. september ➜ Seðlabanki Íslands - Greiðslu- jöfnuður ➜ Seðlabanki Íslands - Erlend staða þjóðarbúsins og erlendar skuldir Miðvikudagur 3. september ➜ Þjóðskrá - Fasteignamarkaður- inn í mánuðinum eftir lands- hlutum DAGATAL VIÐSKIPTALÍFSINS Hagnaður af rekstri Vátrygg- ingafélags Íslands hf. á fyrri helmingi ársins dróst saman um rúmlega helming frá því í fyrra. Hagnaðurinn nam nú 451 milljón króna samanbor- ið við 1.094 milljónir á sama tímabili árið 2013. Hagnaður- inn á öðrum ársfjórðungi nam 464,9 milljónum borið saman við 383,4 milljónir á öðrum ársfjórðungi á síðasta ári. „Rekstur félagsins gekk ágætlega á öðrum ársfjórð- ungi. Iðgjaldatekjur jukust frá fyrsta fjórðungi og voru litlu minni en á sama fjórðungi í fyrra. Tjónaþunginn var nokk- uð minni en á fyrsta fjórð- ungi,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS. Sigrún segir þróun á fjár- málamörkuðum á tímabilinu hafa leitt af sér að ávöxtun af fjárfestingasafni félagsins á fyrri helmingi ársins hafi verið undir væntingum stjórn- enda og verulega lakari en árið 2013. „Þann 6. júlí síðastliðinn varð stór bruni í Skeifunni í Reykja- vík sem olli miklu eignatjóni. Áætlað er að áhrif þessa tjóns á eigin tjónakostnað VÍS verði um 250 milljónir króna eða sem nemur um tveimur prósentum af eigin tjónakostnaði ársins 2013,“ segir Ragna. - fbj Bruninn í Skeifunni nemur tveimur prósentum af tjónakostnaði ársins 2013: Hagnaður VÍS dregst saman BRUNINN HAFÐI ÁHRIF Hagnaður VÍS dróst saman um helming á fyrri árs- fjórðungi frá því á sama tíma í fyrra. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t ok tó be r– de se m be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting Bank Nordic (DKK) 109,00 -16,2% 0,0% Eimskipafélag Íslands 222,50 -15,1% -1,3% Fjarskipti (Vodafone) 32,50 19,3% -2,3% Hagar 44,40 15,6% 2,5% Icelandair Group 17,45 -4,1% -6,9% Marel 102,50 -22,9% 0,0% N1 16,70 -11,6% 0,3% Nýherji 4,75 30,1% 10,5% Reginn 15,65 0,6% 1,0% Tryggingamiðstöðin* 24,00 -25,1% 0,0% Vátryggingafélag Íslands** 8,23 -23,7% -1,4% Össur 325,00 41,9% 1,2% HB Grandi 30,00 8,3% 0,0% Sjóvá 11,95 -11,5% 1,8% Úrvalsvísitalan OMXI6 1.135,29 -9,9% -1,8% First North Iceland Century Aluminum 1. 150,00 0,0% 0,0% Hampiðjan 20,90 57,7% 4,5% Sláturfélag Suðurlands 1,33 9,0% 0,0% *fyrsta verð 08. maí 2013 **fyrsta verð 24. apríl 2013 Gengi félaga í Kauphöll Íslands Á UPPLEIÐ Félög sem hækkuðu í verði Á NIÐURLEIÐ Félög sem lækkuðu í verði STÓÐU Í STAÐ Félög sem stóðu í stað MESTA HÆKKUN ÖSSUR 41,9% frá áramótum NÝHERJI 10,5% í síðustu viku MESTA LÆKKUN TRYGGINGA- MIÐSTÖÐIN -25,1% frá áramótum ICELANDAIR GROUP -6,9% í síðustu viku 6 4 4 EFTA dómstóllinn kveður upp dóm sinn í máli Gunnars V. Engil- bertssonar gegn Íslandsbanka í dag. Ágreiningurinn snýst um það hvort verðtryggingarákvæði í skuldabréfi sem Glitnir, sem Íslandsbanki er reistur á, gaf út í maí 2007 vegna fasteignakaupa Gunnars sé lögmætt. Grundvöllur verðtryggingarinnar var vísitala neysluverðs og höfuðstóll lánsins hækkar í hlutfalli við verðbólgu. Við rekstur málsins fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur hefur Gunn- ar haldið því fram að verðtrygg- ingarákvæðið sé óréttmætur skilmáli og andstæður tilskipun 93/13/EBE í EES-samningnum. Víkja eigi hinum óréttmæta skil- mála til hliðar. Íslandsbanki vísar