Fréttablaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 29
 | FÓLK | 3 Guðmundur Þór Guðmundsson, stöðvarstjóri hjá Olís í Norð-lingaholti, var stirður í baki eftir aðgerð sem hann gekkst undir við brjósklosi fyrir þremur árum. „Sökum stirðleika var ég iðulega erfiður upp á morgnana og slæmur í skrokknum,“ segir Guðmundur, sem fékk ábendingu um gæðavítamínin frá Nutra og hefur síðan endurheimt úthald, styrk sinn og vellíðan. „Ég hef lengi haft tröllatrú á magnesí- umi og D-vítamíni sem styrkir ónæmis- kerfið og er allra meina bót. Því skellti ég mér á Nutra-magnesíum og D-vítamín og var aðeins mánuði síðar orðinn mun styrkari, liðugri og betur á mig kominn,“ segir Guðmundur, sem hafði áður tekið inn sambærileg vítamín og steinefni frá þekktum en mun dýrari framleiðendum. „Nutra-vítamínin eru verulega hag- kvæm fyrir budduna og maður fær meira magn fyrir lægra verð. Þau gera mér afskaplega gott og hafa ekki síður góða virkni en dýrari vítamín á markaðinum.“ Guðmundur hefur síðan bætt við Nutra-kalki því kalk styrkir bein á meðan magnesíum slakar á vöðvaspennu á nátt- úrulegan hátt. „Ég er nú allt annar í bakinu og léttari á líkama og í lund. Í frístundum rembist ég við að spila golf og þá kemur sér vel að hafa tekið inn aukaskammt af fjörefnum, því það er ekki alltaf sem maður fær ráð- lagðan dagskammt fjörefna úr fæðunni,“ segir Guðmundur kátur. „Með þessari kærkomnu Nutra-þrennu er ég nú betur í stakk búinn til að takast á við líf og leik og líður svo miklum mun betur.“ FJÖREFNI FYRIR ALLA ÍSLENDINGA AÐFÖNG KYNNA Nutra-vítamín eru frábær kostur fyrir þá sem hugsa um heilsuna og vilja taka inn fjölbreytt og góð bætiefni á sanngjörnu verði. Nutra er sérsniðið að þörfum Íslendinga og annarra sem búa á norðurslóðum. KALK – FYRIR TENNUR OG BEIN Nutra Kalk inniheldur 500 mg af kalki fyrir tennur og bein. Ein tafla uppfyllir 63 prósent af ráðlögðum dagskammti og því auðvelt að upp- fylla kalkþörf líkamans með Nutra Kalki. Flestum dugar að taka inn eina töflu á dag en óhætt er að taka tvær ef ekki er neytt kalkríkrar fæðu. Nutra-kalk fæst í 120 taflna pakkningum og er ódýr og góður kostur fyrir þá sem taka inn kalk daglega því skammturinn dugar í tvo til fjóra mánuði. Gott er að taka inn D-vítamín með kalki þar sem upp- taka og nýting verður þá mun meiri. Því er mælt með að taka inn eina töflu af Nutra D3 1000 AE kólikalsiferól samhliða Nutra-kalki. MAGNESÍUM PLÚS – SLAKANDI OG RÓANDI FYRIR LÍKAMA OG SÁL Nutra Magnesíum Plús inniheldur magnesíum, B12-vítamín, B6-vítamín og fólínsýru. Magnesíum og B-vítamín virka einkar vel saman, til dæmis gegn mígrenihöfuðverk. B-vítamín nýtist einnig vel með magnesíumi við orku- framleiðslu í líkamanum. Magnesíum hjálpar ekki aðeins vöðvum og taugum að starfa eðlilega, heldur viðheldur það stöðugum hjartslætti, blóðsykursjafnvægi, eðlilegum blóðþrýstingi og eflir heilbrigði ónæmis- kerfisins. Öll líffæri þurfa á magnesíumi að halda en hjarta og nýru þurfa einkum og sér í lagi á þessu mikilvæga steinefni að halda. Þá gegnir magnesíum mikilvægu hlutverki fyrir vöxt og viðhald tanna og beina, það virkjar ensím líkamans og hefur áhrif á orkuframleiðslu (vinnur vel með B-víta- mínum). Magnesíum stjórnar hlutfalli margra mikilvægustu efna líkam- ans og kemur meðal annars jafnvægi á kalk, kopar, sink og D-vítamín. MEIRI GÆÐI Á BETRA VERÐI Nutra er hugsað fyrir alla sem vilja geta tekið inn fjölbreytt og góð bætiefni á sanngjörnu verði. Allar umbúðamerkingar eru á íslensku, samkvæmt íslenskum reglum um næringargildi og ráðlagða dag- skammta, og með íslenskum heitum á innihaldsefnum. NÁTTÚRULEGT OG ÁN ERFÐABREYTTRA EFNA Nutra er framleitt samkvæmt ströngustu GMP-framleiðslustöðlum og inniheldur einungis virk efni frá viðurkenndum framleiðendum. Vítamín frá Nutra innihalda einungis náttúruleg hjálparefni og engin erfðabreytt innihaldsefni eða hjálparefni eru notuð við framleiðsluna. SÉRHANNAÐ FYRIR FÓLK Á NORÐURSLÓÐUM Við þróun og framleiðslu á Nutra er sérstaklega tekið mið af þörfum fólks á norðlægum slóðum, matarvenjum þess og veðurfarslegum aðstæðum. Þannig er til dæmis óumdeilt að fólk á norðurhveli þarf meira D-vítamín en þeir sem búa á sólríkari slóðum. ■ Nutra D3 1000-vítamíntöflur eru litlar og auðvelt að kyngja þeim. Ein tafla inniheldur 1000 AE, 25 míkrógrömm (mcg) af D3-vítamíni, sem er besta og virkasta fáanlegt form af D-vítamíni og er oft kallað D3-kólikalsiferól. ■ 1000 AE 25 mcg er 500 prósent af ráðlögðum dagskammti og óhætt að gefa það börnum allt niður í eins árs. ÖFLUGUR Guðmundur Þór Guðmundsson öðlaðist meiri styrk og betri heilsu eftir að hann fór að taka inn Nutra-vítamín að staðaldri. MYND/GVA MEIRA MAGN FYRIR MUN LÆGRA VERÐ Nutra-vítamín fást í stærri pakkningum og á mun betra verði en íslenskir neytendur hafa átt að venjast. Nutra-vítamínin eru vönduð hágæðabætiefni fyrir alla fjölskylduna, framleidd undir ströngu gæðaeftirliti í Svíþjóð. Í flestum pakkningum eru 120 töflur eða hylki og dugar því hver pakkning í tvo til fjóra mánuði, eftir því hvort teknar eru inn ein eða tvær töflur á dag. Nutra fæst í verslunum Bónuss og Hagkaups. TAKTU D-VÍTAMÍN Á HVERJUM DEGI Íbúar á norðurslóðum fá ekki nægjanlegt D-vítamín úr daglegri fæðu nema þeir borði umtalsvert magn af laxi á degi hverjum. D-vítamín er því eitt af mikilvægustu vítamínum til inntöku. Húðin vinnur D-vítamín einnig úr sólarljósi en fyrir þá sem búa á norðurhveli jarðar er best að taka inn D-víta mín allt árið til að tryggja nægjanlegt magn þess fyrir líkamann. D- vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi líkamans og er meðal annars talið nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins. Það gefst vel gegn húðþurrki, í baráttunni við sóríasis og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir vöðva líkamans. D-vítamín er ómissandi fyrir upptöku kalks og annarra steinefna og því mikilvægur þáttur í uppbyggingu beina og tanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.