Fréttablaðið - 15.10.2014, Page 38
15. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 22
„Þetta er í fyrsta sinn sem þessum
myndum er safnað í eina bók, en
auðvitað er búið að sýna þessi verk
úti um allan heim,“ segir Sigurð-
ur Guðmundsson um verkin í bók-
inni Dancing Horizon sem komin
er út bæði á íslensku og ensku
hjá Crymogeu. Í bókinni eru ljós-
myndaverk Sigurðar frá árunum
1970-1982. „Verkin eru tvístruð út
um allan heim en nú eru þau komin
í eina bók sem inniheldur öll þessi
verk í mjög góðu formi, fín prent-
un, réttar upplýsingar og þessum
verkum hafa aldrei verið gerð jafn
góð skil og í þessari bók.“
Þessi verk spanna tólf ára tíma-
bil, hvers vegna hvarfstu frá þessu
formi eftir þann tíma? „Kannski
tæmdi ég þetta svið fyrir sjálfan
mig, kannski átti ég á hættu að
fara að endurtaka mig, ég veit það
ekki. Ég haga mér pínulítið eins og
dýr; fer svangur í eitthvað en leita
svo að einhverju grænna hinum
megin við girðinguna eftir ákveð-
inn tíma. Annars hugsa ég aldrei
svoleiðis. Eina hugsunin er: mig
langar, mig langar! Síðan geri ég
það.“
Ómálga löngun
Sigurður bjó í Hollandi lengst af
þessu tímabili, en var þá þegar
orðinn alþjóðlega þekktur mynd-
listarmaður og ferðaðist víða til að
sýna. „Já, af einhverjum óskiljan-
legum ástæðum þá varð ég þekkt-
ur um 1975-6, en ég þurfti þó að
vinna með listinni þrátt fyrir það.
Þannig var þetta þá. Ef þú verð-
ur þekktur í dag þá ertu eins og
skot orðinn milljónamæringur
því frægðin er aðalsöluvaran, eins
hallærislega og það nú hljómar.“
Hvers vegna byrjaðirðu að
vinna með ljósmyndaformið? „Það
hef ég ekki hugmynd um. Maður
hefur einhverja ómálga löngun
sem leitar í rólegheitum að sínu
formi. Það sem þú sérð á þess-
um myndum hefði ég ekki getað
málað, það hefði orðið mjög hall-
ærislegt og myndi ekki virka. Víd-
eóið var ekki komið á þessum tíma
þannig að þetta var allt tekið á
filmur. Ég bjó til þessar aðstæður
úti á grasbletti eða inni í herbergi
og allar myndirnar voru teknar á
þrífæti eftir að ég hafði raðað upp
í þær. Fyrst planaði ég þær í smá-
atriðum í hausnum og hjartanu
enda hefur alltaf verið mikil for-
vinna að mínum verkum, þótt fæst
af því sé til á blaði eða sjáanlegt.
Ég reyni að vinna verkið sem mest
á því sviði þangað til það smellur
saman á einhverju mómenti og
þá framkvæmi ég það. Ég er alls
ekkert góður ljósmyndari, gildi og
framgangur verkanna liggur ekki
í því, heldur sennilega í eins konar
heimspekilegri póesíu sem allar
þjóðir geta notið. Hún liggur alfar-
ið fyrir utan þennan litla þjóðlega
reit sem allir búa á, enda líður mér
sem einstaklingi best með það að
vera útlendingur, vera ekki einnar
þjóðar maður.“
Háður því að vera útlendingur
Sigurður hefur búið í Xiamen í
Kína undanfarin átján ár, en bjó
þar áður lengi í Hollandi og hefur
haft búsetu víðar. Hvers vegna
ákvað hann að setjast að í Kína?
„Ég spyr ekki sjálfan mig slíkra
spurninga. Þetta æxlast bara
svona. Ég kom fyrst til Kína 1997,
var þar í nokkrar vikur, horfði í
kringum mig og hugsaði: ég verð
bara hér. Síðan hef ég búið þar.“
Sigurður segist vera orðinn
útlendingur á Íslandi og reynd-
ar alls staðar. „Ég er orðinn svo
háður því að vera útlendingur.
Mér þykir óþægilegt þegar maður
fer að eiga sitt landslið og svona.
