Fréttablaðið - 08.09.2014, Page 17
FIÐRILDASTÓLL
Sori Yanagi (1915–2011) er einn frægasti
vöruhönnuður Japans. Hans frægasta
verk er að öllum líkindum fiðrildastóllinn
frá 1956.
Babyliss Curl Secret er leyndarmál-ið á bak við fullkomnar krullur. Það breytir því hvernig hárið er
krullað, á fljótlegan og auðveldan hátt.
BaByliss Curl Secret dregur hárið sjálf-
krafa inn í tækið, í keramikhólf. Í hólfinu
er hárinu haldið mjúklega inni og það
hitað úr öllum áttum á mjög skömmum
tíma, en á vandaðan hátt þannig að
útkoman er fallegar krullur.
Guðlaug Helga Björnsdóttir segir Curl
Secret-járnið frá BaByliss vera frábært.
„Það sem heillaði mig mest og fékk mig
helst til að langa að eignast það var
einfaldleikinn. Þar sem ég er þriggja
barna móðir hef ég ekki mikinn tíma til
að græja mig fyrir ýmsa viðburði eða
jafnvel fyrir venjulegan dag, þess vegna
er þetta krullujárn algjör snilld,“ segir
Guðlaug. „Ég er nokkrar mínútur að
smella liðum í hárið og þegar ég vil vera
sérstaklega fín þá breyti ég bara stilling-
unum á járninu og þá fæ ég fullkomnar
krullur. Þetta er einstaklega þægilegt í
notkun og ég mæli með þessu fyrir alla
sem vilja fá hárið fallegt á einfaldan
máta á skömmum tíma.“
Curl Secret hefur tvær hitastillingar
og þrjár stillingar sem stilla hversu
lengi hárið er inni í tækinu (frá átta til
tólf sekúndur) sem hefur áhrif á hversu
þéttar krullurnar verða. Því lengur sem
hárið er hitað því þéttari krullur. Tækið
stillir í hvaða átt krullurnar fara og
breytir sjálfkrafa um áttir. Curl Secret
er hægt að nota á sítt og millisítt hár.
Einnig á flestar hártegundir, fínt hár,
viðkvæmt, litað og hár sem
er liðað.
Curl secret fæst í Elko,
Hagkaup og Byggt og
búið.
FULLKOMNAR KRULLUR
HALLDÓR JÓNSSON KYNNIR BaByliss Curl Secret er ný leið til að gera full-
komnar krullur á nokkrum sekúndum. Hárið fer inn í tækið – krullur koma út.
MEÐ FALLEGAR KRULLUR Guðlaug mælir með Curl Secret fyrir alla sem
vilja fá hárið fallegt á einfaldan og auðveldan hátt. MYND/GVA
12v 7A
12v 5,5A12v 0,8A