Fréttablaðið - 27.08.2014, Qupperneq 40
27. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Halla Þórlaug
Óskarsdóttir
Litadýrð á Emmy
Emmy-verðlaunin voru afh ent í 66. sinn í Nokia Theatre í Los Angeles aðfara-
nótt þriðjudagsins. Kjólaval stjarnanna var langt frá því að vera hefðbundið.
Besta dramasería
Breaking Bad
Besta gamansería
Modern Family
Aðalleikari í dramaseríu
Bryan Cranston, Breaking Bad
Aðalleikari í míníseríu
eða kvikmynd
Benedict Cumberbatch, Sherlock:
His Last Vow
Aðalleikkona í dramaseríu
Julianna Margulies, The Good Wife
Aðalleikkona í míníseríu
eða kvikmynd
Jessica Lange, American Horror
Story: Coven
Aðalleikari í gamanseríu
Jim Parsons, The Big Bang Theory
Aðalleikkona í gamanseríu
Julia Louis-Dreyfus, Veep
Raunveruleikaþáttur
The Amazing Race
➜ Helstu sigurvegarar
TVÆR FLOTTAR Julia Roberts skar sig úr í stuttum kjól frá Elie Saab Couture og
dáðist að Kate Walsh sem klæddist gulum kjól frá Stephane Rolland Haute Couture.
NORDICPHOTOS/GETTY
TÍSKULITUR Leikkonan January Jones
í rauðum kjól frá Prabal Gurung en
rauður var afar vinsæll á hátíðinni í ár.
ENGINN SKANDALL Scandal-stjarnan
Kerry Washington í glæsilegu dressi frá
Prada.
SÆTUR SIGURVEGARI Breaking Bad-
stjarnan Anna Gunn var verðlaunuð
á hátíðinni og klæddist kjól frá Jenny
Packham.
ÞAÐ er komið haust. Ég get sagt það full-
um fetum án þess að blikna. Ástæðan fyrir
því að ég veit það fyrir víst er að ég er búin
að sjá að minnsta kosti tuttugu myndir af
litlum börnum með gríðarstórar skóla-
töskur á bakinu á Facebook. Þau eru grun-
laus og eftirvæntingarfull á leið út í sinn
fyrsta skóladag. Ég veit það líka af því að
strákurinn í næstu íbúð er aftur farinn að
æfa Entertainer á píanóið.
ÉG man ótrúlega margt úr æsku. Ég á
minningar frá flutningum úr Breiðholtinu
yfir í Þingholtin, en þá var ég ekki orðin
þriggja ára. Ég man eftir ítalska kokkinum
á leikskólanum og þegar ég fór einsömul í
róluna í næsta garði þegar ég var nýflutt.
Ég man eftir rauðri blöðru sem slapp upp í
loftið á leikvellinum, man þegar ég kynnt-
ist bestu vinkonu minni á leikskólanum
og ég man eftir fyrstu skólatöskunni
minni. En ég man ekki eftir fyrsta
skóladeginum.
ÞÓ á ég margar minningar úr
fyrsta bekk. Merkilega margar í
ljósi þess að mestan hluta þess skóla-
árs dvaldi ég hjá ömmusystur minni í
Vogahverfinu sökum kennaraverkfalls.
EN nóg um það. Haustið er komið og það
sést á litlu sniglunum með húsin sín á bak-
inu, full af … Hvað tók maður með sér í
skólann í fyrsta bekk? Pennaveski og nesti?
Ég man að pennaveskin voru öll seld með
blekhylkjum sem var mikið sport því þau
voru stranglega bönnuð, enda sprungu
þau hægri vinstri. Sumir krakkar borðuðu
Skólajógúrt en ég fékk aldrei þannig því
það var sykurleðja. Skólajógúrtin sprungu
gjarnan eins og blekhylkin. Sá hlær best
sem síðast hlær. Já, það er sem sagt komið
haust. Mér þykir svo vænt um haustið. Það
markar einhver tímamót, nýtt upphaf, eitt-
hvað spennandi. Og í loftinu er lykt sem
vekur upp gamlar minningar. Blautt malbik
og dálítið kaldir nebbar. Sumir fara í berja-
mó. Ég útbjó í fyrsta skipti krækiberja-
saft um daginn. Mér datt í hug að kalla það
Haustsaft.
JÆJA. Heilsið endilega öllum rómi blíðum,
en einkum ef að fyrir ber lítil börn með
skólatöskur. Berið þeim kveðju mína, ég
þakka þeim kærlega fyrir að hafa fært
okkur haustið á ný.
Haustboðar ljúfi r
ARE YOU HERE 8, 10:20
LET’S BE COPS 5:45, 8, 10:15
THE EXPENDABLES 3 10
LUCY 8
TEMJA DREKANN SINN 2D 5:20
ÍSL TAL
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
ÞEIR ERU MÆTTIR AFTUR!
THE GIVER KL. 5.45 - 8 - 10.15
THE GIVER LÚXUS KL. 5.45 - 8 - 10.15
LET́S BE COPS KL. 5.40 - 8 - 10.20
EXPENDABLES KL. 5 - 8 - 10.40
ÉFLUGV LAR ÍSL. TAL2D KL. 3.40 - 5.50
FLUGVÉLAR ÍSL. TAL3D KL. 3.40
SEX TAPE KL. 8
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D KL. 10.10
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D KL. 3.30
THE GIVER KL. 5.45 - 8 - 10.15
ARE YOU HERE KL. 8 - 10.30
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8
NIKULÁS Í FRÍI KL. 5.45
SEX TAPE KL. 8
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D KL. 10.15
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20
VONARSTRÆTI KL. 10.15
Miðasala á:
MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI.
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI
METSÖLUBÓK!
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SAN FRANCISCO CHRONICLE
WASHINGTON POST NEW YORK DAILY NEWS
KS - CHICAGO SUN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
MIÐASALA Á