Fréttablaðið - 15.10.2014, Side 38

Fréttablaðið - 15.10.2014, Side 38
15. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 22 „Þetta er í fyrsta sinn sem þessum myndum er safnað í eina bók, en auðvitað er búið að sýna þessi verk úti um allan heim,“ segir Sigurð- ur Guðmundsson um verkin í bók- inni Dancing Horizon sem komin er út bæði á íslensku og ensku hjá Crymogeu. Í bókinni eru ljós- myndaverk Sigurðar frá árunum 1970-1982. „Verkin eru tvístruð út um allan heim en nú eru þau komin í eina bók sem inniheldur öll þessi verk í mjög góðu formi, fín prent- un, réttar upplýsingar og þessum verkum hafa aldrei verið gerð jafn góð skil og í þessari bók.“ Þessi verk spanna tólf ára tíma- bil, hvers vegna hvarfstu frá þessu formi eftir þann tíma? „Kannski tæmdi ég þetta svið fyrir sjálfan mig, kannski átti ég á hættu að fara að endurtaka mig, ég veit það ekki. Ég haga mér pínulítið eins og dýr; fer svangur í eitthvað en leita svo að einhverju grænna hinum megin við girðinguna eftir ákveð- inn tíma. Annars hugsa ég aldrei svoleiðis. Eina hugsunin er: mig langar, mig langar! Síðan geri ég það.“ Ómálga löngun Sigurður bjó í Hollandi lengst af þessu tímabili, en var þá þegar orðinn alþjóðlega þekktur mynd- listarmaður og ferðaðist víða til að sýna. „Já, af einhverjum óskiljan- legum ástæðum þá varð ég þekkt- ur um 1975-6, en ég þurfti þó að vinna með listinni þrátt fyrir það. Þannig var þetta þá. Ef þú verð- ur þekktur í dag þá ertu eins og skot orðinn milljónamæringur því frægðin er aðalsöluvaran, eins hallærislega og það nú hljómar.“ Hvers vegna byrjaðirðu að vinna með ljósmyndaformið? „Það hef ég ekki hugmynd um. Maður hefur einhverja ómálga löngun sem leitar í rólegheitum að sínu formi. Það sem þú sérð á þess- um myndum hefði ég ekki getað málað, það hefði orðið mjög hall- ærislegt og myndi ekki virka. Víd- eóið var ekki komið á þessum tíma þannig að þetta var allt tekið á filmur. Ég bjó til þessar aðstæður úti á grasbletti eða inni í herbergi og allar myndirnar voru teknar á þrífæti eftir að ég hafði raðað upp í þær. Fyrst planaði ég þær í smá- atriðum í hausnum og hjartanu enda hefur alltaf verið mikil for- vinna að mínum verkum, þótt fæst af því sé til á blaði eða sjáanlegt. Ég reyni að vinna verkið sem mest á því sviði þangað til það smellur saman á einhverju mómenti og þá framkvæmi ég það. Ég er alls ekkert góður ljósmyndari, gildi og framgangur verkanna liggur ekki í því, heldur sennilega í eins konar heimspekilegri póesíu sem allar þjóðir geta notið. Hún liggur alfar- ið fyrir utan þennan litla þjóðlega reit sem allir búa á, enda líður mér sem einstaklingi best með það að vera útlendingur, vera ekki einnar þjóðar maður.“ Háður því að vera útlendingur Sigurður hefur búið í Xiamen í Kína undanfarin átján ár, en bjó þar áður lengi í Hollandi og hefur haft búsetu víðar. Hvers vegna ákvað hann að setjast að í Kína? „Ég spyr ekki sjálfan mig slíkra spurninga. Þetta æxlast bara svona. Ég kom fyrst til Kína 1997, var þar í nokkrar vikur, horfði í kringum mig og hugsaði: ég verð bara hér. Síðan hef ég búið þar.