Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.10.2014, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 15.10.2014, Qupperneq 40
15. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24 Fíni iPhone-snjallsíminn minn bilaði um helgina. Sem er kannski ekki í frásögur færandi þar sem ég fer örugg- lega að eiga Íslandsmet í bilanatíðni þessara síma (ekki mér að kenna – pott- þétt galli í hönnuninni). SNJALLSÍMINN fór í viðgerð og í stað- inn fékk ég ósnjallan Nokia-síma. Það er hægt að komast á netið á honum en það tekur svo langan tíma að ég fer ekki inn á það, hann er með tökkum og gamla góða Nokia-hringingin hljómar frá honum. SNJALLSÍMALEYSIÐ hefur fært mig aftur til einfaldari tíma þegar maður gerði eitthvað annað en að stara stanslaust á símann. Ekkert Snap- chat eða Instagram til þess að eyði- leggja einbeitingu eða tölvupóstur og Facebook-skilaboð að trufla venjuleg- ar samræður. ÁN ÞESS AÐ við áttum okkur á því, eða kannski áttum við okkur alveg á því en viljum ekki viðurkenna það; þá er mín kynslóð og kynslóðirnar í kring nefnilega hættar að lifa eðlilegu lífi. Við lifum í gegnum símann. Þetta litla tæki sem færir okkur heiminn í gegnum skjáinn er nefnilega að skerða lífsgæði okkar töluvert. Í STAÐ þess að njóta þess að horfa á útsýnið tökum við mynd af því, hendum á það filter og dúndrum því inn á Insta- gram og bíðum eftir like-um. Við erum hætt að geta notið þess að borða góðan mat því við verðum að taka mynd af honum og deila með heiminum. Partí fara líka að miklu leyti fram í gegnum síma þar sem þarf að taka sem flestar myndir svo allir sjái hvað það er gaman og við eigum örugglega nóg af minningum frá gleðinni en á sama tíma gleymum við að skemmta okkur. VIÐ ERUM í stöðugu sambandi við umheiminn en nánast engu við þá sem eru rétt við hliðina á okkur. Ég er að segja ykkur það, þessir snjöllu símar eru að rústa lífi okkar. ÞÓTT ÉG eigi örugglega eftir að snúa til snjallsímans á ný þá hefur þetta verið ágætis áminning um að leggja stund- um símanum og lifa lífinu – fyrir utan skjáinn. Snjallsímaleysið BAKÞANKAR Viktoríu Hermannsdóttur „Í stórum dráttum ganga sjónvarps- seríurnar út á að Þjóðverji kemur til einhvers lands, lendir í alls konar ævintýrum og verður ástfanginn. Það sama er uppi á teningnum á Íslandi,“ segir Fahad Jabali, fram- leiðslustjóri sjónvarpsmyndarinnar Sommer im Island, sem þýska sjón- varpsstöðin ZDF framleiðir. Myndin er hluti af röð sjónvarps- mynda frá ZDF sem eru teknar upp í hinum ýmsum löndum og var á dagskrá stöðvarinnar síðastliðið sunnudagskvöld. Auk leikstjórans, fulltrúa fram- leiðslufyrirtækisins og kvikmynda- tökumannsins eru aðalleikkonurnar þýskar, eða þær Catherine Bode og Heike Trinker, sem leikur reynd- ar íslenska konu að nafni Freyja. Hvorug er stórstjarna en báðar þekkt andlit í Þýskalandi. Krist- björg Kjeld, Jóhann Sigurðarson og Erla Brynjarsdóttir eru í nokk- uð burðugum hlutverkum, sérstak- lega Kristbjörg, sem leikur konu með tengsl við álfa. Aukaleikar- arnir eru íslenskir. Aukinheldur