hins vegar sjónarmiðum Gunnars á bug. Bankinn telur verðtrygg- inguna heimila samkvæmt lögum og tilskipunin hafi verið rétti- lega innleidd í landslög. Við með- ferð málsins fyrir héraðsdómi var ákveðið að fá ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins. Spurningarn- ar snúast meðal annars um það hvort verðtrygging sé ósanngjörn, hvort fyrrnefnd tilskipun eigi við á Íslandi. Að síðustu hvort dóm- stólar á Íslandi eigi að hafa val um það að lýsa ósanngjarna skilmála ógilda eða hvort þeim sé það skylt. Þótt þetta tiltekna mál snúist einungis um samning sem Gunnar V. Engilbertsson gerði við Íslands- banka vegna húsnæðiskaupa gætu hagsmunirnir sem liggja að baki verið mun meiri. Heildarupphæð verðtryggðra lána á Íslandi er um 1.500 milljarðar króna. Þar af er langstærstur hlutinn, eða um 800-900 milljarðar lán sem tekin eru hjá Íbúðalánasjóði og til við- bótar 100-200 milljarðar lán sem tekin eru hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Stofnanir með ríkis- ábyrgð eiga því um eða yfir 1.000 milljarða af þessum lánum. Á móti kemur að þeir lánasamningar sem verðtryggingamálið tekur til eru samningar sem gerðir eru á árinu 2000-2013, en ný lög um neytenda- lán tóku gildi eftir það. Ekkert liggur fyrir um það hvert fordæmisgildi dómsins sem kveðinn verður upp í máli Gunn- ars gegn Íslandsbanka kann að vera. Þá er heldur ekki víst hvort íslenskir dómstólar, Héraðsdóm- ur Reykjavíkur eða Hæstiréttur, mun telja svör EFTA-dómstólsins viðeigandi fyrir úrlausn málsins þegar dómur verður kveðinn upp hér. Þó eru engin fordæmi fyrir því að íslenskir dómstólar dæmi beinlínis þvert gegn ráðgefandi áliti. Hundraða milljarða hagsmunir í húfi EFTA-dómstóllinn kveður í dag upp dóm í máli lántakanda gegn Íslandsbanka vegna láns frá 2007. Í málinu er tekist á um það hvort verðtrygging fasteignalána sé lögmæt. Heildarupphæð verðtryggðra lána á Íslandi eru 1.500 milljarðar króna. Fjórir aðilar eru á markaðnum sem hafa milligöngu um leigu á bílum í eigu einstaklinga til ferða- manna. Hugmyndin er fengin erlendis frá en hún minnir nokk- uð á leigusíður eins og Airbnb sem hefur milligöngu um leigu íbúðar- húsnæðis. Þegar hefur verið greint frá vef- síðunni CarRenters.is. VikingCars. is er önnur sambærileg síðan en Sölvi Melax heldur starfsemi úti á þeirri vefsíðu. Sölvi segir að starf- semin hafi farið vel af stað. „Þetta var mjög fróðlegt til að byrja með en þetta var bras. En þetta hefur rúllað vel af stað. Sá bíll sem var mest leigður var leigður 26 daga í ágúst af fyrstu 28 dögunum. Þannig að það er gríðar- lega mikill markaður fyrir þetta. Og við leggjum áherslu á að eng- inn bíll sé skráður á síðuna nema að tryggingamálin séu algjörlega í lagi,“ segir Sölvi í samtali við Fréttablaðið. Sölvi segir að helsti hagur sem leigusalar hafi af jafningjaleig- unni sé sá að þeir geti með þessu aukið ráðstöfunartekjur og aukið þar með líkur sínar á að geta keypt nýrri bíl. Þeir geta þá leigt bíl- inn út þegar eftirspurnin er hvað mest og notað nýja bílinn á öðrum tímum. - jhh Vinsælasti bíllinn hjá jafningjabílaleigunni Viking Cars hefur verið nær stöðugt í útleigu í mánuðinum: Fjórar jafningjaleigur á Íslandi SÖLVI MELAX DÓMUR Óskað var eftir áliti frá EFTA dómstólnum vegna máls sem er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.