Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.08.2014, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 27.08.2014, Qupperneq 32
Hin MARÍA LOVÍSA ÁRNADÓTTIR, HÖNNUÐUR OG MARKÞJÁLFI hliðin USD 116,57 GBP 193,19 DKK 20,64 EUR 153,87 NOK 18,897 SEK 16,805 CHF 127,37 JPY 1,12 Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Gengi gjaldmiðla TSE 100 6.822,76 +47,51 (0.70%) Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti Hlutur Sjóvár metinn á 481 milljón króna Bruninn í Skeifunni í júlí kostaði Sjóvá 232 milljónir króna fyrir tekjuskatt. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri félagsins. Í tilkynn- ingu segir að hlutur Sjóvár í þessu tjóni sé nú metinn á 481 milljón króna og er hlutur endurtryggjenda 281 milljón króna, þar sem eigin áhætta Sjóvár er að hámarki 200 milljónir króna. Að auki þarf félagið samkvæmt endurtryggingasamningnum að endurnýja þá vátryggingavernd sem reyndi á í brunanum og greiða fyrir það 32 milljónir. „Nettó áhrif brunans á afkomu Sjóvár fyrir tekjuskatt á þriðja ársfjórðungi eru því 232 m.kr.,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár í afkomutilkynningu. 232 MILLJÓNA BRUNI Að undanförnu hef ég verið virkari neytandi en vanalega enda staðið í framkvæmdum heima fyrir og þess á milli nýtt sumarið til þess að ferðast um fallega landið okkar. Hækkandi sól fylgdi líka sterkari hugur til þess að breyta betur í mataræði og lífsstíl og með því metnaður til að velja náttúruvænni vörur. Hef ég því verið að velja ýmislegt nýtt og áhugavert og keypt allt frá málningu yfir í ferskar mat- vörur beint frá bónda. Hafa þessir sumarmánuðir aukið vellíðan en þó umfram allt aukið vitund mína um það hversu mikið fellur til af rusli af umbúðum vara og hversu snúið það getur verið að velja umhverfisvæna kosti hér á græna landinu okkar. Takmarkað val Þó svo ég fari beint til bónda og kaupi fersk jarðarber og agúrkur þá enda ég engu að síður með plastöskjur og plastpoka sem eftir standa þegar varanna hefur verið neytt. Hvers vegna er það enn svo á okkar grænu eyju með allt okkar hugvit að okkur dettur ekkert betra í hug en að pakka flestu af því sem á að nota í nokkrar mínútur í umbúðir sem eru í raun gerðar til þess að endast að eilífu? Viðskiptavinurinn hefur vald til að velja og hefur því töluverð áhrif á að draga úr sóun og úrgangi en engu að síður þarf viðskipta- vinurinn að hafa kosti til að velja úr og þar koma íslensk fyrirtæki einna sterkast inn. Án meðvitaðra ákvarðana hjá fyrirtækjum um hvaða vörur og umbúðir er verið að skapa og flytja inn til landsins þá hefur viðskiptavinurinn mjög takmarkað val og er vald hans til þess að draga úr sóun og úrgangi skert. Getum valið betur Íslendingar hafa náð mörgum góðum markmiðum með með- höndlun úrgangs en úrgangur eykst engu að síður og hendir hver íbúi landsins hundruðum kílóa af rusli á ári hverju. Þó svo að margir flokki rusl þá enda sem dæmi flestar plastumbúðir af matvöru enn í urðun og tekur árhundruð fyrir plastið að brotna niður ef það þá gerist einhvern tíma. Það er ekkert „trend” hjá ein- hverjum fáum að vera umhugað um umhverfið heldur er það nauðsyn- leg vakning sem er og mun henda okkur flest og eru umhverfis sinnaðir viðskiptavinir framtíð íslenskra fyrirtækja. Viðskiptavinir verða sífellt meðvitaðri um umhverfisáhrif sinna valkosta og vilja nýta val sitt vel en þeir þurfa hjálp frá íslenskum fyrirtækjum með umhverfisvænni valkostum og góðri upplýsingagjöf. Saman getum við öll valið betur og saman sköpum við vænni og grænni veruleika sem við öll högnumst á. Viðskiptavinir vilja umhverfi svænni valkosti 25.8.2014 Ég tek alveg fullt tillit til fjármálaráð- herra með það að ég ætla að bíða og sjá. En mér fannst að ég yrði aðeins að stinga niður fæti varð - andi það að standa vörð um matarskattinn. Sem kemur okkur öllum við, tekjulágum og tekjuháum. Virðisaukaskatturinn í hærra þrepi hér er með því hærra sem gerist í heiminum. Þannig að það er klárt mál að það verður að fara niður með efra þrepið. Vigdís Hauksdóttir alþingismaður 31,7 MILLJÓNA HAGNAÐUR Rekur og á Orkuveituhúsið Foss fasteignafélag slhf. hagnaðist um 31,7 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins samkvæmt árshlutareikningi þess. Heildareignir námu þá 5.187 milljónum króna. Eina starfsemi félagsins er að eiga og reka fasteignir að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík þar sem Orkuveita Reykjavíkur og fleiri fyrirtæki eru til húsa. Hamskiptin ★★★★★ The Guardian ★★★★★ Sunday Express ★★★★★ Daily Mail ★★★★★ Daily Telegraph ★★★★★ What’s On Stage „Snilldarverk“ New York Times ★★★★★ The Australian Stage ★★★★★ Time Out Hong Kong eftir Franz Kafka í leikgerð Vesturports Rómuð sýning Vesturports snýr aftur eftir sigurgöngu um heiminn. Sýnt frá 17. september. Aðeins 9 sýningar. Tryggðu þér leikhúskort! 551 1200 HVERFISGATA 19 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.