Akureyri - 20.02.2014, Page 4
4 7. tölublað 4. árgangur 20. febrúar 2014
8 nætur / 9 dagar
Verð frá kr. 190.700
Beint flug frá Akureyri 18. - 26. júní
(Flugvallarskattar innifaldir)
Sími: 461 1841 - www.nonnitravel. is
Portoroz & Ljubljana - Júlíönsku alparnir & Bled (örfá sæti laus)
Slóvenía & Ungverjaland - Slóvenía & Króatía (uppselt)
Málið komið á annað stig
Í viðtali við Geir Kristin Aðalsteins-
son sem birtist í Akureyri vikublaði
12. janúar 2012 skömmu eftir að
stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyja-
fjarðar tók þá ákvörðun að ráða
Þorvald Lúðvík Sigurjónsson sem
fulltrúa almannaþjónustu í starf
framkvæmdastjóra AFE, kom fram
að stjórnin hefði ekki verið einhuga
að ráða Þorvald til starfans. Þar bar
einnig á góma hvernig málið var
kynnt almenningi fyrst. Í opinberri
fréttatilkynningu frá
AFE þegar ráðningin
var kynnt fjölmiðlum
sagði að Þorvaldur
hefði „aðstoðað“ sér-
stakan saksóknara við
rannsóknir.
Í síðustu viku var
Þorvaldi Lúðvík birt
ákæra þar sem hann er
sakaður um efnahagsaf-
brot í svokölluðu Stím-
máli. Sjálfur hefur
Þorvaldur Lúðvík ósk-
að eftir að vera leystur
undan starfskyldum
sem framkvæmdastjóri og hefur
stjórn AFE orðið við því. Hann er
þó enn að störfum hjá félaginu.
STJÓRN SAMKVÆM SJÁLFRI SÉR
Grétar Þór Eyþórsson, stjórnsýslu-
fræðingur við Háskólann á Akur-
eyri, segir að þegar stjórn AFE réð
Þorvald Lúðvík á sínum tíma til
starfa hafi hann haft réttarstöðu
sakbornings í málinu. Stjórnin, eða
meirihluti hennar, hafi því talið að
málið væri ekki þess eðlis að það
þyrfti að koma í veg fyrir ráðningu.
Um beina faglega hæfni hafi sér vit-
anlega ekki verið deilt. „Formaður
stjórnar sagði sakfellingu eina geta
breytt málinu. Því hlýtur stjórnin að
hafa þá þegar verið búin að gera ráð
fyrir þeim möguleika að til ákæru
gæti komið. Nú, þegar ákæra er
staðreynd er málið þó engu að síður
komið á annað stig, þó vissulega sé
Þorvaldur Lúðvík ekki dæmdur fyrir
eitt eða neitt. Það er að sjá að núver-
andi stjórn með nýjum formanni hafi
þótt þetta fremur óþægileg staða og
því ákveðið að framkvæmdastjórinn
kæmi ekki fram af hálfu félagsins
a.m.k. á meðan mál hans væru óút-
kljáð.“
Hinn nýi formaður sem Grétar
Þór vísar til er Oddur Helgi Hall-
dórsson. „Það, að Þor-
valdur Lúðvík víki ekki
að fullu, heldur starfi
áfram baksviðs, verð-
ur að túlka þannig að
stjórnin beri traust til
hans faglega. Það er því
mat hennar að hægt sé
að skilja á milli fag-
legrar vinnu og þess að
koma fram opinberlega
af hálfu félagsins. Vafa-
laust kann einhverjum
að finnast lausn af þessu
tagi orka tvímælis en ég
tel að hefði hann ver-
ið leystur alfarið frá störfum hefði
stjórnin komist í vissa mótsögn við
sjálfa sig þar sem hún ákvað að ráða
hann á sínum tíma, þrátt fyrir að
hann hefði réttarstöðu sakbornings,“
segir Grétar Þór.
