Akureyri


Akureyri - 10.04.2014, Page 8

Akureyri - 10.04.2014, Page 8
8 14. tölublað 4. árgangur 10. apríl 2014 AÐSEND GREIN RAGNAR SVERRISSON Staðreyndir um miðbæjarskipulagið Friðleifur Ingi Brynjarsson telur í síð- asta tölublaði að ég fari frjálslega með staðreyndir þegar ég fjallaði um afstöðu Vegagerðarinnar til breytinga á Glerár- götu í tengslum við fyrirliggjandi tillög- ur um nýtt miðbæjarskipulag Akureyrar. Þar gerði ég tilraun til að skýra út þær breytingar sem leitast er við að ná fram í auglýstri deiliskipulagstillögu og vakti athygli á að ekki væri allt sem sýndist í málflutningi Friðleifs. Í því sambandi er rétt að árétta að tillagan fjallar um margt fleira en umferðarmál Glerár- götu og stendur hún því hvorki né fellur með hugsanlegum breytingum á þeirri ágætu götu. Friðleifur fer mikinn og vitnar í um- sögn vinnuhóps Vegagerðarinnar um mat á umferðaröryggi vega frá árinu 2009. Sú umsögn var unnin þegar fyrri skipulagstillagan var á vinnslustigi og þess vegna nauðsynlegt að leiðrétta nokkur atriði sem hann gerir að um- ræðuefni. Staðreyndin er sú að tekið var tillit til flestra athugasemda vinnu- hópsins á síðari stigum enda málið allt í vinnsluferli á þeim tíma. Aðalatriðin sem hópurinn benti á voru þessi: Að hægt verði að breyta Glerárgötu í fjögurra akreina götu ef með þyrfti. Auðvelt var að fallast á það enda gerði tillagan alltaf ráð fyrir því og gerir enn. Að þáverandi tillögur tryggðu ekki nægjanlega öryggi vegfarenda á leið yfir Glerárgötu. Fallist var á þetta sjón- armið og þess vegna er gert ráð fyrir því í núverandi tillögu að fyrirhugað- ar byggingar sjávarmeginn við götuna verði felldar út úr deiliskipulaginu. Skipulagsnefnd og bæjarstjórn var hins vegar ósammála vinnuhópnum um að ekki væri unnt að lækka hámarks- hraða á 300 m kaflanum milli Strand- götu og Kaupvangsstrætis úr 50 km á klukkustund í 30. Markmiðið með minnkun umferðarhraða er fyrst og fremst að auka öryggi þeirra vegfarenda sem þurfa að fara á milli miðbæjar- svæðisins og Hofs enda augljóst að með tilkomu menningarhússins og endurnýj- uðum miðbæ mun umferð þarna á milli aukast mjög mikið í framtíðinni. Eftir lagfæringar á tillögunum frá 2009 fékkst jákvætt svar frá Vegamála- stjóra í bréfi dagsettu 21. janúar 2010. Þar kom fram að Vegagerðin teldi þær breytingar sem gerðar höfðu verið frá fyrri tillögum fullnægðu þeim kröfum sem stofnunin hafði þá lagt fram um lagfæringar. Hins vegar taldi Vega- gerðin að um tilraunaverkefni væri að ræða og myndi stofnunin því ekki mæla með því að fjárveitingavaldið kostaði breytingarnar. Þrátt fyrir það er því ekki slegið föstu að ríkið muni ekki á síðari stigum koma til með að kosta sinn hluta breytinganna, eins og því ber að gera lögum samkvæmt, í samræmi við lög um þjóðvegi í gegnum þéttbýli. Höfundur er áheyrnarfulltrúi í Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjabúa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu- póst á bjorn@akureyrivikublad.is eða hringið í síma 862 0856. LOF OG LAST VIKUNNAR LAST fá félagar í Samfylkingunni sem funda þessa dagana stíft í Lárusarhúsi og leggja bílum sínum á gangstéttum, móti einstefnu og þvert á reglur og almenna skynsemi. Svo segir Eyrarpúki í bréfi til blaðsins. „Þeir eru kannski að ræða bætta umferðarmenningu á Eyrinni. Fá allavega ekki mitt atkvæði fyrst þeir sjá ekki ástæðu til að fara eftir almennum umferðarreglum,“ skrifar Eyrarpúkinn... LAST fá hönnuðir Íþróttahúss Giljaskóli, segir „mamma í Fimak“. Hún segir í bréfi til blaðsins að laugardaginn 5. apríl hafi verið haldið Íslandsmót í þrepum í Íþróttahúsinu við Giljaskóla, sem tókst í alla staði vel. „Langþráður draumur fimleikafólks á Akureyri rættist þegar þetta hús var byggt og þar starfa frábærir og yndislegir þjálfarar. En það er til háborinnar skammar áhorfandaaðstaðan og skógeymslur í húsinu og vil ég LASTA hönnuði hússins að huga ekki betur að þessu. Ég veit að yfirþjálfari Fimak barðist fyrir betri aðstöðu fyrir áhorfendur en hafði ekki erindi sem erfiði. Þessi aðstaða er hvorki keppendum né áhorfendum bjóðandi og mega þeir sem réðu hönnun hússins skammast sín niður fyrir skósóla. Forsendur fyrir því að fá að halda svona stór mót, þar sem mæta hundruð keppenda, eru að öll aðstaða þarf að vera til fyrirmyndar. Ég skora hér með á frambjóðendur í sveitastjórnarkosningum að setja þetta mál í forgang og bæta úr þessu sem fyrst,“ skrifar mamman. LAST fá þeim sem ákveða opnunartíma skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli segir kona að sunnan í pósti til blaðsins. „Það lokaði klukkan 16 á laugardegi í fínasta veðri á stórri skíða- og brettahelgi. Var í stórum hópi aðkomufólks sem var yfir sig hneykslað – réttilega,“ srkifar konan... LOF fær Háskólabrú-Keilir á Akureyri fyrir ...“frábært framtak að efna til viðamikillar og upplýsandi könnunar um ýmis mál. Svo var líka svo skemmtilegt að taka þátt í þessari könnun,“ segir bæjarbúi í bréfi til blaðsins. „Ég held að Vilberg Helgason sé aðalsprautan bak við þetta, hann á sérstakt LOF skilið,“ segir bæjarbúinn... AKUREYRI VIKUBLAÐ 14. TÖLUBLAÐ, 4. ÁRGANGUR 2013 ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193. RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjorn @ akureyrivikublad.is, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING 14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND ... þvert á móti tel ég hana góða lausn sem uppfyllir óskir bæj- arbúa um vistvæn- an og aðlaðandi miðbæ ... RAGNAR SVERRISSON MÁL MANNA er að AK-extreme hafi tekist frábærlega. Einar Guðmann Eiríkur Björn er maðurinn! Áhugaverðar niðurstöður koma fram í blaðinu í dag um vilja Akureyringa í ýmsum málum. Frambjóð- endur til sveitarstjórnarkosninga hafa haldið fram opin- berlega að það sé erfitt að koma skilaboðum á framfæri til kjósenda þessa dagana, því fólk „hafi ekki áhuga á pólitík“ eins og það var orðað á fundi fyrir tveimur vikum. Með því er sennilega átt við að vegna ruglsins á alþingi sem ríkisstjórnin ber höfuðábyrgð á, ekki síst eftir þingsályktunartillöguna sem boða átti slit við ESB, sé fólk svo reitt að allir séu komnir með upp í kok af pólitík og fyrir það gjaldi umræða í héraði. Þetta þýðir ekki að fólk sé ekki pólitískt með ein- hverjum hætti. Sá sem hefur skoðun á umhverfi sínu og telur eina leið betri en aðra til að breyta því umhverfi til hins betra er pólitískur. En sennilega er fólk þreytt á flokkapólitík. Ein ástæða þess gæti verið að Ísland er búið að prufa ýmsar kraftaverkamixtúrur í pólitík frá hruni. Fyrst töldum við mikilvægt að koma frá hrun- flokkunum. Síðan sáum við að inngróin ósamstaða vinstri manna klauf möguleika til umbóta, sérstaklega inn- an VG. Fruntalega var líka farið af stað í leiðangurinn um ESB og svik á loforðum Steingríms J. Sigfússonar gleymast ekki. Svo var kosið til sveitarstjórna ári síðar og Jón Gnarr kom, sá og sigraði í suðri en Oddur Helgi Halldórsson og félagar hér í hinu bjarta norðri. Báðir verða senn úr leik en fólk þráði breytingar og fékk þær. En breyting breytinganna vegna er ekki málið. Að breyta hugarfari heillar þjóðar tekur lengri tíma en örfá ár. Niðurstaða bæjarkönnunarinnar sem fyrr er vísað til er að Akureyringar sem og aðrir Íslendingar vilji nálg- ast stjórnmál upp á nýtt og bæði innanfrá og utan frá. Gömlu valdaflokkarnir á Akureyri, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, eru hrunin stórveldi, einkum á það við um framsókn hér í bæ og Reykjavík samkvæmt könnunum. Bæjarbúar vilja alls ekki pólitískan bæjar- stjóra samkvæmt könnuninni sem kynnt er í blaðinu í dag og það eru vondar fréttir fyrir þá oddvita stjórnmálaafla hér í bæ sem hafa lýst áhuga á bæjarstjórastólnum. E.t.v. er könnunin sérlega vond tíðindi fyrir odvita sjálfstæð- ismanna sem leynt og ljóst hefur róið að því að verða bæjarstjóri. Bæjarbúar virðast ekki sammála honum. Sá tími virðist liðinn að fólk treysti beinum handhöfum gömlu valdaflokkanna til að stýra bæjarfélagi sem kann að tengjast því að fylgi við ríkisstjórnina er lítið. Sú gjörð L-listans að brjóta upp fyrra kerfi og ráða ópólitískan bæjarstjóra fyrir þetta kjörtímabil tókst vel, hvað sem öðru viðvíkur. Þá er það glæsileg mæling fyrir Eirík Björn Björgvinsson persónulega hve mikils trausts hann nýtur og verður erfitt að líta fram hjá því í vor ef raunverulegt lýðræði á að stunda í þessum bæ. Langt er þó enn í kosningar og margt getur gerst. En Íslendingar standa á kossgötum. Vonandi munu sigur- vegarar kosninganna í maí, hverjir sem þeir verða, átta sig á því að nú þarf að horfa fram. Úldin fortíð og umrót líðandi stundar er lærdómur til framtíðar. Með ritstjórakveðju Björn Þorláksson

x

Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.