er íslenskt landslag í stóru hlutverki. Í myndinni tala íslensku leikar- arnir óaðfinnanlega þýsku en radd- irnar koma að vísu ekki úr þeirra barka heldur kollega þeirra í Þýska- landi. Fahad, sem tók að sér fram- leiðslustjórn Sommer im Island fyrir TrueNorth ehf., segir allt hafa verið afskaplega vel undirbúið eins og Þjóðverja sé von og vísa. „Veðrið gátu þeir þó ekki skipu- lagt og fengu sýnishorn af alls konar veðri. Þeir vonuðust eftir sól allan tímann en því gátum við auð- vitað ekki lofað. Myndin er 90 mín- útur að lengd eins og aðrar í þessari seríu, sem ZDF hefur gert í mörg- um löndum,“ segir Fahad. Þótt mest væri tekið á suðvesturhorninu var komið víða við, t.d. á Þingvöllum, bóndabæ rétt hjá Akranesi og í fjör- unni við Vík. Spurður hvort mynd- irnar í seríunni séu svolítið í ætt við svokallaðar póstkortamyndir fyrir túrista vill Fahad hvorki játa því né neita. „TrueNorth fékk fyrir- spurn um fyrirgreiðslu og þjónustu frá framleiðslufyrirtæki ZDF í des- ember 2013 og tökur stóðu yfir í 22 daga síðastliðið vor. Allt gekk greið- lega fyrir sig, enda aðstandendur myndarinnar vanir menn,“ segir hann. „Fyrir þá var verkefnið hálf- gerð rútína, handritið tilbúið, búið að ráða þýsku leikarana og við búnir að ráða þá íslensku og aðra starfsmenn svo sem leikmyndahönnuð og aðstoð- arleikstjóra.“ valgerdur@frettabladid.is Íslendingar fengu hlutverk í rómantískri, þýskri mynd Sumar á Íslandi er hluti af rómantískri myndaröð þýsku stöðvarinnar ZDF um heimsóknir til ýmissa landa. Kristbjörg Kjeld og Jóhann Sigurðarsson á meðal leikara. Tökumenn fengu sýnishorn af íslenskri veðráttu. SPJALLAÐ SAMAN Krist björg Kjeld ásamt aðalleikkonunni Catherine Bode. MYND/ZDF Söguþráðurinn gengur í stórum dráttum út á að aðalsöguhetjan, Jette, gengur á land í Stykkishólmi og er fyrr en varir búin að hitta draumaprinsinn. Í farangri Jette er aska Rosalie frænku hennar, sem einnig hafði hitt sinn draumaprins þegar hún réð sig í vinnu á Íslandi eftir stríðið. Hún sneri þó aftur til síns heima – makalaus. Hinsta ósk frænkunnar var að hvíla hjá stóru ástinni í lífi sínu að jarðvist beggja lokinni. Jette tekur sér fyrir hendur að upp- fylla ósk frænku sinnar. ➜ Draumaprinsar á Íslandi ➜ Sjónvarps myndin Sumar á Íslandi hverfist um ástir og örlög. Álfar, tröll og Eyjafjalla- jökull koma líka við sögu. Indírokkarinn Ariel Pink segir að plötufyrirtækið Interscope hafi haft samband við sig og beðið hann um að vinna í nýju plötunni með Madonnu. „Þá vantaði eitthvað ögrandi. Þau vantar alvöru lagasmíðar. Hún getur ekki einfaldlega fengið ein- hvern handahófskenndan pródús- ent til að búa til nýtt teknólag svo að hún geti hrist sig og þóst vera 20 ára,“ sagði Pink, sem segist telja að Madonna hafi verið á niðurleið síðan hún gaf út fyrstu plötuna sína. Ummælin kveiktu miklar um- ræður á Twitter þegar söngkonan Grimes gagnrýndi Pink harðlega. „Ranghugmyndirnar og kvenhatr- ið í Ariel Pink eru einkennandi fyrir kjaftæðið sem allar konur í þessum bransa þurfa að kljást við á hverjum degi,“ ritaði hún. Umboðsmaður Madonnu svaraði síðan að hvorki hann né Madonna hefðu heyrt um Pink. „Hún hefur ekki áhuga á að vinna með haf- meyjum.