Fréttablaðið - 08.09.2014, Qupperneq 59
MÁNUDAGUR 8. september 2014 | SPORT | 27
Stílhrein og sterk
sorptunnuskýli
á hausttilboði
Einstök og falleg gæðaskýli sem fela og
verja sorptunnurnar á snyrtilegan hátt.
Sendum um allt land!
20%
afsláttur
Haustútsala
BM Vallá • Breiðhöfða 3, 110 Reykjavík
Sími: 412 5050 • sala@bmvalla.is • bmvalla.is
FRJÁLSAR Einar Vilhjálmsson,
Íslandsmethafi í spjótkasti og þre-
faldur Ólympíufari, var í gær kos-
inn formaður Frjálsíþróttasam-
bandsins á þingi þess á Akureyri,
en hann hafði betur í baráttunni
við fráfarandi varaformann, Ben-
óný Jónsson, með 35 atkvæðum á
móti 26. Ekki er langt síðan Einar
ákvað að bjóða sig fram.
„Það gerðist bara á útmánuðum
í vor að sitjandi formaður ákvað
að gefa ekki kost á sér. Þá opnað-
ist umræða um hverjir væru til-
búnir að ljá hreyfingunni krafta
sína næstu tvö árin og ég var í
þeirri stöðu að geta látið mig mála-
flokkinn varða og tekið áskorun-
um varðandi hann,“ sagði Einar
við Fréttablaðið í gær.
Ekki var um hatramman kosn-
ingaslag að ræða. „Ég fór ekki
fram gegn einum né neinum. Stóri
sigurinn var sá að tveir menn voru
tilbúnir til þess að ljá hreyfing-
unni aðstoð sína. Ég sagði í ræðu
minni á þinginu að ef Benóný yrði
kosinn færi þar fram mjög góður
formaður.“
Einar hefur marga fjöruna sopið
þegar kemur að frjálsum íþróttum
og hefur nokkuð skýra sýn á hvað
hann vill bæta og breyta.
„Ég bauð mig fram til að vinna
að útbreiðslu og vexti íþróttar-
innar á landsvísu. Ég vil líka
hlúa að afreksstefnunni enn frek-
ar og auka samtal milli þjálfara
og hreyfingarinnar með jöfnuð
fyrir alla að leiðarljósi. Ég steig
einnig fram í vor og átti stóran
þátt í hugmyndinni „Frímínút-
ur“ sem miðar að því að virkja
krakka í leik í löngu frímínútun-
um í skólum landsins. Svo eru það
eldri borgararnir
en hvað varðar
öldungaþátt-
inn blasa við
spennandi
verkefni. Ég
vil opna og
leyfa fleirum
að njóta
þessa góða starfs sem FRÍ hefur
unnið. Þróun og útvíkkun á fjár-
magnsleiðum er líka sannarlega
mjög aðkallandi. Ég ætla samt
ekki að segjast ætla að gera hitt
og þetta því allt kostar peninga,“
segir Einar sem er spenntur fyrir
verkefninu.
„Aldrei áður höfum við átt jafn-
glæsilegan mannauð ungmenna
og ég lít á það sem mitt verkefni
að koma á auknum verkefnum
fyrir hreyfinguna og búa til þjálf-
arateymi sem hjálpast að,“ segir
Einar Vilhjálmsson. - tom
Höfum aldrei átt jafnglæsilegan hóp ungmenna
Ólympíufarinn og spjótkastarinn Einar Vilhjálmsson var kosinn nýr formaður Frjálsíþróttasambandsins á þingi þess í gær.
FORMÚLA Lewis Hamilton, ökuþór
Mercedes í Formúlu 1, bar sigur
úr býtum í Monza-kappakstrinum
á Ítalíu í gær. Hamilton byrjaði
á ráspól, en tókst að glutra for-
ystunni niður með ævintýralega
lélegri ræsingu. Hann var kom-
inn í fjórða sætið áður en fyrsti
hringur var búinn.
Hamilton vann sig aftur upp
í fyrsta sætið og fagnaði sætum
sigri, sínum sjötta á tímabilinu.
Hann er samt sem áður 22 stigum
á eftir liðsfélaga sínum Nico Ros-
berg í baráttunni um heimsmeist-
aratitil bílasmiða.
Þeir munu berjast um titilinn
allt til enda, en sex keppnir eru
eftir. Hamilton hefur unnið fleiri
keppnir en Rosberg verið stöð-
ugri og klárað allar keppnir nema
eina og alltaf nema einu sinni
áður verið í öðru af efstu tveimur
sætunum. - tom
Sjötti sigur
Hamiltons
GLEÐI Lewis Hamilton fagnar sigrinum
í Monza í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason,
landsliðsframherji í knattspyrnu,
vonast til að geta brátt spilað með
félagsliði sínu Real Sociedad, en
hann missti af fyrstu leikjum nýs
tímabils vegna þess að hann fór
úr axlarlið.
„Öxlin er að koma til. Ég vinn
hörðum höndum að því að koma
mér í stand og geri mikið af
æfingum. En þetta eru flókin
meiðsli og ég þarf að passa mig,“
segir Alfreð í viðtali við spænska
íþróttablaðið El Mundo Deport-
ivo.
Hann viðurkennir að það hafi
verið erfitt að geta ekki verið
með í byrjun tímabilsins með
sínu nýja liði.
„Auðvitað er það ekki skemmti-
legt. Þetta er ekki alveg sú
aðstaða sem maður vildi lenda í.
Ég hef verið heppinn með meiðsli
undanfarin tvö ár og aðeins misst
af fjórum leikjum. En þetta er
eitthvað sem gerist í boltanum,“
segir Alfreð Finnbogason. - tom
Alfreð að
verða klár
Á BATAVEGI Alfreð Finnbogason getur
brátt spilað aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY