Fréttablaðið - 23.10.2014, Page 20
23. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20
Klakki ehf., sem áður hét Exista,
hefur selt allan hlut sinn í trygg-
ingafélaginu VÍS, en Klakki átti
um 22 prósent af öllu hlutafé.
Alls eru seldir liðlega 374 millj-
ón hlutir og nemur heildarverð-
mæti þeirra rúmlega 3,1 milljarði
króna. Einungis vika er liðin frá
því að Klakki seldi 1,66 milljarða
króna hlut í VÍS. Greint hefur
verið frá því að það voru lífeyris-
sjóðirnir Gildi, Stapi og Festa sem
keyptu hlutinn þann 13. október.
Helsta eign Klakka eftir söluna
á hlutnum í VÍS er hlutur í fjár-
málafyrirtækinu Lýsingu. - jhh
Heildarsalan 4,8 milljarðar:
Seldi allan hlut
sinn í VÍS
KAUPHÖLL ÍSLANDS VÍS hefur verið
skráð félag síðan í apríl 2013.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hlutafé N1 verður lækkað um
30 prósent, eða um 300 millj-
ónir króna að nafnvirði, gangi
eftir tillaga sem samþykkt
var á fundi hluthafa félagsins
á þriðjudag. Auk hlutafjár-
niðurfærslunnar var sam-
þykkt að færa yfirverðsreikn-
ing hlutafjár félagsins niður
um tæpa 3,6 milljarða króna.
„Samtals verður hlutafé
félagsins því lækkað um kr.
3.859.628.000 og mun fjárhæðin
verða greidd út til hluthafa félagsins
hlutfallslega í samræmi við
hlutafjáreign þeirra í félaginu
í lok dags þann 28. nóvember
2014,“ segir í kauphallartil-
kynningu félagsins.
Eggert Þór Kristófers-
son, fjármálastjóri N1, segir
aðgerðina í samræmi við
þá stefnu sem mörkuð hafi
verið við skráningu félagsins
í Kauphöllina, að eiginfjár-
hlutfall félagsins yrði um 40 prósent. Í
síðasta árshlutauppgjöri félagsins var
hlutfallið 51,1 prósent. „Það var mat
stjórnar félagins að þetta væri stysta
leiðin til að nálgast markmið félagsins
um fjármagnsskipan,“ segir Eggert.
Aðgerðina segir hann ekki vera eins
og arðgreiðslu sem greidd sé af hagn-
aði ársins á undan, heldur sé þarna
verið að endurgreiða hluthöfum fé
sem sett hafi verið í félagið. „N1 er
fyrsta íslenska félagið í Kauphöllinni
sem fer þessa leið,“ segir hann. Endur-
greiðslan geti átt sér stað að fenginni
heimild ríkisskattstjóra. Tilkynna á
um endanlegar dagsetningar til Kaup-
hallar þegar þær liggja fyrir. - óká
EGGERT ÞÓR
KRISTÓFERSSON
Hluthafafundur samþykkti í byrjun vikunnar tillögu stjórnar um að lækka hlutafé N1 um sem nemur þrjátíu prósentum:
N1 endurgreiðir hluthöfum 3.860 milljónir króna
Hluthafi Eignarhlutur Endurgreiðsla
1. Lífeyrissjóður verslunarmanna 14,2% 548,1 milljón króna
2. Lífeyrissj. starfsm. rík. A-deild 7,7% 298,7 milljónir króna
3. Gildi– lífeyrissjóður 7,6% 292,1 milljón króna
4. Stafir lífeyrissjóður 5,7% 220,1 milljón króna
5. Almenni lífeyrissjóðurinn 5,0% 193,0 milljónir króna
6. Helgafell ehf.** 4,2% 162,4 milljónir króna
7. Sameinaði lífeyrissjóðurinn 3,9% 152,0 milljónir króna
8. Landsbankinn hf. 3,8% 145,9 milljónir króna
9. Lífeyrissj. starfsm. rík. B-deild 3,4% 131,0 milljón króna
10. Straumur fjárfestingabanki hf. 2,8% 107,1 milljón króna
*Hlutdeild stærstu hluthafa N1 í fyrirhugaðri lækkun hlutafjár, miðað við
lista 20 stærstu hluthafa í byrjun október 2014. **Félag í eigu eigenda Nathan & Olsen.