Ég lenti í smá tilvistarkreppu í
gær þegar Ísland og Holland voru
að keppa í fótbolta, með hverjum
átti ég að halda? Það er betra að
vera laus við það. Auðvitað eru
þetta allt saman ágætis lönd, en
það er ekki hægt að bera lönd
saman frekar en manneskjur. Það
hafa allir svo ólíka eiginleika“
Meinarðu að það sé nauðsynlegt
fyrir þig sem listamann að horfa
á heiminn með augum útlendings-
ins? „Kannski, já. Það hentar mér
voðalega vel. Það felst eitthvert
frelsi í því og andlega hliðin er
mjög interessant. Ég næ betri ein-
beitingu þegar ég er engrar þjóð-
ar. Ef við tökum verkin í Dancing
Horizon sem dæmi þá var hol-
lenska pressan alltaf að hæla mér
fyrir að sýna íslenskt landslag í
Hollandi, en það er engin mynd
frá Íslandi í þessari bók, þetta var
allt gert í Hollandi.“
Spesíalisti í tilfinningum
Lily van Ginneken talar um það í
inngangi að bókinni að það sé til-
finningin sem sé þungamiðjan í
þessum verkum. „Já, það er það
sem ég vinn með. Ég vinn ekki
með neinar sögulegar staðreynd-
ir eða tek vitsmunalegar ákvarð-
anir í sambandi við það hvern-
ig verkin þróast. Tilfinningin er
miklu meira akkúrat heldur en
vitsmunirnir, þeir eru miklu óná-
kvæmari. Þú getur aldrei doblað
tilfinninguna neitt. Ef þú ert ást-
fanginn þá ertu bara ástfang-
inn, en það verðurðu ekki þótt þú
lesir allt um ástina. Ég hef notað
þetta alla mína tíð og kannski er
ég spesíalisti í tilfinningum, það
gæti alveg eins verið, en þetta er
reyndar í fyrsta skipti sem ég geri
mér grein fyrir því.“
Þú ert nú samt oft ansi vits-
munalegur í bókunum sem þú
skrifar. „Bækurnar eru geð-
klofalegar. Þá lifi ég rasjónal lífi
en klóna um leið fólk út úr sjálf-
um mér. Skrifa skáldskap sem er
alveg jafn raunverulegur og hinn
svokallaði raunveruleiki sem allt-
af er meira og minna skáldaður af
okkur sjálfum.“
Sigurður vill ekki gangast við
því að verk hans séu eitthvað sér-
staklega íslensk, nema að einu
leyti. „Íslensk póesía er viðvar-
andi áhrifavaldur í mínum verk-
um. Mér finnst ekkert verk eftir
mig heppnast nema það sé póet-
ískt. Ekki lýrískt, það má ekki
rugla því saman. Lýríkin er allt-
af falleg, alltaf svo mjúk og fín,
en póesían getur verið innskeif og
rangeygð en samt virkað. Það er
mín deild. Mín póesía er pínulítið
heimspekilegs eðlis, svona heim-
spekilegar tilfinningar, og fjallar
voða lítið um dægurmál. Samt er
það hið daglega líf hjá venjulegu
fólki sem höfðar mest til mín.
Þangað sæki ég póesíuna í verk-
in mín.“
Hvaða áhrif leitastu við að hafa
á viðtakendur verka þinna? „Ef
þú hrífst af listaverki, mínu eða
annarra, þá verðurðu hrærð og
þú hreyfist. Færist á örlítið annan
stað í tilvistinni. Það er þetta
ferðalag sem listin snýst um.“
Innskeif og rangeygð póesía
Bókin Dancing Horizon inniheldur ljósmyndaverk Sigurðar Guðmundssonar frá árunum 1970-1982 og er þetta í fyrsta sinn sem þeim
er safnað saman á bók. Sigurður hefur verið búsettur erlendis áratugum saman en segir íslenska póesíu viðvarandi áhrifavald.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON „Kannski er ég spesíalisti í tilfinningum, það gæti alveg eins verið, en þetta er reyndar í fyrsta
skipti sem ég geri mér grein fyrir því.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DANCING HORIZON 1977 A PICTURE 1978 TRIANGLE 1980
➜ Sigurður Guðmundsson
Dancing Horizon
Ljósmyndaverk Sigurðar Guð-
mundssonar 1970-1982
Ritstjóri er Kristín Dagmar
Jóhannesdóttir
Inngang ritaði Lily van Ginneken
Bókarhönnun: Arnar Freyr
Guðmundsson
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
MENNING