GEIR TÓK MISTÖKIN Á SIG
Í viðtali Akureyrar vikublaðs við
Geir Kristin, í ársbyrjun 2012, tek-
ur Geir ábyrgð á því að Þorvaldur
var sagður í fréttatilkynningunni
hafa aðstoðað saksóknara þegar hið
rétta var að hann lá undir grun um
saknæmt afbrot sem nú er komið á
formlegt stig innnan kerfisins. „Ég
tek þau mistök á mig. Það var ekki
meiningin að blekkja neinn,“ sagði
Geir Kristinn þá, fv. formaður stjórn-
ar AFE og núverandi formaður bæj-
arstjórnar á Akureyri.
KVÍÐUR EKKI NIÐURSTÖÐUNNI
Blaðið hafði samband við Þorvald
Lúðvík eftir að ákæran hafði verið
birt honum. Hann vildi ekki segja neitt
að svo stöddu. Ákæran hefur vomað
yfir höfði Þorvaldar Lúðvíks um langt
árabil og hefur hann lýst opinberlega
hvers konar áþján fylgi slíkri bið. Sagt
hefur verið að hin niðurstaðan, að ráða
Þorvald ekki til AFE, hefði einnig ork-
að tvímælis að því gefnu að hann hafi
verið hæfastur umsækjenda til starfa.
Engum manni sé hollt að vera kippt
úr tengslum við samfélag sitt svo lengi
meðan þess þurfi að bíða að réttarríkið
vinni sína vinnu. Aðrir viðmælendur
blaðsins benda á mikilvægi þess að
fullt traust ríki milli almennings og
þeirra sem starfa í umboði fyrir hann.
Ekki síst vegna eftirmála hrunsins þar
sem gríðarlegar álögur hafa færst á
byrðar almennings, gagngert vegna
brota sumra bankamanna sem sumir
hafa þegar verið dæmdir sekir. „Þetta
var aldrei einfalt mál,“ sagði sveitar-
stjórnarmaður í Eyjafirði í samtali við
blaðið.
MUN HAFA SINN FARVEG
Í stöðufærslu Þorvaldar Lúðvíks á
facebook tjáir hann sig á eigin síðu
með eftirfarandi hætti:
„Í dag barst mér ákæra frá embætti
sérstaks saksóknara. Í henni er ég
ákærður fyrir hlutdeild í umboðs-
svikum framkvæmdastjóra hjá
Glitni vegna viðskipta með skulda-
bréf útgefnu af Stími ehf..
Nánar er tiltekið að ég hafi með
„hvatningu og liðsinni“ stuðlað að
fjártjóni sem síðar varð, en ekki lá
fyrir að myndi verða er viðskiptin
áttu sér stað á árinu 2008.
Þess ber sérstaklega að geta að ég
vann ekki í Glitni fyrr eða síðar, né
hafði umboð fyrir hönd þess banka.
Það er að ákveðnu leyti léttir að
þremur og hálfu ári eftir að hafa
fengið stöðu sakbornings skuli nú
leitast við skýra það. Málið verður
dómtekið 28. febrúar og mun hafa
sinn eðlilega farveg.“ a
SKIPTAR SKOÐANIR HAFA verið bæði meðal stjórnarmanna AFE og almennings um ráðningu framkvæmdastjóra Atvinnuþróunar-
félags Eyjafjarðar. Völundur
FRAMKVÆMDASTJÓRI AFE ákærður fyrir efnahagsbrot.
GRÉTAR ÞÓR EYÞÓRSSON:
Orkar tvímælis en stjórn
samkvæm fyrri ákvörðun.
GEIR KRISTINN AÐALSTEINSSON: Sagði í fréttatilkynningu að Þorvaldur Lúðvík hefði
aðstoðað sérstakan saksóknara. Sú „aðstoð“ hefur nú breyst í ákæru. Völundur