“ Sigurður segist vera orðinn útlendingur á Íslandi og reynd- ar alls staðar. „Ég er orðinn svo háður því að vera útlendingur. Mér þykir óþægilegt þegar maður fer að eiga sitt landslið og svona. Ég lenti í smá tilvistarkreppu í gær þegar Ísland og Holland voru að keppa í fótbolta, með hverjum átti ég að halda? Það er betra að vera laus við það. Auðvitað eru þetta allt saman ágætis lönd, en það er ekki hægt að bera lönd saman frekar en manneskjur. Það hafa allir svo ólíka eiginleika“ Meinarðu að það sé nauðsynlegt fyrir þig sem listamann að horfa á heiminn með augum útlendings- ins? „Kannski, já. Það hentar mér voðalega vel. Það felst eitthvert frelsi í því og andlega hliðin er mjög interessant. Ég næ betri ein- beitingu þegar ég er engrar þjóð- ar. Ef við tökum verkin í Dancing Horizon sem dæmi þá var hol- lenska pressan alltaf að hæla mér fyrir að sýna íslenskt landslag í Hollandi, en það er engin mynd frá Íslandi í þessari bók, þetta var allt gert í Hollandi.“ Spesíalisti í tilfinningum Lily van Ginneken talar um það í inngangi að bókinni að það sé til- finningin sem sé þungamiðjan í þessum verkum. „Já, það er það sem ég vinn með. Ég vinn ekki með neinar sögulegar staðreynd- ir eða tek vitsmunalegar ákvarð- anir í sambandi við það hvern- ig verkin þróast. Tilfinningin er miklu meira akkúrat heldur en vitsmunirnir, þeir eru miklu óná- kvæmari. Þú getur aldrei doblað tilfinninguna neitt. Ef þú ert ást- fanginn þá ertu bara ástfang- inn, en það verðurðu ekki þótt þú lesir allt um ástina. Ég hef notað þetta alla mína tíð og kannski er ég spesíalisti í tilfinningum, það gæti alveg eins verið, en þetta er reyndar í fyrsta skipti sem ég geri mér grein fyrir því.“ Þú ert nú samt oft ansi vits- munalegur í bókunum sem þú skrifar. „Bækurnar eru geð- klofalegar. Þá lifi ég rasjónal lífi en klóna um leið fólk út úr sjálf- um mér. Skrifa skáldskap sem er alveg jafn raunverulegur og hinn svokallaði raunveruleiki sem allt- af er meira og minna skáldaður af okkur sjálfum.“ Sigurður vill ekki gangast við því að verk hans séu eitthvað sér- staklega íslensk, nema að einu leyti. „Íslensk póesía er viðvar- andi áhrifavaldur í mínum verk- um. Mér finnst ekkert verk eftir mig heppnast nema það sé póet- ískt. Ekki lýrískt, það má ekki rugla því saman. Lýríkin er allt- af falleg, alltaf svo mjúk og fín, en póesían getur verið innskeif og rangeygð en samt virkað. Það er mín deild. Mín póesía er pínulítið heimspekilegs eðlis, svona heim- spekilegar tilfinningar, og fjallar voða lítið um dægurmál. Samt er það hið daglega líf hjá venjulegu fólki sem höfðar mest til mín. Þangað sæki ég póesíuna í verk- in mín.“ Hvaða áhrif leitastu við að hafa á viðtakendur verka þinna? „Ef þú hrífst af listaverki, mínu eða annarra, þá verðurðu hrærð og þú hreyfist. Færist á örlítið annan stað í tilvistinni. Það er þetta ferðalag sem listin snýst um.“ Innskeif og rangeygð póesía Bókin Dancing Horizon inniheldur ljósmyndaverk Sigurðar Guðmundssonar frá árunum 1970-1982 og er þetta í fyrsta sinn sem þeim er safnað saman á bók. Sigurður hefur verið búsettur erlendis áratugum saman en segir íslenska póesíu viðvarandi áhrifavald. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON „Kannski er ég spesíalisti í tilfinningum, það gæti alveg eins verið, en þetta er reyndar í fyrsta skipti sem ég geri mér grein fyrir því.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DANCING HORIZON 1977 A PICTURE 1978 TRIANGLE 1980 ➜ Sigurður Guðmundsson Dancing Horizon Ljósmyndaverk Sigurðar Guð- mundssonar 1970-1982 Ritstjóri er Kristín Dagmar Jóhannesdóttir Inngang ritaði Lily van Ginneken Bókarhönnun: Arnar Freyr Guðmundsson Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is MENNING

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.