Fréttablaðið - 15.10.2014, Qupperneq 1
Við erum að velta því
fyrir okkur hvort við
eigum að fara með málið
til lögreglu.
Lárus Ögmundsson, yfir-
lögfræðingur hjá Ríkisendurskoðun.
MARKAÐURINN
FRÉTTIR
G
MET Í KORTAVELTUKortavelta erlendra ferðamanna á Íslandi fyrstu níu mánuði ársins nemur 93,3 milljörðum króna. Hún er nú þegar orðin meiri en hún var allt árið 2013.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16
10-70%
afsláttur
af völdum vörum
Barskápar
Glerskápar
Skenkar
Speglar
Sófaborð
Bókahillur
Púðar
Sófasett
Tungusófar
Hornsófar
Stakir sófar
Borðstofuborð
SjónvarpsskáparFjarstýringavasar
LOKAHELGIÚTSÖLUNNAR
Verð áður 428.900 kr.
99.900 kr.
Þvílíkur árangur!
www.visir.is Sími: 512 5000 |
Miðvikudagur 15. október 2014 | 27. tölublað | 10. árgangur
STAFRÆN
PRENTUN!
Þykir gagnrýnin ósanngjörn
Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Flugstöðv-ar Leifs Eiríkssonar, gefur lítið fyrir ásakanir um að leyndarhyggja hafi hvílt yfir forvali Isavia. Val-ferlið hafi verið opið og gagnsætt.
„Mér finnst gagnrýnin hafa
verið ósanngjörn og það hvílir alls engin leyndarhyggja yfir þessu
ferli. Sömu aðilar og töluðu áður
um að ferlið væri faglegt hafa
síðar gefið í skyn að það hafi verið óljóst hvaða gögn þeir áttu að senda inn með sínum umsóknum og gagn-
rýnt upplýsingagjöf Isavia,“
segir Hlynur. ➜ SÍÐA 4
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Miðvikudagur
12
2 SÉRBLÖÐ
Markaður | Fólk
Tryggingafélögin lækka
Gengi bréfa í tryggingafélögunum
hefur lækkað nokkuð á árinu. Að
hluta til skýrist það af kostnaði
vegna stórtjóna en einnig vegna
lakari ávöxtunar.
Sími: 512 5000
15. október 2014
242. tölublað 14. árgangur
MENNING Sigurður Guð-
mundsson sækir innblástur
í íslenska póesíu. 22
LÍFIÐ Íslendingar fengu
hlutverk í rómantískri,
þýskri mynd. 24
SPORT U21 árs landsliðið
fer ekki á EM eftir grátlegt
jafntefli gegn Dönum. 26
A
Ð
EIN
S EIN
N
D
A
G
U
R
EFT
IR
Í SÖ
LU
Á
Á
U
M
4
3
50
0
SELD
A
R
SLA
U
FU
R
50
.0
0
0
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoð-
un íhugar að kæra Framsóknar-
flokkinn til lögreglu vegna brota
á lögum um fjármál stjórnmála-
flokka þegar flokkurinn tók við
tveimur styrkjum yfir löglegri
upphæð. Þetta staðfestir Lárus
Ögmundsson, lögfræðingur Ríkis-
endurskoðunar.
Fram kemur í ársreikningi
Framsóknarflokksins að flokkur-
inn tók við tveimur styrkjum yfir
hámarksupphæð, sem er 400 þús-
und krónur. Einhamar Seafood
styrkti flokkinn um 462.750 krónur
og Skinney Þinganes styrkti flokk-
inn um 440 þúsund krónur. „Við
erum að fara yfir málið í rólegheit-
um, það er stutt síðan þetta kom
upp og við erum að velta því fyrir
okkur hvort við eigum að fara með
málið til lögreglu,“ segir Lárus.
Ríkisendurskoðun benti Fram-
sóknarflokknum á að þessir styrkir
væru yfir löglegri upphæð. Fram-
sóknarflokkurinn brást fljótt við
ábendingum Ríkisendurskoðunar
og hefur nú þegar greitt til baka
rúmar 100 þúsund krónur samtals
til þessara tveggja fyrirtækja.
Í lögum um fjármál stjórnmála-
flokka segir í 12. grein að hver sá
sem veiti viðtöku styrkjum, sem
honum sé óheimilt að taka við skuli
sæta sektum og gera skuli lögað-
ilum sekt fyrir broti sem þessu.
