Akureyri


Akureyri - 20.02.2014, Blaðsíða 12

Akureyri - 20.02.2014, Blaðsíða 12
12 7. tölublað 4. árgangur 20. febrúar 2014 GRENNDARGRALIÐ Gral vikunnar Grenndargralið kastar út litl- um kaleikum og hrósar vikulega einstaklingum eða hópum sem sett hafa mark sitt á nærumhverfið með einum eða öðrum hætti. Með þessu reynum við að draga fram í sviðsljósið hvunndagshetjur sem efla menningu heimabyggðar með framlagi sínu, hversu stórt eða lítið sem það kann að vera. Grenndar- gralið hefur úthlutað grali vikunnar með hléum frá því í janúar árið 2013. Í hópi þeirra sem hlotið hafa gral vikunnar má finna einstaklinga og hópa úr öllum áttum. Menningar- legir gjörningar þeirra eru eftir því. Eftirtaldir hafa hlotið gral vikunnar síðastliðið ár: Lið Naustaskóla í First Lego – tækni- og hönnunarkeppni grunn- skólabarna. Starfskonur í Giljaskóla. Atli Már Rúnarsson. Freyjurnar. Freyvangsleikhúsið. Mublur hús- gagnaviðgerðir. Akureyri vikublað. Aðstandendur grautardags í Hrísey. Steven Coberly. Starfsfólk Amts- bókasafnsins. Veðurguðirnir. Gall- erý Sigga-búð á Dalvík. Thelma Líf Gautadóttir. Aðstandendur bænda- dags í Þelamerkurskóla. Pharmarct- ica á Grenivík. Baldvin B. Ringsted, Bragi Finnbogason, Stefán Bjarn- héðinsson og Ragnar B. Ingvarsson. Barnakór Lundarskóla og Margrét Árnadóttir. Aðstandendur hátíðar- innar Ólæti á Ólafsfirði. Valdimar Gunnarsson og Þórir Haraldsson. Gestir samverukvöldstundar á Möðruvöllum. Hríseyjarskóli. Dav- íð Ingi Guðmundsson, Dýri Bjarn- ar Hreiðarsson, Eyþór Halldórsson, Jóhanna Eyjólfsdóttir og Sveinbjörg Jana Aðalsteinsdóttir. Gangnamenn og konur í Svarfaðardal. a Menning og saga Eyjafjarðarsveitar til sölu – Af hverju ekki? Af hverju markaðssetjum við ekki Eyjafjarðarsveit sem spennandi áfangastað fyrir erlenda ferða- menn? Fjöldi skemmtiferðaskipa sem heimsækir Akureyri á sumr- in er gríðarlegur. Við fögnum því vissulega en Laufás og Mývatnssveit taka ekki endalaust við. Auðvitað er Mývatnssveit einstakur staður. Straumurinn mun því áfram liggja þangað þó aðrir spennandi áfanga- staðir bætist í hópinn. Með því að beina fjöldanum í fleiri en eina átt dreifist álagið. Þannig skapast svig- rúm til að taka áfram við ört vax- andi fjölda ferðamanna. Með fleiri valkostum fyrir túristana ætti að reynast auðveldara að koma til móts við mismunandi þarfir þeirra auk þess sem fleiri aðilar í ferðamennsku fá bita af kökunni. En hvað er það sem Eyjafjarðarsveit hefur upp á að bjóða fyrir erlenda ferðamenn? Fyrir utan að vera einhver falleg- asta sveit landsins drýpur sagan af hverju strái í Eyjafjarðarsveit. Ekki síst á kirkjujörðunum sex! Þar leyn- ast sögulegar gersemar sem geta kveikt áhuga aðkomufólks ef rétt er haldið á spöðunum. Gersemar sem undirstrika sérstöðu byggðarlagsins. Gersemar sem hægt er að tengja við Íslendingasögurnar. Síðast en ekki síst gersemar sem hægt er að tengja við reynsluheim þeirra erlendu gesta sem heimsækja kirkjurnar. Hvernig? Jú, saga þeirra nær svo langt aftur í tímann að tiltölulega einfalt er að tengja sögu þeirra á einn eða annan hátt við aðrar þjóðir. Skoðum örfáar staðreyndir um guðshúsin sem hægt er að nota til að búa til bragðmik- inn kokteil fyrir þyrsta ferðamenn: Óvenjulegt byggingarlag Kaupang- skirkju og tenging við kaþólskan sið. Munkþverárkirkja, Jón Arason og Sturlunga. Merkilegt klukknaport við Möðruvallakirkju og altarisbrík frá Notthingham í Englandi. Hóla- kirkja helguð Jóhannesi skírara og tenging við eitt ljótasta glæpamál á Íslandi á 17. öld. Saurbæjarkirkja er ein örfárra torfkirkna á landinu og þar var klaustur í kringum árið 1200. Grundarkirkja, Magnús Sigurðsson, Þórunn Jónsdóttir (Arasonar) og Grundarbardagi. Hér mætti telja upp mikið mun meira í sambandi við kirkjurnar sex. Við skulum þó láta hér staðar numið en nefnum vett- vang nokkurra sögulegra atburða í sveitinni til viðbótar sem hafa alla burði til að vekja athygli erlendra ferðamanna: Kálfagerði og morð- saga bræðranna, Gnúpufell og prent- smiðjan á 16. öld, Melgerðismelar og saga hernámsliðsins, Möðrufell og holdsveikraspítalinn, Espihóll og saga Jóns Espólín sagnaritara, Krist- nes og berklahælið. Til að krydda sannleikann má notast við krydd úr heimabyggð sem útlendingar elska – þjóðsögurnar um Hleiðargarðsskottu og álfkonuna í Konuklöpp sunnan Kristness. En það er ekki bara sagan sem heillar. Menningin er aðdráttar- afl og hún blómstrar í Eyjafjarðar- sveit. Jólagarðurinn, smámunasafnið, Helgi og Beate með eldsmíðina í Kristnesi og fjölmargir aðrir hand- verksaðilar og gallerý svo eitthvað sé nefnt. Hér hafa ekki verið nefnd til sögunnar öll þau tækifæri sem náttúran og landslagið bjóða upp á í formi fræðslu og upplifunar; fjöllin, jarðsagan, Hólavatn, Leyningshólar, jarðhiti, Möðrufellshraun. Já, ljóst er að Eyjafjarðarhringurinn er vannýtt auðlind. Samgöngur eru greiðar í Eyjafjarðarsveit, hringurinn er auð- veldur yfirferðar og allt sem að ofan er nefnt er í seilingarfjarlægð frá veginum. Þannig er einfalt að sníða umfang ferðalagsins eftir þörfum ferðamannsins. Hægt er að fara hr- inginn á broti úr degi með því að stoppa lítið sem ekkert og leyfa ferðamanninum að njóta gegnum bílrúðuna undir styrkri stjórn leið- sögumanns. Einnig er hægt að fara hringinn á nokkrum klukkustundum með því að staldra við á nokkrum stöðum m.a. til að gæða sér á veiting- um úr heimabyggð. Lambalærið á Öngulsstöðum og ísinn í Holtsseli svíkja engan. Brettum upp ermar og kynnum gersemar Eyjafjarðarsveitar fyrir erlendum ferðamönnum. Við- skipta og menningarhugmynd á krepputímum? Af hverju ekki? a GRUND Í EYJAFJARÐARSVEIT. Meðal fallinna í Grundarbardaga árið 1362 voru Smiður Andrésson hirðstjóri og Jón Guttormsson skráveifa. GRAL VIKUNNAR BIRTIST á www.grenndargral.is.

x

Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.