Akureyri - 10.04.2014, Síða 10
10 14. tölublað 4. árgangur 10. apríl 2014
Kjölur samdi
Kjölur, um 1000 félagsmenn á Ak-
ureyri og í nágrenni, hefur skrifað
undir nýjan kjarasamning við ríkið.
Samningurinn gildir frá 1. mars 2014
til 30. apríl 2015 og byggir að hluta
til á þeim samningum sem þegar
hafa verið undirritaðar af BSRB
félögum að undanförnu
Helstu atriði samningsins eru:
Að laun hækki um 2,8% eða að
lágmarki 8000. kr. fyrir dagvinnu
miðað við fullt starf. Á launum sem
eru lægri en 230.000 kr. á mánuði
komi sérstök hækkun til viðbótar
að upphæð 1.750 kr.
Við samþykkt samningsins
greiðist 14.600 kr. eingreiðsla mið-
að við fullt starf í febrúar 2014 en
hlutfallslega m.v. starfstíma og
starfshlutfall í sama mánuði þar
sem það á við.
Eingreiðsla 20.000 kr. miðað við
þá sem eru í fullu starfi í febrúar
2015 greiðist þann 1. apríl 2015
en hlutfallslega m.v. starfstíma og
starfshlutfall í sama mánuði.
Persónuuppbót verður á samn-
ingstímanum 73.600 kr. Orlofsupp-
bót verður á samningstímanum
39.500 kr. Í samningnum er auk
þess að finna leiðréttingar er snúa
að vaktavinnufólki
Nýr kafli um fræðslumál kveðjur
á um uppsöfnun námsfría
Samningurinn mun gilda frá 1.
mars 2014 til 30. apríl 2015. a
Barnauppeldi í Hofi
Félagarnir í Mið-Íslandi hafa fest sig
í sessi sem vinsælustu uppistandarar
Íslands. Nú leggja þeir land undir fót
og heimsækja Menningarhúsið Hof
með nýjustu sýningu sína sem slegið
hefur í gegn í Þjóðleikhúskjallaran-
um í vetur. Umfjöllunarefnin á þessari
tveggja klukkustunda löngu sýningu
eru fjölbreytt: fjallað er um ást Ís-
lendinga á sjálfum sér, barnaupp-
eldi, misskilning í fjölskylduboðum,
mataræði, fyrirmyndir og margt fleira.
Það eru þeir Ari Eldjárn, Bergur
Ebbi, Björn Bragi, Jóhann Alfreð
ásamt Þorsteini Guðmundssyni
sem munu kitla hláturtaugar Norð-
lendinga á laugardaginn af sinni
alkunnu snilld.
Þeir félagar hafa komið fram
undir merkjum Mið-Íslands í rúm
fimm ár en hópurinn byrjaði á Prik-
inu í miðborg Reykjavíkur, færði sig
svo í Þjóðleikhúskjallarann og það-
an á stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu.
Heimsókn í Menningarhúsið Hof er
orðin fastur liður í sýningaráætl-
unum hópsins og eiga þeir tryggan
áhorfendahóp hér fyrir norðan, sam-
kvæmt tilkynningu frá Menningar-
húsinu Hofi. a
Sjálfstæðismenn taka
út snjómoksturinn
Næstu daga og vikur munu fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Ak-
ureyri ganga um öll hverfi á Akureyri.
Tilgangurinn með göngunum er að
gefa íbúum bæjarins tækifæri á að
hitta frambjóðendur og koma með
ábendingar um það sem betur má
fara í hverju hverfi fyrir sig, hvort
sem um er að ræða snjómokstur,
leiksvæði, gönguleiðir eða annað, að
sögn Stefáns Friðriks Stefánssonar
fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.
„Allir eru velkomnir með okkur
að ganga um hverfin,“ segir Gunn-
ar Gíslason, oddviti framboðslista
Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.
„Okkur langar að hitta íbúana og
heyra hvað þeir hafa að segja,“ segir
Gunnar. Gangan um bæinn hófst sl.
mánudag og hefjast göngurnar að
jafnaði kl. 17:00. a
LISTI SJÁLFSTÆÐISMANNA Á DALVÍK
Búið er að ákveða röð efstu manna á Á aðalfundi D-lista Sjálfstæðisfélags
Dalvíkurbyggðar og óháðra. Þessi skipa fimm efstu sætin:
1. Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, skólastjóri
2. Valdemar Þór Viðarsson, ökukennari/gullsmiður
3. Lilja Björk Ólafsdóttir, mannauðsstjóri/forvarnaráðgjafi
4. Haukur Arnar Gunnarsson, vélstjóri
5. Silja Pálsdóttir, B.A. sálfræði/bókari
LISTI FRAMSÓKNAR Á AKUREYRI
Framsóknarmenn á Akureyri hafa samþykkt lista fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingar í vor. Fimm efstu sætin skipa:
1. Guðmundur B. Guðmundsson Bæjarfulltrúi
2. Ingibjörg Isaksen Forstöðumaður
3. Siguróli Magni Sigurðsson Nemi
4. Elvar Smári Sævarsson Kennari
5. Halldóra Hauksdóttir Héraðsdómslögmaður