“ - þij Skaut á Madonnu ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR THE CONJURING THE FRIGHT FILE ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA GONE GIRL 7, 10 DRACULA UNTOLD 8, 10 SMÁHEIMAR 5:40 WALK AMONG TOMBSTONES 5:40, 8, 10:20 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar -T.V., biovefurinn -EMPIRE GONE GIRL KL. 5.45 - 9 THE EQUALIZER KL. 9 PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15 BOYHOOD KL. 5.45 VONARSTRÆTI KL. 6 - 9 Q&A KL. 4.45 - 8 - 10.15 GONE GIRL LÚXUS KL. 4.45 - 8 DRACULA KL. 5.45 - 8 - 10.30 THE EQUALIZER KL. 8 - 10.45 THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8 LET́S BE COPS KL. 5.45 PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL2D KL. 3.30 AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D KL. 3.30 SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30 „TÖ FF, BRENGLUÐ OG Ö GRANDI“ - EMPIRE „EIN AF ALBESTU MYNDUM ÁRSINS“ -T.V., BIOVEFURINN -V.J.V, SVARTHÖFÐI.IS -H.S.S.,MBL Gísla Dúa Hjörleifssyni ljós- myndara og danska geðlækn- inum Mikkel Vossen Rasmus- sen varð vel til vina þegar þeir voru nágrannar í Árósum fyrir fimm árum. Í kjölfarið fóru þeir í ferðalag um Ísland þar sem Gísli Dúi var að viða að sér efni í ljós- myndabók. „Hugmyndin að vísindaskáld- sögunni The Lost Astronaut eða Týnda geimfaranum kviknaði á ferðalaginu. Við ákváðum að vinna frekar saman að bók, sem væri hvort tveggja ljósmyndabók og vísindaskáldsaga með geim- fara og íslenska náttúru í aðal- hlutverkum. Mikkel kom enda margt undarlega fyrir sjónir í ferðinni og hafði á orði að sér liði stundum eins og geimveru á Íslandi,“ segir Gísli Dúi. „Þess vegna er bókin næstum því sann- söguleg,“ bætir hann við. Þótt Mikkel, höfundur sögunn- ar, skrifi á dönsku, kemur fyrsta prentun út í enskri þýðingu. Þeir félagar hafa verið með bókina í smíðum í fjögur ár og verkaskipt- ingin er skýr: Auk þess að taka ljósmyndirnar sinnir Gísli Dúi hvers kyns utanumhaldi; mynd- böndum, auglýsingum og því um líku. Mikkel er hins vegar höf- undur sögunnar og jafnframt fyrirsæta Gísla Dúa. „Það kom sér vel að hann hafði fjárfest í grænum geimferðabúningi í Rússlandi löngu áður en vísinda- skáldsagan varð að hugmynd. Hjálminn keyptum við hins vegar dýrum dómum á netinu,“ segir Gísli Dúi. Hugmyndin að baki bókinni er m.a. sú að hún höfði til túr- ista, sem geti lesið söguna sér til ánægju og jafnframt gagns á ferðum sínum um landið. GPS- punktarnir við myndirnar eigi svo að leiðbeina þeim á söguslóð- ir. Til að eiga upp í útgáfukostnað leita Gísli Dúi og Mikkel styrktar- aðila og áheita á Karolina Fund. - vþj Ljósmyndari og geðlæknir skrifa skáldsögu Gísli Dúi Hjörleifsson og Mikkel Vossen Rasmussen skrifa bók um týndan geimfara á Íslandi. FYRIRSÆTAN Mikkel vísindaskáld- söguhöfundur og fyrirsæta Gísla Dúa ljósmyndara.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.