Einnig segir að refsa skuli fyrir
brot hvort sem þau séu framin af
ásetningi eða gáleysi.
Lárus gat ekki svarað því hve-
nær Ríkisendurskoðun tæki
afstöðu til þess hvort yrði kært eða
Íhuga að kæra Framsókn
Framsóknarflokkur tók við tveimur styrkjum yfir hámarksupphæð sem kveðið er á um í lögum. Ríkisendur-
skoðun íhugar að kæra styrkveitingarnar til lögreglu. Hafa ekki tekið afstöðu til málsins enn sem komið er.
SAMFÉLAGSMÁL Hópur fólks kemur
saman vikulega fyrir utan Kvenna-
deild Landspítalans og biður fyrir
fóstrum sem eytt er á spítalanum.
Að sögn Denis O’Leary, prests í
Maríukirkju í Breiðholti og eins af
þeim sem mæta þangað reglulega
til að biðja, vonast hann til að með
bæninni nái hópurinn að koma af
stað hugarfarsbreytingu hjá fólki
til fóstureyðinga.
Að þessu sinni eru fjórir ein-
staklingar, sem allir eru meðlimir
Maríukirkju og í félaginu Lífsvernd,
sem er félag fóstureyðingaand-
stæðinga hér á landi, mættir fyrir
framan Kvennadeildina. Það fer
lítið fyrir þeim og þau biðja í lágum
hljóðum. Þau segjast biðja um vernd
fyrir ófædd fóstur en einnig biðja
þau fyrir öllum börnum sem fæðast
á spítalanum. „Öll vorum við einu
sinni fóstur. Við getum verið þakk-
lát fyrir að okkur var ekki eytt,“
segir Denis í samtali við blaðamann
Fréttablaðsins. - hó / sjá síðu 6
Andstæðingar fóstureyðinga hittast vikulega á lóð Landspítalans til að biðja:
Biðja fyrir framan Kvennadeild
VIÐSKIPTI „Það skiptir okkur máli
vegna þess að við viljum ekki
kyngreina börnin með litum. Það
virðist vera inngróið í samfélagið
að stelpur eigi að vera í bleiku
og strákarnir í bláu, sem gerir
það að verkum að framboðið af
öðru er lítið,“ segir Guðrún Tara
Sveinsdóttir sem ásamt eigin-
manni sínum, Gísla Hrafni Magn-
ússyni, opnar netverslun með
lífrænan barnafatnað. „Við upp-
götvuðum svo merkið PurerBaby
og leist rosalega vel á það og
ákváðum að slá til og hefja lítinn
innflutning og opna netbúð.“
- asi / sjá síðu 30
Bjóða lífrænan barnafatnað:
Ókynbundin
barnafataverslun
GUÐRÚN TARA SVEINSDÓTTIR Hafna
bleiku og bláu í fatnaði barna.
Öll vorum við einu
sinni fóstur. Við getum
verið þakklát fyrir að
okkur var ekki eytt.
Denis O’Leary, prestur í Maríukirkju.
Bolungarvík 1° NA 2
Akureyri 4° SA 2
Egilsstaðir 3° NNA 3
Kirkjubæjarkl. 4° NA 3
Reykjavík 3° A 4
Hlýjast syðst Í dag verður austan
strekkingur allra syðst, annars hægari
vindur. Stöku skúrir S- og A-til, annars
fremur skýjað en úrkomulítið. 4
ekki. „Við erum með þetta á okkar
borðum, nú er svo komið að ríkis-
endurskoðandi er í viku fríi og við
munum líklega skoða þetta betur í
næstu viku,“ segir Lárus. - sa
BÆNASTUND Hópur fólks hittist vikulega fyrir framan Kvennadeild Landspítalans til að biðja fyrir hugarfarsbreytingum til
fóstureyðinga og fóstrum sem er eytt á spítalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Óvissa með kvennafangelsi Fang-
elsinu í Kópavogi verður hugsanlega
lokað fyrr en áætlað var vegna niður-
skurðar. 2
Skýra ekki málið Fjármálaráðu-
neytið útskýrir ekki hvers vegna
matur á veitingahúsum og í mötu-
neytum er ekki inni í forsendum
virðisaukaskattsfrumvarpsins. 4
SKOÐUN Fanný Heimisdótt-
ir segir að leikskólabörn séu
svikin með rýrum kosti. 13
EVRÓPA f rá
9.990 kr.
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka