Akureyri - 30.01.2014, Blaðsíða 2
2 30. janúar 2014
Landvarsla skorin
í Mývatnssveit
Talsverð breyting verður á landvörslu
einstakra svæða vegna skerðingar
fjárframlaga til Umhverfisstofnunar. Á
heimasíðu Félags leiðsögumanna segir
að við Mývatn verði landvarsla dregin
saman um 20 vinnuvikur. Er vitnað til
fréttar Ríkisútvarpsins þar um.
Á Hveravöllum og við Þjórsá verði
engin landvarsla í ár en þar var unnið
í 10 vikur í fyrra. Á sunnanverðum
Vestfjörðum minnki landvarsla úr
20 vinnuvikum í 9.
Landverðir starfa í íslenskum
þjóðgörðum og á náttúruverndar-
svæðum á sumrin. Þeir taka á móti
gestum og veita upplýsingar. Þeir
veita fræðslu, gæta þess að ákvæði
friðlýsingar og náttúruverndarlaga
séu virt, hafa eftirlit með umferð og
umgengni, og sjá um framkvæmdir
eins og að leggja göngustíga og halda
tjaldsvæðum við. a
Leikmenn ógni fótboltanum
með veðmálum og siðleysi
Vísbendingar eru um að sumir leik-
manna Íþróttafélagsins Þórs á Akur-
eyri hafi í leik gegn Dalvík á dögun-
um veðjað á leik sem þeir sjálfir léku
þátt í 13. janúar sl. Um ræðir leik
í svokölluðu Kjarnafæðismóti þar
sem Þór lagði Dalvík að velli, 7-0. Til
skoðunar er hvort sumir leikmanna
Þórs hafi veðjað á erlendri vefsíðu á
eigin sigur og lagt aukalega undir ef
3ja marka sigur eða stærri næðist.
Hermt er að með því hafi þeir sem
mest lögðu undir grætt 100.000 til
150.000 á úrslitunum.
Veðmál eru almennt bönnuð á
Íslandi. Í gegnum erlendar vefsíður
svo sem bet365.com og betson.com
hefur það færst í vöxt að áhuga-
menn um fótbolta sjái hagnaðarvon
í því að veðja á úrslit. Pétur Heiðar
Kristjánsson sem þjálfar meistara-
flokk Dalvíkinga í fótbolta segir að
ef leikmenn Þórs hafi veðjað á eigin
leik fordæmi hann slíkt. Ekki væri
þó um einangrað athæfi að ræða í
íslenskum knattspyrnuheimi. Enn
verra væri ef leikmenn veðjuðu gegn
sjálfum sér og töpuðu leik vísvitandi
til að græða pening. Breiðablik láti
leikmenn skrifa undir samning þar
sem þeir heiti því að veðja ekki á
leiki sem tengist þeim sjálfum. Hins
vegar sé erfitt að koma slíku við hjá
félagi eins og Dalvík sem geri ekki
samninga við leikmenn. Þótt svo
væri yrði ekki allur vandi leystur,
því hægt sé að veðja í gegnum nöfn
annarra. Fyrst og síðast verði veð-
mál því siðleg spurning. Ekki verði
séð að lagalega sé hægt að tryggja
að menn misnoti ekki aðstöðu sína.
Pétur Heiðar segir að veðmál í
fótboltanum séu orðin mjög algeng
hér á landi, t.d. sjáist fjöldi áhorf-
enda á knattspyrnuleikjum með
síma sína á lofti, oft veðjandi á úr-
slit. „Fótboltinn á ekki að snúast um
þetta,“ segir Pétur Heiðar.
Páll Viðar Gíslason, þjálfari
meistaraflokks hjá Þór, segist ekki
hafa fengið staðfest að einhverjir
leikmenn liðsins hafi veðjað á eigin
leik en brugðist verði við orðróm-
inum. Hann vill ítreka að svona
framkoma væri ekki aðeins siðlaus
heldur ólögleg.
Þjálfari Þórs segir ekki útilokað að
Þór muni falast eftir svipuðum samn-
ingum við leikmenn og Breiðablik
hafi gert, að leikmenn meistaraflokks
skulbindi sig til að veðja ekki á það
sem þeir geta haft áhrif á. Viðurlög
við broti gætu numið sekt, leikbanni
eða jafnvel riftun samnings eða banni.
