Fréttablaðið - 15.10.2014, Blaðsíða 27
7 | 15. október 2014 | miðvikudagur
til dæmis í fyrra og hins vegar að
ávöxtun á eignamörkuðum, og þar
af leiðandi ávöxtun fjárfestingar-
eigna tryggingafélaganna, virð-
ist hafa verið lakari en fjárfestar
reiknuðu með í byrjun þessa árs,“
segir Stefán Broddi.
Lítil stemming á markaðnum
Jóhann Viðar Ívarsson hjá IFS
greiningu bendir líka á að arð-
greiðslurnar úr félögunum skipti
máli, en fl eira komi til. „Þetta er
hluti af stemmingunni á markaðn-
um. Hlutabréf hafa í það heila held-
ur verið að lækka,“ segir hann.
Hann segir að IFS hafi tekið
saman umfjöllun um markaðinn
fyrir viðskiptavini sína í septem-
ber og samkvæmt þeirri úttekt
höfðu fi mm félög hækkað á aðallist-
anum í ár, en meirihlutinn, eða sjö
félög, höfðu lækkað. Lækkun á verði
tryggingafélaganna sé hluti af þess-
ari stemmingu markaðarins í heild.
Tryggingafélögin hafi aftur á móti
lækkað einna mest félaga í ár og það
sé vert að spyrja sig af hverju.
„Ég held sjálfur að þau hafi
kannski verið fullhátt verðlögð á
tímabili,“ segir Jóhann Viðar. Einn-
ig beri að líta til þess að ávöxtun
eigna, bæði hlutabréfa og skulda-
bréfa, hafi verið bágborin það sem
af er ári. Þess vegna hafi trygginga-
félögunum gengið illa að ávaxta
fjármuni sína. „Það eru litlar líkur
á því að menn nái einhverri viðlíka
ávöxtun á fé í ár eins og í fyrra og
hittifyrra,“ segir Jóhann Viðar. Þá
hafi stórtjón og hækkandi tjóna-
hlutföll orðið til að minna menn á
áhættuna í tryggingarekstri og það
að tjónahlutföll síðustu ár séu lægri
en að jafnaði.
Jóhann Viðar segist ekki vilja
fullyrða að það hafi verið bóluein-
kenni á hlutabréfamarkaði í fyrra
og hittifyrra. „Það má alveg deila
um það hvort hækkun síðustu ára
var merki um eignabólu. En það
sem mér fi nnst hins vegar trygg-
ara að taka undir er að það er ekk-
ert neikvætt að hlutabréf hafi ekki
hækkað á árinu 2014. Við höfum
verið að skoða kennitölur fyrir
íslensku félögin og bera þau saman
við það sem gerist í helstu kauphöll-
um annars staðar. Íslensk hlutabréf
eru ekki lágt verðlögð en þó ekki
það hátt að maður vilji segja að það
sé bólueinkenni. En þau eru á það
háu verði að það var engin sérstök
ástæða önnur en höftin til að þau
ættu að hækka mikið á árinu 2014,“
segir Jóhann Viðar. Hann segir að
menn geti verið sáttir við stöðuna
og það sé ekkert að því að eitthvað
sem hækki lækki aftur. Það sé því
ekkert neikvætt við að það komi
smá hik á markaðinn. „Heilt yfi r
erum við með býsna hátt verðlag
á hlutabréfunum,“ segir Jóhann
Viðar.
Hann segist líka minna við-
skiptavini IFS reglulega á að
þegar menn beri saman lykiltölur
á Íslandi og á stærri mörkuðum
annars staðar séu tvenn meginrök
fyrir því að hlutabréf ættu að vera
lægri hér. „Í fyrsta lagi vegna þess
að við búum við miklu hærra vaxta-
stig. Vextir eru mjög lágir á helstu
mörkuðum og almennt miklu lægri
en hjá okkur. En háir vextir ættu
að hafa lækkunaráhrif á hluta-
bréfaverð,“ segir Jóhann Viðar. Hin
ástæðan sé sú að íslenski markað-
urinn sé agnarsmár. „Hann er svo
lítill og einhæfur og seljanleikinn
svo lítill að þetta á allt að draga úr
verðlagningunni,“ segir Jóhann
Viðar.
GENGI BRÉFA Í TRYGGINGAFÉLÖGUM
35
30
25
20
15
10
5
0
nóv
2013
des
2013
jan
2014
feb
2014
mars
2014
apríl
2014
maí
2014
júlí
2014
ágúst
2014
sept
2014
okt
2014
nóv
2014
FYRSTA KONAN Sigríður Ragna Ólafsdóttir er enn í dag eina konan sem stýrir skráðu félagi.
Fréttablaðið/ Valli
Ég held sjálfur
að þau hafi
kannski verið full-
hátt verðlögð.
KLAKKI SELDI FYRIR TÆPA 1,7 MILLJARÐA
Klakki, sem áður hét Exista, seldi í fyrradag 200 milljónir hluta í Vátrygg-
ingafélagi Íslands, eða VÍS. Þetta kom fram í flöggun til Kauphallarinnar.
Markaðsvirði hlutarins var 1,66 milljarðar íslenskra króna miðað við
gengi bréfa þann daginn. Helstu eignir Klakka eru hlutir í VÍS og Lýsingu,
en eftir viðskiptin á Klakki um 374 milljónir hluta í VÍS. Markaðsverð
hlutarins sem eftir stendur er þá 3,1 milljarður króna.
Fyrir viðskiptin var Klakki stærsti hluthafinn með 22,95 prósenta hlut,
Lífeyrissjóður verslunarmanna var næstur í röðinni með 9,81 prósents
hlut og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A-deild með 6,34 prósent. Nýr
hluthafalisti hefur ekki verið birtur.
Lífeyrissjóður verslunarmanna er stærsti eigandi Tryggingamiðstöðvar-
innar með 9,9 prósenta hlut, Gildi lífeyrissjóður á 6,9 prósenta hlut og
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins A deild á 6,26 prósenta hlut.
Stærstu hluthafar í Sjóvá eru hins vegar SAT eignarhaldsfélag sem á
13,67 prósent, SVN eignafélag sem á 11,68 prósent og Gildi lífeyrissjóður
sem á 9,9 prósent. SAT eignarhaldsfélag er svo í eigu þrotabús Glitnis
banka og SVN er í eigu Síldarvinnslunnar.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Bíldshöfða 10 S: 5878888 br.is
Engin lántökugjöld
á bílafjármögnun
í október
Bílaleiga
Sjóvá VÍS TM
1.593.000.000 kr. 2.503.000.000 kr. 760.000.000 kr.
NAFNVERÐ HLUTAFJÁR