Akureyri - 10.04.2014, Síða 14
14 14. tölublað 4. árgangur 10. apríl 2014
Tól og Tæki s/f , Reyðarfirði, auglýsa;
Rennibekkir og bor/fræsivélar
beint frá framleiðanda.
Rennibekkur, C0636-1000 x 360mm,
með 2x digital aflestri, fótbremsu
„steady og followrest“
kr 850.000.-
Smábekkur, CJ0618A 180 x 350mm,
DC 550W motor, öxulgat 20mm,
stiglaus hraðastýring.
kr 154.000.-
Smábekkur, CJ0623 - 230 x 750 mm
gírskiftur, öxulgat 20mm
kr. 225.000.-
Smábekkur, CX0623 – 230 x 750mm
gírskiftur, sambyggður með bor/fræsara,
öxulgat 20mm.
kr. 349.000.-
Bor/fræsivél, XJ9512
stiglaus hraðastýring,
borgeta 16mm,
DC 550W motor,
vinnuborð 460x112mm
kr. 169.000.-
Innifalið í verði eru eftirtaldir aukahlutir:
Fylgihlutir með fræsurum:
• Fræsarakónar 8st sett, með haldara, 3-16mm.
• Fræsarasett, 3-16mm.
• 58 hluta festisett
• 100mm skrúfstykki
• 30mm fræsihaus með plöttum
• Borpatrona 16mm
Fylgihlutir með rennibekkjum:
• „Live center“
• 3 st miðjuborar
• Hraðskiftar fyrir rennistál
• 7 hluta rennistálasett með renniplöttum + aukaplattasett
• Bakplata með festingum.
Örugg varahluta og aukahlutaþjónusta.
Árs ábyrgð er á öllum vélahlutum og
allar vélar með CE skírteini.
Öll verð eru með VSK.
Áhugasamir vinsamlegast sendið
tölvupóst með fyrirspurn, nafni og
símanúmeri á: togt@simnet.is
Eða í síma 4822362 milli 10 og 16.
TÓL OG TÆKI s/f
Bor/fræsivél, XJ 9520
stiglaus hraðastýring,
borgeta 25mm,
DC 1200W motor,
vinnuborð 800x180mm
kr. 285.000.-
Vorið vaknar í Menntaskólanum
„Vorið vaknar er rokksöngleikur
eftir Steven Sater með tónlist eft-
ir Duncan Sheik sem túlkar hugs-
anir og tilfinningar unglinganna.
Söngleikurinn er byggður á leikverki
eftir Þjóðverjann Frank Wedekind
sem var skrifða á árunum 1890-91.
Leikverkið var lengi vel umdeild og
seinna bannað í Þýskalandi. Sjálfs-
morð, misnotkun, kynlíf, ótíma-
bærar þunganir, fóstureyðingar og
fleiri átakanlegir hlutir eiga
stærstan þátt í leikverkinu.
Unglingar reyna að fóta sig
í heimi fullorðinna og lenda
í miklum raunum sem hafa
fylgt jafnöldrum þeirra um
alla tíð. Um þýðingu sáu
Emelía Baldursdóttir og
Auðrún Aðalsteinsdóttir.
Uppsetning LMA er íslands-
frumsýning á söngleiknum
og er hann sýndur í Samkomuhúsinu
í fullu samstarfi við LA.“
Eftirfarandi upplýsingar eru
teknar beint upp úr vandaðri
leikskrá sýningarinnar en í for-
mannspistli á fyrstu síðu skrárinnar
segir Arna Ýr Karelsdóttir formaður
LMA og sýningarstjóri „ sem ung-
lingar glímum við daglega við það
síður en svo auðvelda verkefni að
fóta okkur í heimi sem hefur verið
mótaður af eldri kynslóðum“ Í raun
má segja að þessi setning hins unga
formanns fangi kjarna leikverksins
gamla, það fjallar nefnilega um af-
leiðingar þess þegar fullorðið fólk
yfirfærir eigið tilfinningalíf fullt
af skömm og heftingu yfir á yngri
kynslóðir. Þetta er verk sem tekur á
öllum helstu siðferðisefnum mann-
legrar tilveru og skilar vel þeirri
frelsisskerðingu sem verður þegar
manneskjur mega ekki tjá líðan sína,
hugsanir og þrár.
Uppsetning LMA er í einu orði
sagt aðdáunarverð, hvað eftir ann-
að varð ég snortin af hæfileikum
þessarar ungu kynslóðar sem virðist
ekki víla neitt fyrir sér hvort sem
um er að ræða leik, söng, dans eða
hljóðfæraleik. Það er enn merki-
legra að horfa á afraksturinn fyrir
þær sakir að útfærsla og
stjórn á dans og tónlist var
í höndum tveggja stúlkna
innan hópsins þeirra Ásdís-
ar Rósar Alexandersdóttur
og Steinunnar Atladóttur
sem samkvæmt leikstjór-
anum Jóni Gunnar Þórðar-
syni unnu þrekvirki, hvor á
sínu sviði. Þá er ljóst að Jón
Gunnar hefur líka náð vel til
hópsins og skapað traust sem skil-
aði sér í ótrúlega þéttri og vandaðri
sýningu. Undirrituð veit sem gamall
LMA félagi hve miklu skiptir að leik-
stjórinn nái að skapa samheldni og
gleði innan hópsins og það var það
sem maður skynjaði svo sterkt. Það
ríkti virðing og samstaða meðal allra
sem komu að sýningunni.
Sýningin er bæði myndræn og
falleg, leikmyndin er stílhrein en
samt mjög táknræn mér fannst líka
mjög flott pæling að hafa allt unga
fólkið í hvítum skóm sem tákn um
bernsku og sakleysi og eins táknaði
skóleysið feigð sem var sett fram á
mjög áhrifaríkan hátt.
Allir leikarar stóðu sig afar vel
og mér fannst t.d. mjög magnað að
sjá hversu liprir strákarnir voru í
dansatriðunum af því að eflaust
eru margir þeirra að æfa einhverj-
ar boltaíþróttir og þá eru menn oft
býsna stirðir, en það bar ekki á því.
Stelpurnar voru bara eins og útlærð-
ir dansarar og túlkunin var alveg frá
dýpstu hjartarótum. Þarna sá maður
mörg efni í leikara framtíðarinnar
þá var framsögn mjög góð, ég heyrði
og nam hvert orð, bæði í tali og söng.
Mér fannst allir leikarar skila sam-
úðarfullri túlkun sem þýðir að þau
hafa öll skilið persónur sínar en þar
liggur galdur persónusköpunarinn-
ar. Tólf ára gamall sonur minn og
sessunautur hélt fullri athygli og
fékk margt að moða úr er varðaði
samskipti kynjanna og mikilvægi
þess að virða mörk og setja mjörk í
öllum samskiptum.
Að lokum vil ég fá að óska LMA
til hamingju með frábæra sýningu.
Við skulum aldrei vanmeta gildi leik-
listar í skólastarfi, þar fer fram mik-
ið nám í mannskilningi, samvinnu,
hugmyndavinnu ofl sem mun alltaf
skila sér til framtíðar. a
HILDUR EIR
BOLLADÓTTIR
Hildur Eir Bolladóttir
skrifar um leikhús