Fréttablaðið - 15.10.2014, Qupperneq 42
15. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26SPORT
FIMLEIKAR „Nú síðustu dagana snú-
ast æfingarnar aðallega um að fín-
stilla síðustu atriðin,“ segir Ása
Inga Þorsteinsdóttir, yfirþjálfari
íslensku hópfimleikalandsliðanna,
sem verða í eldlínunni á Evrópu-
meistaramótinu sem hefst í Laug-
ardalshöllinni í dag. Að baki er
langur og strangur undirbúning-
ur sem hófst með úrtökuprófum í
janúar.
„Fram að sumri æfðu liðin 2-4
sinnum í viku en frá því í júní hafa
þau æft 4-6 sinnum í viku og sum
oftar. Þetta hefur gengið svaka-
lega vel og verður að gaman að sjá
hver útkoman verður.“
Ísland á titil að verja í bæði
kvenna- og stúlknaflokki í hópfim-
leikum auk þess sem kvennaliðið
varð einnig meistari árið 2010. Ása
Inga segir að sú reynsla komi sér
að góðum notum nú.
„Hún gerir það svo sannarlega
en þegar svo stutt er í keppni
skiptir mestu máli að hugarfar-
ið og hausinn sé í lagi,“ segir Ása
Inga, sem á von á harðri keppni í
öllum flokkum. „Eftir að hafa séð
bæði danska liðið og það sænska á
æfingum, sem eru sterkustu liðin
ásamt okkur, er ljóst að þetta verð-
ur hörkukeppni og mun koma til
með að ráðast af því hverjir lenda
stökkunum sínum best. Þetta verð-
ur í raun bara keppni í lending-
um,“ segir Ása Inga.
Alls er keppt í sex flokkum og á
Ísland lið í fimm þeirra. Ísland á
einungis ekki fulltrúa í karlaflokki
en sendir drengjalið til þátttöku í
fyrsta sinn.
„Við viljum fyrst og fremst að
strákarnir öðlist reynslu af því
að taka þátt í svona stóru móti
og erum við með örlítið aðrar
áherslur fyrir þá,“ segir hún en
bætir við að kvenna- og stúlkna-
liðin ætli sér vitanlega stóra hluti
á heimavelli.
„Markmið okkar er að allir geri
sitt hundrað prósent. Ef okkur
tekst það og við verðum ánægð
með þær æfingar sem við gerum
þá er góður möguleiki á því að við
tökum gull. Og auðvitað ætla þær
sér að vinna gullið á heimavelli.“
Ása Inga segir að öll umgjörð í
kringum mótið hafi verið til fyrir-
myndar en glæsilegri áhorfenda-
aðstöðu hefur verið komið fyrir
í Laugardalshöllinni. „Nú vant-
ar bara Íslendinga í stúkuna. Því
miður er enn útlit fyrir að það
verði fleiri útlendingar en Íslend-
ingar í pöllunum en við vonum að
miðasalan taki kipp nú þegar veisl-
an byrjar.“ - esá
Við viljum verja gullin á heimavelli okkar
Evrópumeistaramótið í hópfi mleikum hefst í Laugardalshöllinni í dag. Fimm íslensk lið taka þátt í því.
ÁNÆGÐ MEÐ UNDIRBÚNINGINN Ása Inga Þorsteinsdóttir hefur staðið í ströngu
síðustu mánuðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mörkin: 0-1 Nicolaj Thomsen (90.), 1-1 Hólmbert
Aron Friðjónsson (90.+2, víti).
ÍSLAND (4-3-3): Fredrik August Schram - Orri
Sigurður Ómarsson, Sverrir Ingi Ingason, Brynjar
Gauti Guðjónsson, Hjörtur Hermannsson - Andri
Rafn Yeoman, Þorri Geir Rúnarsson, Guðmundur
Þórarinsson - Arnór Ingvi Traustason (90. Árni Vil-
hjálmsson), Ólafur Karl Finsen (90. Emil Atlason),
Hólmbert Aron Friðjónsson.
DANMÖRK (4-3-3): Jakob Jensen - Alexander
Scholz, Jores Okore, Jannik Vestergaard, Jonas
Knudsen - Andreas Christensen, Lasse Christ-
ensen, Nicolaj Thomsen - Danny Amankwaa (90.
Frederik Sörensen), Youssef Toutouh, Andreas
Cornelius.
