Akureyri - 10.04.2014, Side 13
10. apríl 2014 14. tölublað 4. árgangur 13
Landeigendur byrji á öfugum enda
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
samþykkti eftirfarandi bókun á
fundi sveitarstjórnar Skútustaða-
hrepps 4. apríl. Sl.:
„Gjaldtaka á ferðamannastöðum
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
tekur undir ályktanir Mývatnsstofu
frá 31. mars og Markaðsstofu Norð-
urlands frá 2. apríl. þar sem líst [svo]
er yfir áhyggjum af fyrirhugaðri,
ótímabærri gjaldtöku á ferðamanna-
stöðum í Skútustaðhreppi.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
harmar að Landeigendur Reykja-
hlíðar hyggist rukka aðgangseyri
af gestum sveitarinnar án þess að
aukin uppbygging hafi átt sér stað
eða þjónusta veitt. Það að einstök
náttúrusvæði verði lokuð almenn-
ingi á háannatíma án greiðslu, eftir
áratuga athugasemdalausa notkun,
er ekki ásættanlegt fyrirkomulag og
mun skaða ímynd sveitarfélagsins
til framtíðar.
Sjálfsagt er að Landeigendur
Reykjahlíðar setji upp ferðaþjónustu
og taki þóknun fyrir veitta þjónustu,
þegar lagt hefur verið í uppbyggingu
á svæðinu og þjónustan veitt.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
hvetur Landeigendur Reykjahlíðar
til að fresta fyrirhugaðri gjaldtöku
við Dettifoss, Hveri og Leirhnjúk
þar sem verið er að vinna að lausn
þessara mála á landsvísu.“
Með bókuninni er gefið í skyn að
landeigendur byrji á öfugum enda
að mati sveitarstjórnar, rukki fyrst
en segist svo ætla að byggja upp. Ak-
ureyri vikublað hefur undir höndum
fyrrnefndar umsagnir annarra að-
ila sem vitnað er til. Markaðsstofa
Norðurlands (MN) lýsir miklum
áhyggjum vegna fyrirhugaðra að-
gerða landeigenda í Reykjahlíð í Mý-
vatnssveit. Landeigendur hafi birt
drög að vefsíðu þar sem auglýstur sé
til sölu passi sem gildi á þrjú svæði,
Dettifoss, Hveri og Leirhnjúk-Kröflu.
Innifalið í þessu svokallaða náttúru-
gjaldi sé skoðun á Víti. Gjaldtakan
sögð vera til þess „að byggja upp
veglegar þjónustumiðstöðvar með
salernum, veitingaraðstöðu o.fl. og
að auki verður allt öryggi ferða-
manna bætt til muna. Lagðir verði
margir kílómetrar af göngustígum,
bæði úr malbiki og trjáviði. Útsýnis-
pallar/útskot verði settir upp á ýms-
um stöðum við náttúruperlurnar.
EKKI Í TAKT VIÐ GESTRISNI
„Óhætt er að segja að ferðaþjónusta
á Norðurlandi sé uggandi yfir þeirri
þróun sem nú blasir við en gjaldtaka
sú sem landeigendur í Reykjahlíð
boða er ekki í takt við þá gestrisni
sem ferðaþjónustan á Norðurlandi
leggur sig fram um að sýna,“ segir
í umsögn MN. „Mikilvægt er að nú
þegar verði skoðað hvort og hvernig
megi koma í veg fyrir að aðgengi
að landinu verði heft með þessum
hætti, og íslenskum sem og erlendum
ferðamönnum gert ókleift að ferðast
um landið nema með takmörkuðu
aðgengi ef þessi þróun heldur áfram.“
Stjórn Markaðsstofu Norð-
urlands hvetur stjórnvöld til að
bregðast við „yfirvofandi hættu á
óafturkræfum náttúruspjöllum“ sem
steðja að fjölförnum ferðmannastöð-
um með fjölgun ferðamanna og hefur
í vetur unnið náið með stjórnvöld-
um að útfærslu á náttúrupassa fyr-
ir ferðamenn. Með þeirri útfærslu
yrði til öflugur sjóður sem nýttur
yrði til uppbyggingar og verndunar
ferðamannastaða um land allt og því
ekki þörf á því að gjaldtaka verði
sett upp hér og þar um landið. Telur
Markaðsstofa Norðurlands tillögur
þessar sanngjarnar auk þess sem þær
koma í veg fyrir að ferðamenn hvort
sem eru innlendir eða erlendir þurfi
stöðugt að taka upp veskið á leið
sinni um landið til að greiða fyrir
aðgang að náttúruperlum.
