Fréttablaðið - 08.09.2014, Síða 17

Fréttablaðið - 08.09.2014, Síða 17
FIÐRILDASTÓLL Sori Yanagi (1915–2011) er einn frægasti vöruhönnuður Japans. Hans frægasta verk er að öllum líkindum fiðrildastóllinn frá 1956. Babyliss Curl Secret er leyndarmál-ið á bak við fullkomnar krullur. Það breytir því hvernig hárið er krullað, á fljótlegan og auðveldan hátt. BaByliss Curl Secret dregur hárið sjálf- krafa inn í tækið, í keramikhólf. Í hólfinu er hárinu haldið mjúklega inni og það hitað úr öllum áttum á mjög skömmum tíma, en á vandaðan hátt þannig að útkoman er fallegar krullur. Guðlaug Helga Björnsdóttir segir Curl Secret-járnið frá BaByliss vera frábært. „Það sem heillaði mig mest og fékk mig helst til að langa að eignast það var einfaldleikinn. Þar sem ég er þriggja barna móðir hef ég ekki mikinn tíma til að græja mig fyrir ýmsa viðburði eða jafnvel fyrir venjulegan dag, þess vegna er þetta krullujárn algjör snilld,“ segir Guðlaug. „Ég er nokkrar mínútur að smella liðum í hárið og þegar ég vil vera sérstaklega fín þá breyti ég bara stilling- unum á járninu og þá fæ ég fullkomnar krullur. Þetta er einstaklega þægilegt í notkun og ég mæli með þessu fyrir alla sem vilja fá hárið fallegt á einfaldan máta á skömmum tíma.“ Curl Secret hefur tvær hitastillingar og þrjár stillingar sem stilla hversu lengi hárið er inni í tækinu (frá átta til tólf sekúndur) sem hefur áhrif á hversu þéttar krullurnar verða. Því lengur sem hárið er hitað því þéttari krullur. Tækið stillir í hvaða átt krullurnar fara og breytir sjálfkrafa um áttir. Curl Secret er hægt að nota á sítt og millisítt hár. Einnig á flestar hártegundir, fínt hár, viðkvæmt, litað og hár sem er liðað. Curl secret fæst í Elko, Hagkaup og Byggt og búið. FULLKOMNAR KRULLUR HALLDÓR JÓNSSON KYNNIR BaByliss Curl Secret er ný leið til að gera full- komnar krullur á nokkrum sekúndum. Hárið fer inn í tækið – krullur koma út. MEÐ FALLEGAR KRULLUR Guðlaug mælir með Curl Secret fyrir alla sem vilja fá hárið fallegt á einfaldan og auðveldan hátt. MYND/GVA 12v 7A 12v 5,5A12v 0,8A

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.