Skot (á mark): 7-19 (1-5) Horn: 1-9
Varin skot: Fredrik 4 - Jensen 0
1-1
Laugardalsv.
Áhorf: 2.503
István Vad,
Ungverjal. (6)
ÚRSLIT
D-RIÐILL
ÞÝSKALAND - ÍRLAND 1-1
1-0 Toni Kroos (71.), 1-1 John O‘Shea (90.+1)
GÍBRALTAR - GEORGÍA 0-3
PÓLLAND - SKOTLAND 2-2
Staðan: Pólland 7, Írland 7, Skotland 4, Þýskaland
4, Georgía 3, Gíbraltar 0.
E-RIÐILL
SAN MARINÓ - SVISS 0-4
Staðan: England 9, Slóvenía 6, Litháen 6, Sviss 3,
Eistland 3, San Marínó 0.
F-RIÐILL
FÆREYJAR - UNGVERJALAND 0-1
FINNLAND - RÚMENÍA 0-1
GRIKKLAND - N-ÍRLAND 0-2
Staðan: Norður-Írland 9, Rúmenía 7, Finnland 4,
Ungverjaland 4, Grikkland 1, Færeyjar 0.
I-RIÐILL
DANMÖRK - PORTÚGAL 0-1
0-1 Cristiano Ronaldo (90.+5).
SERBÍA - ALBANÍA LEIK HÆTT
Staðan: Danmörk 4, Albanía 4, Portúgal 3, Serbía
1, Armenía 1.
FÓTBOLTI Evrópumeistarar Spán-
ar verja ekki titil sinn á EM U21
árs landsliða í Tékklandi næsta
sumar. Þeir töpuðu, 1-2, á heima-
velli gegn Serbum í umspilinu í
gærkvöldi og féllu úr leik á sömu
markatölu eftir markalaust jafn-
tefli í fyrri leiknum. Spánn hefur
unnið síðustu tvö Evrópumót.
Svíar komu til baka eftir 2-0
tap gegn Frökkum. Þeir unnu
4-1 í gær og komust á EM ásamt:
Ítalíu, Englandi, Þýskalandi,
Portúgal, Dönum og vitaskuld
gestgjöfum Tékka. Mótið fer
fram næsta sumar. - tom
Evrópumeist-
ararnir úr leik
FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo var hetja sinna manna í
portúgalska landsliðinu í gærkvöldi þegar það vann
Danmörku, 1-0, á Parken í Kaupmannahöfn. Markið
skoraði Ronaldo með skalla á fimmtu mínútu í upp-
bótartíma, en sigurinn var kærkominn eftir tapið
óvænta fyrir Albaníu í fyrstu umferð.
John O’Shea var einnig hetja sinna manna í írska
landsliðinu þegar hann náði í stig fyrir Írana á útivelli með
marki í uppbótartíma eftir að Toni Kroos hafði komið heims-
meisturunum yfir. Írarnir fögnuðu gífurlega, en þeir eru á toppi
riðilsins ásamt Pólverjum með sjö stig.
Ótrúlegt atvik kom upp í leik Serba og Albana þar sem dróni
með albanska fánann flaug yfir völlinn. Þegar Stefan Mitrovic,
miðvörður Serba, tók flaggið niður varð allt vitlaust og þurfti
Martin Atkinson, dómari leiksins, að blása hann af.
Ronaldo bjargaði Portúgal
FÓTBOLTI „Þetta var bara mark.
Dómarinn flautar bara ósjálfrátt.
Hann veit ekki sjálfur á hvað hann
flautar,“ sagði Ólafur Karl Finsen,
vængmaður Íslands, um dóminn
umdeilda í leiknum.
Spurður hvort markmenn væru
heilagir svaraði hann:„Mér sýnist
það vera þannig. Hann vissi ekki
hvað var að. Hann flautaði bara út af
einhverju.“
Ljós er að markið hefði komið
okkar strákum í góða stöðu þar sem
Danir hefðu þurft að sækja enn
meira og opna sig til baka.
„Þetta hefði farið langleiðina
með þetta, en svona er þetta sport.
Það er ekki hægt að væla yfir þessu
núna. Þetta var mjög erfiður leikur
líkamlega og andlega. Mér fannst
okkur takast þetta ágætlega. Það
var farið af draga af mér í endann,“
sagði Ólafur Karl.
Hann segir Danina mjög góða.