EKKI GEÐÞÓTTAGJALDTÖKU
„Sjálfsagt mál er að landeigendur
sem og aðrir ákveði að setja upp
ferðaþjónustu og taki þóknun fyr-
ir veitta þjónustu, þegar lagt hefur
verið í fjárfestingu á svæðinu og
þjónustan byggð upp. Þannig geta
þeir haft arð af eign sinni án þess að
taka greiðslur aðeins fyrir eðlilegan
aðgang að sérstæðum náttúruperl-
um. Óskipulögð gjaldtaka eins og
nú er boðuð skaðar orðspor Íslands
erlendis og er úr takti við þá ímynd
sem ferðaþjónustuaðilar hafa lagt
mikla vinnu í að kynna.
Ferðaþjónustan hefur lagt
áherslu á mikilvægi þess að hafa
góðan fyrirvara og aðdraganda að
allri gjaldtöku við náttúruperlur.
Þessar vikurnar er verið að skýra
óvissu um lögmæti slíkrar innheimtu
og því fráleitt annað en að bíða með
þessi áform að minnsta kosti meðan
beðið er niðurstöðu. Ferðaþjónustu-
aðilar hafa þegar undirbúið það að
sniðganga þau svæði þar sem nú á
að hefta aðgengi og stuttur fyrirvari
skaðar fyrirtæki sem þegar hafa selt
sínar ferðir í sumar enda hefur ekki
verið haft samráð við ferðaskipu-
leggjendur varðandi sölu á aðgöngu-
miðum. Þessi þróun mun hafa slæm
áhrif á ferðaþjónustuna í heild sinni.
Markaðsstofa Norðurlands hvet-
ur til samstöðu um uppbyggingu á
náttúrupassa í takt við þær tillög-
ur sem fram hafa komið hjá ráð-
herra ferðamála. Nauðsynlegt er að
standa saman um þá leið sem byggir
á áframhaldandi opnu aðgengi að
náttúruperlum og sjálfbærri upp-
byggingu á ferðamannastöðum.“
ÞUNGAR ÁHYGGJUR
Við svipaðan tón kveður í ályktun
stjórnar Mývatnsstofu vegna fyrir-
hugaðrar gjaldtöku Landeigendafé-
lags Reykjahlíðar á vinsælum ferða-
mannastöðum:
„Stjórn Mývatnsstofu lýsir yfir
þungum áhyggjum af fyrirhug-
aðri gjaldtöku Landeigendafélags
Reykjahlíðar á vinsælum ferða-
mannastöðum í Mývatnssveit. Ljóst
er að mikil óánægja er með gjaldtöku
sem þessa og alls ekki einhugur um
hana í sveitarfélaginu.
Lengi hefur legið fyrir að fjár-
muni vantar til uppbyggingar og
viðhalds á ferðamannastöðum en sú
leið sem Landeigendafélag Reykja-
hlíðar hefur kosið að fara er ekki til
þess fallin að leysa þann vanda.
Ferðaþjónusta hefur um árabil
verið burðarás í atvinnulífi Mývatns-
sveitar en leiða má að því líkum að
framkvæmd sem þessi muni hafa
neikvæð áhrif á sveitarfélagið í bráð
og lengd.
Stjórn Mývatnsstofu skorar á
sveitarstjórn Skútustaðarhrepps
að beita sér fyrir því að gjaldtöku
landeigenda verði frestað á meðan
fundin er framtíðarlausn, sem verði
sveitarfélaginu sem og landinu öllu
til framdráttar. Stjórn Mývatnsstofu
lýsir jafnframt yfir vilja til að leggja
hönd á plóg við þá vinnu.“
SVEITARSTJÓRI LANDEIGANDI
Sveitarstjóri Mývetninga, Guðrún
María Valgeirsdóttir, er jafnframt
25% eigandi í Reykjahlíð og situr í
stjórn einkahlutafélags landeigenda.
Hún vék sæti við afgreiðslu sveit-
arstjórnar.