➜ Hlutur 10 stærstu í endurgreiðslu N1*
Fataverslanakeðjan NTC, sem
rekur meðal annars Gallerí 17,
stefnir á opnun netverslunar á
næstunni og vinnur nú að upp-
færslu síðunnar. „Við erum að
reyna að setja hana í gang fyrir
jól þannig að hún verði vonandi til-
búin um miðjan nóvember,“ segir
Svava Johansen, eigandi versl-
unarinnar. Á síðunni verða seld
merki sem ekki eru seld í verslun-
unum.
Stefnan verður að selja tísku-
fatnað, skó og fylgihluti fyrir
herra og dömur, en einnig að
það verði umfjöllun og blogg um
klæðnað og tísku. „Við viljum gera
þarna skemmtilega og líflega síðu
og að fólk geti bara farið þarna inn
á og verslað eins og á vefsíðum
erlendis. Þetta er bara enn einn
valkosturinn,“ segir hún.
Svava segir að sala í versluninni
hafi alls ekki dregist saman. „En
maður veit aldrei hvort það hefði
verið enn meiri aukning ef það
væri ekki samkeppni við netversl-
un almennt,“ segir hún.
Svava býst ekki við því að með
tilkomu netverslunarinnar muni
þeim fækka sem komi í verslan-
ir hennar, til dæmis í Kringlunni
og Smáralind. „Ég á von á aukn-
ingu,“ segir hún og bætir því við
að flestir sem séu í verslunar-
rekstri og opni síðan netverslanir
samhliða séu sammála því að sýni-
leiki verslananna verði meiri. „Að
þetta verði bara stór búðargluggi
fyrir fólk sem kemst ekki og þetta
verði þannig að mestu leyti við-
bót.“
Netverslunin verði vonandi til
þess að þjónusta landsbyggðina
og líka til að þjónusta fólk sem er
ekki mikið fyrir að fara í verslan-
ir og þá sem hafa ekki tíma til að
fara í verslanir. Þá segist Svava
hafa fengið margar fyrirspurnir
að utan varðandi vörur sem NTC
framleiðir sjálft. Hvort og hvar
fólk geti keypt þær vörur sem
NTC framleiðir.
„Við erum að framleiða undir
þremur vörumerkjum. Það er nú
kannski það skemmtilegasta ef við
gætum farið að selja út fyrir land-
steinana í gegnum netverslunina.
En við erum ekki þannig fyrirtæki
að við séum númer eitt í fram-
leiðslu og að koma því út heldur
varð þetta viðbót sem hefur geng-
ið vel. Við framleiðum sjálf fimm-
tán prósent af öllum vörum sem
við seljum,“ segir Svava.
jonhakon@frettabladid.is
Tískuveldið NTC stefnir að
opnun nýrrar netverslunar
Áður en jólaverslunin fer á fullt mun tískuveldið NTC hefja sölu á netinu. Eigandinn, Svava Johansen, vonast
til að með þessu verði hægt að þjónusta betur fólk á landsbyggðinni og þá sem alla jafna sækja ekki verslanir.
Við
erum að
framleiða
undir þremur
vörumerkj-
um. Það er
nú kannski
það skemmtilegasta ef við
gætum farið að selja út
fyrir landsteinana í
gegnum netverslunina.
Svava Johansen,
eigandi verslunarinnar
Í KRINGLUNNI NTC rekur verslanir víða. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Rannsóknarsetur verslunarinnar á Bifröst vinnur nú að rannsókn á umfangi
netverslunar á Íslandi. Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknarsetursins,
segir ekki tímabært að gefa upp tölur að svo komnu máli. Hann geti þó sagt
að sem hlutfall af heildarverslun í landinu sé mun minna verslað í netverslun
hér á landi en í nágrannalöndum okkar.
