Akureyri - 10.04.2014, Blaðsíða 18
18 14. tölublað 4. árgangur 10. apríl 2014
Það sem Rúmenum tókst
ekki, hefur hins vegar
Íslendingum tekist. En á
síðari hluta 19. aldar og fram
yfir þau aldamót, hefur það
verið opinber stefna yfirvalda á Íslandi
að útrýma byggingarsögu þjóðarinnar,
torfhúsum.
SIGURJÓN B. HAFSTEINSSON
AÐSEND GREIN SIGURJÓN B. HAFSTEINSSON
Húsníðingar
Yfirskrift fréttarinnar í Viðskipta-
blaðinu þann 1. apríl síðastliðinn
sem hljóðaði þannig „Húsníðingur
á Álftanesi skuldar 115 milljónir“
vekur upp spurninguna um hvort
eigandi hússins , sem rústaði því
fyrir framan sjónvarpsmyndavélar
á þjóðhátíðardaginn 17. júní árið
2009, hafi ekki í raun verið að iðka
gamalgróna menningu Íslendinga
þegar kemur að húsum. Einhverjir
kynnu að spyrja sig að því, lesandi
þessi orð, hvernig standi á því hjá
þjóð sem byggir sjálfsmynd sína að
verulegu leyti á fortíðinni og telur
sig huga vel að henni s.s. með rekstri
öflugra safna víða um land.
Í stjórnartíð Ceausescu forseta
Rúmeníu voru uppi stórkostlegar
áætlanir um að þurrka út stóran
hluta af menningararfi þjóðarinnar
í krafti framfara og efnahagslegr-
ar uppbyggingar. En áætlanirnar
gengur út á að afmá rúmlega 13
þúsund þorp fyrir árslok 2000 og
byggja í staðinn 500 miðstöðvar
fyrir iðnað í landbúnaði. Rúmenski
sagnfræðingurin Dinu C. Giurescu
barðist gegn þessum áformum og lét
yfirþjóðlegar stofnanir á borð við
UNESCO vita af þessari útrýming-
aráætlunum. Árangurinn af starfi
Giurescu lét ekki á sér standa, en
áætlunum var mótmælt og skrifaði
Giurescu bók um efnið, The razing
of Romanias past, sem ætti að vera
skyldulesning allra sem láta sig
menningarmál varða. Árið 1989 féll
stjórn Ceausescu forseta og rúmlega
5 þúsund þorpum var þyrmt sem af-
leiðing af því. Nálega 8 þúsund þorp
höfð hins vegar orðið eyðileggingar-
áformunum að bráð.
Það sem Rúmenum tókst ekki,
hefur hins vegar Íslendingum tekist.
En á síðari hluta 19. aldar og fram
yfir þau aldamót, hefur það verið
opinber stefna yfirvalda á Íslandi að
útrýma byggingarsögu þjóðarinnar,
torfhúsum. Yfirvöld hafa haft liðsinni
heilbrigðisstarfsmanna, arkitekta,
verkfræðinga og annarra við inn-
leiðingu þessara áætlana, en torfhús
hafa verið skilgreind sem heilbrigð-
isvandamál og tæknilega ófullnægj-
andi sem híbýli fyrir þjóð sem langar
að taka þátt í hnattvæddu kapp-
hlaupi um nútímavæðingu.
SKÖMM, VANMÁTTUR
OG ÓFULLKOMLEIKI
Svo rammt kveður að þessari út-
rýmingu að margir hafa haldið því
fram opinberlega að íslendingar
ættu sér ekki neina byggingasögu
fyrr en þeir fóru að reisa sér hús úr
timbri og steini. Niðurrifið hefur
haldið áfram eftir aldamótin 2000,
en húsafriðunarnefnd stóð til að
mynda ekki í veginum fyrir niður-
rifi á bænum Keldnaholti í Flóa árið
2011, sem var skilgetið afkvæmi
þeirrar torfhúsa sem hafa verið
húsakostur Íslendinga frá landnámi.
Í ljósi þessa hafa Íslendingar verið á
hlaupum undan eigin sögu og er ekki
ofmælt að tilfinningin um skömm
og vanmátt gagnvart því sem hefur
verið skilgreint sem ófullkomleiki
hefur blandast inn í þessa umræðu
og aðgerðir. Þær tilfinningar hafa
hleypt mönnum kapp í kinn við út-
rýminguna.