FRÉTTASKÝRING
Björn Þorláksson
EDWARD H. HUIJBENS
AÐSEND GREIN EDWARD H. HUIJBENS
Vald yfir velferð
Árið 2007 kom fram í stjórnar-
sáttmála Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks að stefna bæri að
„fjölbreyttari rekstrarformum“ í
heilbrigðisþjónustu. Þessi stefna
gengur nú aftur, ekki
síst í áherslum Bjartrar
framtíðar fyrir síðustu
þingkosningar. Þessar
hugmyndir varða okkur
Akureyringa miklu þar
sem bæði Sjúkrahúsið á
Akureyri og Heilsugæslan
eru máttarstoðir velferðar
hér og víðar um Norður-
land. Hið fyrra er rekið af
ríki og síðara af sveitarfé-
laginu með framlagi frá ríki. Akur-
eyrarbær hefur þurft að borga með
heilsugæslunni, þar sem ónóg fram-
lög hafa fylgt frá ríkinu og þrengt
hefur verið að rekstri Sjúkrahússins
frá því löngu fyrir hrun. Með aura-
leysi hins opinbera hefur nú verið
skapað „svigrúm“ fyrir „fjölbreytt-
ari rekstrarform“ eins og sumir póli-
tíkusar kjósa nú að kalla einkavæð-
ingaráform sín. Þá er rétt að skoða
hvað felst í þessum fjölbreytileika.
Um er að ræða samninga við einka-
aðila um framkvæmd þjónustu und-
ir eftirliti hins opinbera.
Vissulega er hægt að setja
skýran ramma utan um
slíka samninga en þegar
öllu er á botninn hvolft
er um einkaaðila að ræða,
sem óhjákvæmilega munu
gera kröfu um að rekstur-
inn skili hagnaði. Það vita
allir að helsti hvati fyrir-
tækjareksturs er vonin um
hagnað og það er ákaflega
erfitt að hugsa sér að einhver vilji taka
að sér rekstur fyrir hið opinbera og
í ofanálag undir ströngu eftirliti, án
þess að vilja nokkuð fyrir sinn snúð.
Þannig að ljóst er að allur einka-
rekstur mun annað hvort verða okkur
dýrari eða við fáum minni þjónustu.
Það er þó aðeins einn angi. Í
samningum um rekstur velferða-
þjónustu mun eðli þjónustunnar og
skyldur rekstraraðila verða skil-
greind nákvæmlega. Það er hagur
rekstraraðilans að geta skilgreint
þjónustuna sem nákvæmast, bæði
uppá verðlagningu og til að kom-
ast hjá ófyrirséðum kostnaði vegna
þjónustu sem þá er hægt að semja
sérstaklega um við ríkið. Með
þessum hætti dregur verulega úr
sveigjaleika þjónustunnar, auk þess
sem líklegast er að samið verði um
þá hluta hennar sem auðveldast er
að skilgreina og óvissir þættir verði
eftirlátnir hinu opinbera, þ.e. okkur
skattgreiðendum .
Þá er komið að þriðja hluta af-
leiðinga þess að opna á einkarekstur
í velferðarþjónustu. Það er að við
semjum frá okkur vald yfir áhersl-
um og forgangsröðun velferðarþjón-
ustunnar. Það leggjum við í hendur
lögfræðinga og dómstóla sem munu
kíta um efnisatriði og efndir samn-
inga, frekar en að ræða stefnu og
sjónarmið sem liggja eiga til grund-
vallar velferð okkar.
Látum ekki glepjast af fagurgala
um fjölbreytni. Þegar við framselj-
um vald yfir velferð gerist það með
samningum sem binda hendur okkar
um langa tíð og fellir umræðu um
velferð í skotgrafir lagaklækja og
málaferla um efndir og inntak samn-
inga. Í þeirri umræðu verða íbúar og
kjörnir fulltrúar þeirra ekki þátttak-
endur og aðeins þeir sem hafa mesta
möguleika á lögfræðiþjónustu, fá
bestu þjónustuna.
Höfundur skipar 2. sæti á lista
VG Akureyri fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar
FRÁ HVERARÖND ÞAR sem Reykhlíðungar hyggjast standa að stórfelldri gjaldtöku ferðamanna. Völundur