„Mesti glæpurinn er náttúrlega
ef veðmálin hafa bein áhrif á gagn
leiksins og úrslit. Það má ekki ger-
ast að fótboltinn fari að snúast um
eitthvað svona rugl,“ segir Páll Viðar,
þjálfari Þórs. a
Ásakanir um lýðskrum lýsi getuleysi
Stjórn og trúnaðarmannaráð Fram-
sýnar kom saman til fundar nýverið
til að ræða niðurstöðuna úr atkvæða-
greiðslunni um kjarasamning Sam-
taka atvinnulífsins og Starfsgreina-
sambands Íslands sem Framsýn á
aðild að. Eins og fram hefur komið
var kjarasamningurinn kolfelldur
meðal félagsmanna Framsýnar og
reyndar víða um land. Fundarmenn
á Húsavík fögnuðu niðurstöðunni
með því að fá sér kaffi og tertu. Í
lok fundar var samþykkt ályktun
þar sem m.a. segir: „Niðurstaðan er
skýr. Bullandi andstaða er við kjara-
samninginn sem sést best á því að
samningurinn var víða felldur auk
þess sem hann var samþykktur með-
al annarra stéttarfélaga með mjög
naumum meirihluta.
Í málflutningi Framsýnar hefur
komið fram að kjarasamningur-
inn væri ekki boðlegur verkafólki
og þá væru skattkerfisbreytingar
ríkistjórnarinnar móðgun við lág-
launafólk. Svo ekki sé talað um
verðhækkanir síðustu vikurnar hjá
ríki, sveitarfélögum, verslunar- og
þjónustuaðilum, sem eru á skjön við
markmið samningsins.“
Einnig segir: „Því miður voru
nokkrir talsmenn innan Alþýðusam-
bands Íslands sem kölluðu þennan
málflutning lýðskrum. Þeir þurfa nú
að bíta í það súra epli að vera með
felldan kjarasamning þrátt fyrir að
hafa gert allt til þess að félagsmenn
þeirra samþykktu þennan gjörning.
Framsýn mun hér eftir sem hing-
að til berjast fyrir kjörum þeirra
lægst launuðu. Velji menn að kalla
það lýðskrum lýsir það getuleysi við-
komandi aðila til að standa í lapp-
irnar í þágu félagsmanna.“
Mótstaða við kjarasamninginn
var mest á landsvísu í Þingeyjarsýslu,
enda hefur Aðalsteinn Baldursson
hjá Framsýn farið einna hörðustu
orðum um viðleitni atvinnurekenda
og stjórnvalda til að knésetja verka-
lýðinn. a
Óvíst hvort Andrea leiðir
áfram lista VG
„Ég er ekki alveg búin að gera upp
hug minn,“ segir Andrea Hjálms-
dóttir, bæjarfulltrúi og oddviti VG á
Akureyri. Persónulegar ástæður eru
samkvæmt heimildum fyrir því að
ekki liggur fyrir hvort hún gefi kost
á sér til að leiða listann.
Flokksmenn sem blaðið ræddi við
segja Andreu njóta mikils trausts og
hallast þeir að því að hún væri mjög
líkleg til að fá áframhaldandi umboð
frá flokksmönnum til að leiða list-
ann. Edward Huijbens er varabæj-
arfulltrúi VG en hann er jafnframt
varaþingmaður fyrir NA-kjördæmi.
Frestur til að gefa kost á sér í 5
efstu sæti lista VG á Akureyri rennur
út annað kvöld en kosið verður á
valfundi þann 22. febrúar næstkom-
andi. Aðeins félagar í Vinstrihreyf-
ingunni grænu framboði geta kosið
og eigi síðar en 10 dögum fyrir val-
fundinn eða 12. febrúar.
Kjörgengir eru íbúar Akureyrar,
Hríseyjar og Grímseyjar sem hafa
kosningarétt í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningunum sem fram
fara þann 31. maí í vor. a
Akureyri
vikublað er
aðgengilegt
á akv.is