„Þeir eru mjög sterkir. Það eru
kannski einhverjir að vanmeta þá
af því að þetta er ekki Spánn eða
Portúgal, en þeir hafa sýnt það að
þeir eru heimsklassalið. Við þurftum
100% einbeitingu í að halda þeim
frá markinu, en því miður tókst þetta
ekki alveg,“ sagði Ólafur Karl. - iþs
Hann fl autaði bara út af einhverju
BROT? Ólafur Karl Finsen var dæmdur
brotlegur í þessu atviki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Ferðalag íslenska U-21
árs landsliðsins í fótbolta í undan-
keppni EM 2015 tók enda á Laugar-
dalsvellinum í gær. Eftir að Íslend-
ingar höfðu haldið markinu hreinu
í þrjá klukkutíma skoruðu Danir á
90. mínútu.
Þar var að verki Nicolaj Thom-
sen með skoti af stuttu færi.
Íslenska liðinu tókst að jafna leik-
inn þegar Hólmbert Aron Frið-
jónsson skoraði af vítapunktinum,
en það kom of seint. Danir fóru
áfram á marki skoruðu á útivelli.
Umdeild ákvörðun
Leikurinn hefði getað farið á
annan veg ef ungverski dómar-
inn István Vad hefði dæmt mark
Ólafs Karls Finsen á 81. mínútu
gilt. Erfitt var að sjá hvað Vad
fannst athugavert við markið, en
Eyjólfur Sverrisson, landsliðs-
þjálfari, var að vonum óánægður
þessa ákvörðun:
„Þetta er virkilega sorglegt og
sérstaklega þar sem við skoruð-
um löglegt mark,“ sagði Eyjólfur
eftir leikinn, en hann kvaðst stolt-
ur af frammistöðu íslenska liðsins
í leikjunum tveimur.
„Strákarnir voru sprækir í þess-
um leik og stóðu sig virkilega vel
í einvíginu gegn gríðarlega öflugu
liði Dana. Þetta er mjög svekkj-
andi og strákarnir áttu meira skil-
ið,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Enginn sóknarleikur
Líkt og í fyrri leiknum voru Danir
mun meira með boltann og stjórn-
uðu ferðinni. Þeim gekk samt mun
betur að skapa sér færi en í leikn-
um í Álaborg.
Fredrik Schram, sem stóð í
íslenska markinu í stað Rúnars
Alex Rúnarssonar sem var meidd-
ur, þurfti nokkrum sinnum að taka
á honum stóra sínum, auk þess
sem dönsku leikmennirnir hittu
ekki íslenska markið í upplögðum
færum.
Sóknarleikur Íslands var, líkt
og í fyrri leiknum, varla til staðar.
Íslenska liðinu gekk illa að halda
boltanum og sóknir þess voru fáar
og ómarkvissar. Ekki bætti úr
skák að íslensku leikmennirnir
fóru illa með föst leikatriði í ein-
víginu.
Íslendingar áttu sinn besta kafla
í einvíginu í upphafi seinni hálf-
leiks í gær, þegar boltinn gekk
betur og liðið þorði að sækja.
„Við tókum vel á því, sérstaklega
í seinni hálfleik,“ sagði Eyjólfur
sem gerði fyrstu skiptingar sínar
í einvíginu í uppbótartíma í leikn-
um í gær. Spurður um ástæðu þess
svaraði hann:
„Þetta gekk vel og þá er maður
ekki að breyta miklu. Við vorum að
velta þessu fyrir okkur. Það voru
tveir leikmenn sem voru orðnir
lúnir, en þeir eru jafnframt góðar
vítaskyttur svo við ákváðum að
bíða aðeins og skoða þetta eftir
venjulegan leiktíma,“ sagði Eyj-
ólfur. Honum gafst því miður ekki
tækifæri til þess. ingvithor@365.is
Danir gerðu út um drauminn
Danmörk tryggði sér farseðilinn á Evrópumót U-21 árs landsliða í Tékklandi á næsta ári á kostnað Íslands.
Liðin skildu jöfn á Laugardalsvelli í gær með einu marki gegn einu, en umdeilt atvik hafði mikil áhrif.
AFSAKIÐ ÞETTA Stjörnumaðurinn fyrrverandi, Alexander Scholz, þakkar niðurlútum fyrirliða Íslands, Sverri Inga Ingasyni, fyrir leikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR