Fréttablaðið - 23.10.2014, Side 2

Fréttablaðið - 23.10.2014, Side 2
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 KJARAMÁL Um fimm hundruð meðlimir í Félagi tónlistarskóla- kennara lögðu niður kennslu í gær. Þeir krefjast sömu kjara og grunnskólakennarar njóta. Sigrún Grendal Jóhannesdótt- ir, formaður félagsins, segir að verkfallsaðgerðirnar nái til um 15 þúsund manns sem sé fjöldi þeirra sem eru í tónlistarnámi. Tónlistarskólar tengist öðrum skólum og því hafi aðgerðirnar einnig áhrif á störf þeirra. Síðast þegar tónlistarkennarar fóru í verkfall fyrir þrettán árum stóð það yfir í fimm vikur. - hó Verkfall tónlistarkennara: Áhrifin ná til 15 þúsunda DÓMSMÁL „Það er óumdeild lækn- isfræðileg staðreynd, sem jafn- framt er hverjum manni ljós sem hittir stefnanda í fyrsta skipti, að hann þarf sólarhringsaðstoð þar sem honum er ókleift að sjá um sig sjálfur,“ segir í stefnu Bene- dikts Hákonar Bjarnasonar sem stefnt hefur Jóni Gnarr, fyrrver- andi borgarstjóra. Benedikt sem er fjölfatlaður stefnir vegna ákvörðunar Reykja- víkurborgar um að synja beiðni hans um sólarhringsaðstoð. Hann vill eina og hálfa milljón króna í miskabætur. - sks Fjölfatlaður stefnir Gnarr: Fær ekki aðstoð að næturlagi SPURNING DAGSINS Gæði fara aldrei úr tísku Vaskar og blöndunartæki KVIKMYNDAGERÐ „Það er mjög skrítið að Íslandsstofa treysti ekki íslensku fag- fólki til að kynna Ísland,“ segir Stefanía Thors, vara- formaður Félags kvik- myndagerðarmanna. Nýju myndbandi Íslands- stofu, sem er hluti herferð- arinnar Inspired By Ice- land, er ætlað að kynna Ísland sem spennandi vetraráfangastað. Mynd- bandið var unnið af Íslandsstofu í samstarfi við Íslensku auglýsinga- stofuna, almannatengslaskrifstof- una Brooklyn Brothers í London og Pulse Films. Leikstjórar og kvik- myndatökumenn á vegum Pulse Films gerðu myndbandið. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn undra sig á því að ekki hafi verið leitað til fagfólks hérlendis. Daði Guðjónsson hjá Íslandsstofu segir tækifæri hafa falist í því að fá erlenda í verkið. „Glöggt er gestsaugað. Við vorum að fara í gang með þennan leyndar- málatúr og við vildum að þeir sem færu förina vissu ekki mikið um landið. Þetta er margverð- launað leikstjóra par sem hefur unnið með heims- þekktum aðilum eins og 50 cents, Kate Perry og Nokia. Það má ekki gleyma að þetta er markaðsher- ferð á heimsvísu og það eru ákveðin tækifæri í kynn- ingu að fá svona aðila til að vinna með okkur,“ segir Daði. Fyrir gerð myndbandsins var efnt til samkeppni þar sem fólk átti að lýsa draumaferðalagi um Ísland. Var einn valinn til að fara í sína draumaferð. Að sögn Daða kostaði vinna erlendu aðilanna sex milljónir. Á heimasíðu Íslandsstofu kemur fram að meðal yfirlýstra markmiða sé að tryggja markvisst kynning- ar- og markaðsstarf sem miðar að því að auka gjaldeyristekjur lista og skapandi greina. „Það skýtur skökku við að nota erlend fyrir- tæki til þess að kynna Ísland,“ segir Stefanía. Undarlegt sé að ekki hafi verið leitað til fagfólks hérlendis til að gera myndbandið og kynna íslenskt fagfólk í leiðinni. „Er ekki alltaf verið að tala um að það vanti gjaldeyri inn í landið en þeir borga erlendum aðilum fyrir þessa vinnu.“ Hrafnhildur Gunnarsdóttir, for- maður Félags kvikmyndagerðar- manna, tekur í sama streng. „Það er alveg ótrúlega skrítið, sérstaklega í þessu árferði þegar íslenskir kvikmyndagerðarmenn berjast í bökkum, að leitað sé út fyrir landsteinana. Það er undar- legt að það sé þá ekki reynt að beina þessum viðskiptum til íslenskra kvikmyndagerðarmanna,“ segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir. viktoria@frettabladid.is Kvikmyndagerðarfólk ósátt við Íslandsstofu Forsvarsmenn Félags kvikmyndagerðarmanna undra sig á því að ekki hafi verið leitað til íslensks fagfólks við gerð kynningarmyndbands nýrrar herferðar Íslands- stofu fyrir Inspired by Iceland. Erlendir aðilar leikstýrðu og tóku upp myndbandið. MYNDBANDIÐ Í myndbandinu er manneskju fylgt eftir á draumaferða- lagi hennar um landið. Það má ekki gleyma að þetta er markaðsher- ferð á heims- vísu. Daði Guðjónsson hjá Íslandsstofu. STEFANÍA THORS Gylfi, er allt á uppleið? „Já, en það sem fer upp kemur niður aftur.“ Hagdeild Alþýðusambands Íslands segir horfur í efnahagsmálum bjartari en þær hafa lengi verið. Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ. IÐNAÐUR Það var gott útsýni hjá iðnaðarmönnunum sem voru við störf uppi á þaki nýbyggingar í Hvörfunum í Kópavogi í gær. Kólnað hefur í veðri síðustu daga og menn voru vel klæddir á þak- inu enda fátt verra en að vera illa búinn þegar vetur konungur lætur til sín taka. Hiti verður í kringum frostmark á norðanverðu landinu á morgun en sunnan heiða verður örlítið mildara með hitatölum upp í 5 gráður í Vestmannaeyjum samkvæmt Veðurstofu Íslands. - hó Iðnaðarmenn í Hvörfunum í Kópavogi ber við himin: Verk að vinna þótt vetur sæki að UNNIÐ Guli liturinn lífgaði upp á grámann sem lá yfir Reykjavík í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Íslenska ríkið var í gær sýknað af tveggja og hálfrar milljónar skaðabótakröfu Lárusar Páls Birgissonar sem var handtekinn í tvígang við að mótmæla fyrir framan banda- ríska sendiráðið. Lárus var fyrst handtekinn við mótmæli við bandaríska sendiráðið í október 2009 og í síð- ara skiptið í júlí 2010. Í bæði skiptin stóð hann fyrir innan blómaker við inngang sendiráðs- ins. Þegar lögregla kom á vettvang neitaði hann að verða við boðum um að færa sig fjær. Vildi Lárus meina að hann væri staddur á almennri gangstétt og hefði því rétt á að mót- mæla friðsamlega þar. Lárus Páll byggði kröfu sína á þeim forsend- um að ríkið hefði brotið gegn tjáningarfrelsi, ferðafrelsi og fundafrelsi. Benti hann á að rétturinn til að mótmæla væri viðurkenndur hér á landi og að mótmæli hans hefðu verið friðsamleg. Héraðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu að ekki væri hægt að fallast á kröfu Lárusar Páls þar sem ekki hefði verið sýnt fram á að nokkur réttarbrot hefðu verið fram- in gagnvart honum. hannarut@365.is Ríkið sýknað af skaðabótakröfu manns sem handtekinn var við bandaríska sendiráðið á Laufásvegi á árunum 2009 og 2010: Mátti ekki mótmæla á sendiráðslóðinni MÓTMÆLIR Lárus Páll Birgisson fór fram á tvær og hálfa milljón króna í bætur frá ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EVRÓPUMÁL Evrópuþingið samþykkti í gær að Jean Claude Juncker, fyrrverandi forætisráð- herra Lúxemborgar, yrði næsti forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Jafn- framt fengu nýju framkvæmdastjórarnir, sem alls eru 26 talsins auk Junckers, samþykki þingsins. Juncker segir að meginverkefni sitt verði að styrkja hagvöxt og fjölga störfum í aðildarríkj- um sambandsins, sem mörg hver hafa glímt við erfiðar efnahagsþrengingar undanfarin ár. Þrír stærstu þinghóparnir styðja nýju fram- kvæmdastjórnina, sem tekur til starfa í byrjun desember og mun hafa forystu um mótun lög- gjafar sambandsins næstu fimm árin. Juncker tekur við af Jose Manuel Barroso, sem hefur verið forseti framkvæmdastjórnar- innar í tvö kjörtímabil, samtals tíu ár. Jafnframt mun Donald Tusk, fyrrverandi forsætisráðherra Póllands, taka við af Herman van Rompuy sem forseti ráðs Evrópusam- bandsins. - gb Evrópuþingið hefur gefið nýrri framkvæmdastjórn grænt ljós: Juncker kosinn í forsetastólinn JEAN-CLAUDE JUNCKER Fagnar kjöri sínu á Evrópuþinginu í gær, en að baki honum sjást mótmælaborðar frá Bretanum Nigel Farage og félögum sem vilja engar aðhaldsaðgerðir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.