Akureyri - 20.02.2014, Page 12
12 7. tölublað 4. árgangur 20. febrúar 2014
GRENNDARGRALIÐ
Gral vikunnar
Grenndargralið kastar út litl-
um kaleikum og hrósar vikulega
einstaklingum eða hópum sem sett
hafa mark sitt á nærumhverfið
með einum eða öðrum hætti. Með
þessu reynum við að draga fram í
sviðsljósið hvunndagshetjur sem
efla menningu heimabyggðar með
framlagi sínu, hversu stórt eða lítið
sem það kann að vera. Grenndar-
gralið hefur úthlutað grali vikunnar
með hléum frá því í janúar árið 2013.
Í hópi þeirra sem hlotið hafa gral
vikunnar má finna einstaklinga og
hópa úr öllum áttum. Menningar-
legir gjörningar þeirra eru eftir því.
Eftirtaldir hafa hlotið gral vikunnar
síðastliðið ár:
Lið Naustaskóla í First Lego –
tækni- og hönnunarkeppni grunn-
skólabarna. Starfskonur í Giljaskóla.
Atli Már Rúnarsson. Freyjurnar.
Freyvangsleikhúsið. Mublur hús-
gagnaviðgerðir. Akureyri vikublað.
Aðstandendur grautardags í Hrísey.
Steven Coberly. Starfsfólk Amts-
bókasafnsins. Veðurguðirnir. Gall-
erý Sigga-búð á Dalvík. Thelma Líf
Gautadóttir. Aðstandendur bænda-
dags í Þelamerkurskóla. Pharmarct-
ica á Grenivík. Baldvin B. Ringsted,
Bragi Finnbogason, Stefán Bjarn-
héðinsson og Ragnar B. Ingvarsson.
Barnakór Lundarskóla og Margrét
Árnadóttir. Aðstandendur hátíðar-
innar Ólæti á Ólafsfirði. Valdimar
Gunnarsson og Þórir Haraldsson.
Gestir samverukvöldstundar á
Möðruvöllum. Hríseyjarskóli. Dav-
íð Ingi Guðmundsson, Dýri Bjarn-
ar Hreiðarsson, Eyþór Halldórsson,
Jóhanna Eyjólfsdóttir og Sveinbjörg
Jana Aðalsteinsdóttir. Gangnamenn
og konur í Svarfaðardal. a
Menning og saga Eyjafjarðarsveitar til sölu
– Af hverju ekki?
Af hverju markaðssetjum við ekki
Eyjafjarðarsveit sem spennandi
áfangastað fyrir erlenda ferða-
menn? Fjöldi skemmtiferðaskipa
sem heimsækir Akureyri á sumr-
in er gríðarlegur. Við fögnum því
vissulega en Laufás og Mývatnssveit
taka ekki endalaust við. Auðvitað
er Mývatnssveit einstakur staður.
Straumurinn mun því áfram liggja
þangað þó aðrir spennandi áfanga-
staðir bætist í hópinn. Með því að
beina fjöldanum í fleiri en eina átt
dreifist álagið. Þannig skapast svig-
rúm til að taka áfram við ört vax-
andi fjölda ferðamanna. Með fleiri
valkostum fyrir túristana ætti að
reynast auðveldara að koma til móts
við mismunandi þarfir þeirra auk
þess sem fleiri aðilar í ferðamennsku
fá bita af kökunni. En hvað er það
sem Eyjafjarðarsveit hefur upp á
að bjóða fyrir erlenda ferðamenn?
Fyrir utan að vera einhver falleg-
asta sveit landsins drýpur sagan af
hverju strái í Eyjafjarðarsveit. Ekki
síst á kirkjujörðunum sex! Þar leyn-
ast sögulegar gersemar sem geta
kveikt áhuga aðkomufólks ef rétt
er haldið á spöðunum. Gersemar sem
undirstrika sérstöðu byggðarlagsins.
Gersemar sem hægt er að tengja við
Íslendingasögurnar. Síðast en ekki
síst gersemar sem hægt er að tengja
við reynsluheim þeirra erlendu gesta
sem heimsækja kirkjurnar. Hvernig?
Jú, saga þeirra nær svo langt aftur
í tímann að tiltölulega einfalt er að
tengja sögu þeirra á einn eða annan
hátt við aðrar þjóðir. Skoðum örfáar
staðreyndir um guðshúsin sem hægt
er að nota til að búa til bragðmik-
inn kokteil fyrir þyrsta ferðamenn:
Óvenjulegt byggingarlag Kaupang-
skirkju og tenging við kaþólskan sið.
Munkþverárkirkja, Jón Arason og
Sturlunga. Merkilegt klukknaport
við Möðruvallakirkju og altarisbrík
frá Notthingham í Englandi. Hóla-
kirkja helguð Jóhannesi skírara og
tenging við eitt ljótasta glæpamál á
Íslandi á 17. öld. Saurbæjarkirkja er
ein örfárra torfkirkna á landinu og
þar var klaustur í kringum árið 1200.
Grundarkirkja, Magnús Sigurðsson,
Þórunn Jónsdóttir (Arasonar) og
Grundarbardagi. Hér mætti telja
upp mikið mun meira í sambandi við
kirkjurnar sex. Við skulum þó láta
hér staðar numið en nefnum vett-
vang nokkurra sögulegra atburða í
sveitinni til viðbótar sem hafa alla
burði til að vekja athygli erlendra
ferðamanna: Kálfagerði og morð-
saga bræðranna, Gnúpufell og prent-
smiðjan á 16. öld, Melgerðismelar
og saga hernámsliðsins, Möðrufell
og holdsveikraspítalinn, Espihóll og
saga Jóns Espólín sagnaritara, Krist-
nes og berklahælið. Til að krydda
sannleikann má notast við krydd úr
heimabyggð sem útlendingar elska –
þjóðsögurnar um Hleiðargarðsskottu
og álfkonuna í Konuklöpp sunnan
Kristness. En það er ekki bara sagan
sem heillar. Menningin er aðdráttar-
afl og hún blómstrar í Eyjafjarðar-
sveit. Jólagarðurinn, smámunasafnið,
Helgi og Beate með eldsmíðina í
Kristnesi og fjölmargir aðrir hand-
verksaðilar og gallerý svo eitthvað
sé nefnt. Hér hafa ekki verið nefnd
til sögunnar öll þau tækifæri sem
náttúran og landslagið bjóða upp á
í formi fræðslu og upplifunar; fjöllin,
jarðsagan, Hólavatn, Leyningshólar,
jarðhiti, Möðrufellshraun. Já, ljóst er
að Eyjafjarðarhringurinn er vannýtt
auðlind. Samgöngur eru greiðar í
Eyjafjarðarsveit, hringurinn er auð-
veldur yfirferðar og allt sem að ofan
er nefnt er í seilingarfjarlægð frá
veginum. Þannig er einfalt að sníða
umfang ferðalagsins eftir þörfum
ferðamannsins. Hægt er að fara hr-
inginn á broti úr degi með því að
stoppa lítið sem ekkert og leyfa
ferðamanninum að njóta gegnum
bílrúðuna undir styrkri stjórn leið-
sögumanns. Einnig er hægt að fara
hringinn á nokkrum klukkustundum
með því að staldra við á nokkrum
stöðum m.a. til að gæða sér á veiting-
um úr heimabyggð. Lambalærið á
Öngulsstöðum og ísinn í Holtsseli
svíkja engan. Brettum upp ermar og
kynnum gersemar Eyjafjarðarsveitar
fyrir erlendum ferðamönnum. Við-
skipta og menningarhugmynd á
krepputímum? Af hverju ekki? a
GRUND Í EYJAFJARÐARSVEIT. Meðal fallinna í Grundarbardaga árið 1362 voru Smiður Andrésson hirðstjóri og Jón Guttormsson
skráveifa.
GRAL VIKUNNAR BIRTIST á www.grenndargral.is.