ANNAR TÓNN – EÐA HVAÐ?
En í dag kveður við annan tón. Á
undraskömmum tíma hefur torf-
húsum verið lyft upp á sögulegan
stall sem menningararfleifð, án
þess þó að útrýmingaraðgerðunum
sé gerð skil. Það er breytt yfir þau
og enginn málsmetandi fulltrúi út-
rýmingarherferðarinnar hefur stigið
fram og viðurkennt að þeir sjálfir
eða fyrirrennarar þeirra hafi hlaup-
ið á sig. Þess í stað er haldið upp
vörnum um að eitthvað hafi orðið
eftir af þessum húsum sem sjá má
að Laufási eða Grenjaðarstað og því
sé Íslendingum ekki alls varnað.
En er það virkilega svo?
Höfundur er doktor í mann-
fræði og dósent í safnafræði við HÍ.
(millifyrirsagnir eru blaðsins)
TÓNLEIKAR STÚLKNAKÓRS
AKUREYRARKIRKJU
Hinn hljómfagri Stúlknakór Akureyrarkirkju heldur tónleika í kvöld, fimmtu-
daginn 10. apríl kl. 20:00 í Akureyrarkirkju. Á dagskrá tónleikanna eru bæði
dægurlög og kórverk auk þess sem nokkrar stúlkur syngja og leika á hljóð-
færi. Stjórnandi er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og undirleikari er Valmar
Väljaots. Tónleikarnir eru til styrktar ferðasjóði kórsins og er miðaverð 1000
kr. Ekki er tekið við greiðslukortum.
Starf Stúlknakórs Akureyrarkirkju hefur verið blómlegt árum saman,
en í honum eru stúlkur á aldrinum 13-19 ára. Í kórnum fer fram tónlistar-
kennsla og söngþjálfun auk þess sem hann syngur reglulega á tónleikum
bæði einn og með þekktu tónlistarfólki.
GAMLI BÆRINN Í Laufási er eitt örfárra torfhúsa sem lyft var á sögulegan stall eftir að stórum hluta byggingarsögu hafði nánast
verið útrýmt að sögn greinarhöfundar. Völundur
ÁRSFUNDUR
SÍMEY
Í tilefni af ársfundi SÍMEY munu starfsmenn miðstöðvar
innar segja frá nokkrum áhugaverðustu verkefnum síðasta
árs undir yfirskriftinni: „Brot af því besta“ kl. 14:4515:45
í húsnæði SÍMEY að Þórsstíg 4, Akureyri
BROT AF ÞVÍ BESTA
» Raunfærnimat
» Mentoranámskeið, íslenska fyrir útlendinga
» Starfsemi SÍMEY við utanverðan Eyjafjörð
» Lærdómssamfélagið, ráðstefnan samræða allra skólastiga
» Umræður og fyrirspurnir
BOÐIÐ VERÐUR UPP Á LÉTTAR VEITINGAR
ALLIR VELKOMNIR!
RAUNFÆRNIMAT
Í SKRIFSTOFUGREINUM
Skráning er hjá SÍMEY í síma 460-5720, eða á www.simey.is
Frekari upplýsingar gefa Heimir, heimir@simey.is og Kristín, kristin@simey.is
Er raunfærnimat eitthvað fyrir þig?
Ertu orðin/nn 23 ára og hefur unnið skrifstofustörf í 5 ár eða lengur
Hvað er raunfærnimat í skrifstofugreinum?
Það er mat og staðfesting á þekkingu og reynslu af skrifstofustörfum.
Í raunfærnimati skrifstofugreina er lagt mat á reynslu og þekkingu í samanburði
við námsskrá Skrifstofubrautar I í Menntaskólanum í Kópavogi.
Skrifstofubrautin er hagnýtt nám á framhaldsskólastigi (33 einingar) sem miðar
að því að veita nemendum almenna þekkingu í greinum sem nýtast við
krefjandi störf á skrifstofu. Nánari upplýsingar um námsbrautina má finna á
www.mk.is
Raunfærnim
atið er
þátttakendu
m að
kostnaðarla
usu.
Kynningarfu
ndur vegna
raunfærnim
ats verður h
já
SÍMEY 2. ap
ríl kl. 16:00