„Hins vegar hefur vöxturinn verið mjög mikill. Hann hefur verið álíka
mikill í prósentum og hjá nágrannalöndum okkar,“ segir Emil. Hann bendir á
að skýringar á lítilli verslun hér séu að Íslendingar versli meira við útlenskar
netverslanir en neytendur í nágrannalöndum versli meira við innlendar
netverslanir. Þá séu tvær aðrar ástæður fyrir því að íslenskar netverslanir hafi
ekki náð sér almennilega á strik. „Í fyrsta lagi er lítill markaður og svo er hitt
sem menn nefna að það er stutt fyrir flesta að fara í hefðbundnar verslanir,“
segir Emil.
Lítil netverslun en vex þó örtJens Garðar Helgason hefur til-
kynnt framboð sitt til formanns
sameinaðs félags Landssambands
íslenskra útvegsmanna og Sam-
taka fiskvinnslustöðva.
Sameiginlegur fundur félag-
anna tveggja fer fram í lok mán-
aðarins. Fyrir aðalfundinum
liggur tillaga um sameiningu
samtakanna.
Jens Garðar tók við starfi
framkvæmdastjóra Fiskimiða
árið 2001 og gegndi því fram á
þetta ár. Hann er einnig formað-
ur bæjarráðs í Fjarðarbyggð. - jhh
Vill stýra sameinuðu félagi:
Jens Garðar
í framboð
Léttar veitingar í boði. Allir velkomnir.
Vinsamlegast skráið mætingu á felag@un.is
Hádegisspjall með Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra
Helstu málefni á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna 2014
Fundurinn er haldinn á vegum Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi,
Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins.
Gunnar Bragi mun fjalla um þátttöku sína á 69. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í
lok september og áherslur Íslands á vettvangi SÞ.
Þetta er einstakt tækifæri til þess að spjalla við utanríkisráðherra um þátttöku Íslands í
störfum Sameinuðu þjóðanna.
Í lok fundar mun ráðherra undirrita samstarfssamninga við Landsnefnd UNICEF á
Íslandi og Miðstöð Sameinuðu þjóðanna.
Fundarstjóri: Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Opinn fundur á degi Sameinuðu þjóðanna, föstudaginn
24. október kl. 12-13 – Björtuloft, Hörpu, 7. hæð.
Hagnaður Marel á þriðja árs-
fjórðungi nam um 1,5 milljörð-
um króna, en var um 918 milljón-
ir króna á sama tímabili í fyrra.
Hagnaðurinn hefur því aukist um
63% á milli ára. Tekjur á þriðja
ársfjórðungi námu 28,7 milljörð-
um króna en voru um 24 milljarðar
á sama tímabili árið á undan.
Pantanabók stóð í 25,9 milljörð-
um króna í lok þriðja ársfjórðungs
núna samanborið við 23,9 millj-
arða evra í lok annars ársfjórð-
ungs og var 21,2 milljarðar eftir
þriðja fjórðung í fyrra.
Árni Oddur Þórðarson, for-
stjóri Marel, segir í tilkynningu
að þriðji ársfjórðungur hafi verið
góður fyrir fyrirtækið. „Við höfum
skerpt á markaðssókn samhliða
því að taka mikilvæg skref til að
auka skilvirkni í rekstri. Sala og
tekjur jukust um 20% á milli ára
og rekstrarhagnaður hefur farið
vaxandi,“ segir hann.
Hann segir að áætlun um að
einfalda rekstur gangi eins og
gert var ráð fyrir. „Markmiðið
er að mæta þörfum viðskiptavina
með skilvirkari hætti og draga úr
árlegum kostnaði um 20-25 millj-
ónir á tímabilinu 2014-2015,“ segir
hann. - jhh
Forstjóri Marel sáttur við afkomu þriðja fjórðungs:
Hagnaður Marel var
1,5 milljarðar króna
FORSTJÓRINN Árni Oddur hefur verið
forstjóri Marel í eitt ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL