Akureyri - 10.04.2014, Blaðsíða 2
2 14. tölublað 4. árgangur 10. apríl 2014
Meirihluti L-listans kolfallinn
L-listinn fær tvo bæjarfulltrúa á
Akureyri, missir fjóra fulltrúa sam-
kvæmt könnun sem Háskólabrú
Keilir á Akureyri hefur unnið. L-list-
inn hefur haft hreinan meirihluta
á kjörtímabilinu og sex fulltrúa af
ellefu á Akureyri. Björt framtíð og
Sjálfstæðisflokkurinn eru stærstu
stjórnmálaöfl Akureyrar ef marka
má svör þeirra sem tóku þátt í
könnuninni.
Spurt var: Hvaða flokk gætir þú
helst hugsað þér að kjósa? 20,7%
svarenda nefndu Bjarta framtíð,
20,5% nefndu Sjálfstæðisflokkinn,
17,4% nefndu L-listann, 14,8% VG,
14,4% Samfylkingu, 9,4% Fram-
sóknarflokkinn og 2,8% A-listann.
Skipting bæjarfulltrúa yrði þá
þannig að Björt framtíð fær tvo
bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkur
tvo, L-listinn tvo, VG tvo, Samfylk-
ing tvo, Framsókn 1 en A-listinn
engan. Mjög lítið vantar upp á að
Björt framtíð og Sjálfstæðisflokk-
urinn fái þriðja mann inn á kostnað
Samfylkingar. Ef svörin eru greind
eftir aldri sést að Björt framtíð á
mest bakland ungra kjósenda og
nokkur munur er á stjórnmála-
skoðunum eftir hverfum. Þannig
er vígi Sjálfstæðisflokksins nokkuð
sterkt í Giljahverfinu en VG nýtur
mikils fylgis í Innbænum.
Framkvæmd könnunarinnar var
í höndum nemenda Háskólabrúar
Keilis á Akureyri en nemendurn-
ir sömdu spurningarnar og unnu
með aðstoð leiðbeinenda úr svörum.
Könnunin var gerð á Netinu og er
lokaverkefni í áfanganum Tölfræði
með tölvum. Þátttakendur í póst-
númerum 600 og 603 á Akureyri voru
1078 en þátttakendur í könnuninni
í heild 1188. Einungis er í þessum
tölum unnið úr svörum frá póstnúm-
erum 600 og 603. Könnunin fór fram
frá fimmtudeginum 27. mars til 31.
mars 2014.
Um helmingur svarenda í
könnuninni svaraði þeim hluta
könnunarinnar sem sneri að pólitík
en svarhlutfallið var hærra þegar
spurt var um aðra hluti. Pólitískur
niðurstöðurnar byggja á svörum
500-600 einstaklinga. Niðurstöð-
urnar sýna stuðning við stjórn-
málaflokka sem buðu fram í sein-
ustu kosningum eða höfðu tilkynnt
framboð á þeim tíma sem könnunin
var gerð. Eftir að henni lauk hafa
L-listinn og Bæjarlistinn sameinast
en Bæjarlistinn fékk 2,6% stuðning
í könnuninni og vantar nokkuð upp
á bæjarfulltrúa.
Aðstandendur könnunarinnar
nefna að gerðar hafi nokkrar tegund-
ir prófana til að athuga áræðanleika
könnunarinnar og hafi könnunin
staðist þau. Þó sé rétt að nefna L-
listinn hafi framan af verið minni
en atkvæði til listans tekið kipp á
lokasprettinum á sama tíma og aðrir
flokkar voru með jafna dreifingu at-
kvæða allan könnunartímann. - BÞ
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9,
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Sími: 535 9000
GÆÐAVÖRUR
FYRIR BÁTINN!
Smurolíur og neyslugeymar á betra verði í apríl.
VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9,
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
E
X
P
O
-
w
w
w
.e
x
p
o
.i
s
Sími: 535 9000
GÆÐAVÖRUR
FYRIR BÁTINN!
Smurolíur og neyslugeymar á betra verði í apríl.
VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9,
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
E
X
P
O
-
w
w
w
.e
x
p
o
.i
s
Sími: 535 9000
GÆÐAVÖRUR
FYRIR BÁTINN!
Smurolíur og neyslugeymar á betra verði í apríl.
VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
ÞESSI ERU INNI NÚNA
Níu bæjarfulltrúar á Akureyri af ellefu næsta kjörtímabil samkvæmt könnun Háskólabrúar Keilis eru eftirfarandi:
BJÖRT FRAMTÍÐ
FRAMSÓKNARFLOKKUR
SAMFYLKING
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
VG
L-LISTINN
(ekki búið að raða
upp á listann en
könnunin mælir
tvo bæjarfulltrúa)
SVONA LÍTUR KOSNINGALANDSLAGIÐ á
Akureyri út samkvæmt nýrri könnun.
4%
11%
18%
22%
10%
10%
9%
15%
1%
7%
19%
12%
6%
16%
17%
22%
0% 5% 10% 15% 20% 25%
A - Akureyrarlistinn
B - Framsókn
D - Sjálfsstæðisflokkurinn
L- L listinn
P - Píratar
S- Samfylkingin
V- Vinstrihreyfingin Grænt Framboð
Æ - Björt framtíð
Hvað ætla kynin að kjósa (karlar samtals 100% og konur líka)
Konur Karlar
SKIPTING FLOKKA EFTIR kyni.
MARGRÉT KRISTÍN
HELGADÓTTIR
SIGRÍÐUR HULD
JÓNSDÓTTIR
EDWARD
HUIJBENS
EVA HRUND
EINARSDÓTTIR
ÁSHILDUR HLÍN
VALTÝSDÓTTIR
LOGI MÁR
EINARSSON
SÓLEY BJÖRK
STEFÁNSDÓTTIR
GUNNAR
GÍSLASONGUÐMUNDUR
BALDVIN GUÐ-
MUNDSSON
2,8%
9,4%
20,5%
17,4%
14,4% 14,8%
20,7%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
A - Akureyrarlistinn B - Framsókn D - Sjálfsstæðisflokkurinn L- L listinn S- Samfylkingin V- Vinstrihreyfingin Grænt
Framboð
Æ - Björt framtíð
Hvaða flokk gætir þú helst hugsað þér að kjósa