Akureyri - 10.04.2014, Page 20
20 14. tölublað 4. árgangur 10. apríl 2014
AÐSEND GREIN UNNAR JÓNSSON
Áhrif félagsmanna á stefnu og stjórn KEA
Á aðalfundi KEA fyrir nærri ári
síðan voru gerðar breytingar á
samþykktum félagsins. Sumar
breytinganna voru þarfar og tíma-
bærar, t.d. að breyta ákvæðum um
mörk félagssvæðisins til samræmis
við breytt mörk sveitarfélaga, en aðr-
ar voru ekki til bóta og takmarka
möguleika félagsmanna til að hafa
áhrif á stefnu og stjórn KEA.
Fyrir utan efnisatriði breyting-
anna á aðalfundi KEA á síðasta
ári var einnig mjög aðfinnsluvert
hvernig staðið var að kynningu á
tillögunum fyrir aðalfundinn. Þær
voru vissulega kynntar á deildara-
fundum, en þá sækja mjög fáir. Þá
var breytingatillögunum ekki dreift
meðal fundarmanna, heldur farið
yfir þær á skjávarpa. Tillögurnar
voru ekki aðgengilegar félagsmönn-
um fyrir aðalfund, heldur voru
einungis kynntar fulltrúum á aðal-
fundi með fundargögnum. Flestir
félagsmenn sem ekki voru fulltrúar á
aðalfundi voru því að sjá tillögurnar
í fyrsta skipti á aðalfundinum. Ekki
þótti ástæða til að kynna breytingar
á heimasíðu félagsins eða með öðr-
um hætti reyna að ná til sem flestra
félagsmanna og fá þannig fram um-
ræður um tillögurnar.
Undirritaður var einn fárra sem
talaði fyrir því að breytingarna-
tillögurnar yrðu ekki samþykktar
óbreyttar. Þar skiptu mestu máli
breytingar á tveimur greinum. 16.
grein þar sem kveðið er á um að til
að breyta samþykktum KEA þurfi
að kynna tillögurnar í öllum deild-
um félagsins. Þetta ákvæði gerir
það ómögulegt fyrir einstakan fé-
lagsmann að leggja til breytingar á
samþykktum, nema sá hinn sami sé
annað hvort í stjórn eða varastjórn
KEA, því þeir einir hafa málfrelsi og
tillögurétt á öllum deildarfundum.
Hin breytingin, á 28. grein, sem ég
tel að skipti einnig miklu máli er sú
að nú eru stjórnarmenn kjörnir til
þriggja ára í senn. Eitt ár eru kjörnir
3 stjórnarmenn og 2 hvort ár næstu
tvö ár á eftir. Þetta ákvæði gerir það
að verkum að félagsmenn í KEA geta
aldrei skipt um meirihluta í stjórn.
Það er því alveg sama hvað stjórn-
in gerir af sér eða hversu litlu hún
áorkar í störfum sínum, hún mun
alltaf sitja eftir í meirihluta að af-
loknum aðalfundi KEA!
Báðar þessar breytingar tel ég
hafa verið mikla afturför og til þess
fallnar að minnka lýðræðið í fé-
laginu og takmarka mjög möguleika
félagsmanna KEA til að hafa áhrif
á stefnu og stjórn félagsins. Þau
rök sem voru færð fyrir nauðsyn
breytinganna um að hætta væri á
að félagið yrði fyrir einhvers kon-
ar óvinveittri yfirtöku tel ég ekki
sterk. En þó svo að sú hætta væri
fyrir hendi er mjög auðvelt að gera
ráðstafanir til að fyrirbyggja hana
með breytingum á samþykktum, sem
ekki koma niður á lýðræði í KEA.
Þessar breytingar gera lítið annað en
að færa mjög aukin völd til stjórnar
frá félagsmönnum.
Undirritaður fékk til liðs við sig
félaga í öllum deildum KEA til að
kynna breytingar sem vinda ofan af
þessu og auka aftur möguleika fé-
lagsmanna til að hafa áhrif. Tillagan
verður send til skrifstofu KEA innan
tiltekins tveggja vikna frests fyrir
aðalfund, með ósk um að hún verði
birt á heimasíðu félagsins, þannig að
allir félagsmenn geti kynnt sér hana
vel og vandlega. Það er skylda félaga
í KEA, sérstaklega þeirra sem gefa
kost á sér til að vera aðalfundarfull-
trúar, að veita stjórn félagsins að-
hald. Það geta þeir nú gert með því
að lagfæra helstu annmarka þeirra
breytinga sem voru gerðar á aðal-
fundinum í fyrra, en einnig með því
að kynna sér vel fjárfestingar félags-
ins og afkomu. En það er reyndar
efni í annan pistil.
Höfundur er félagsmaður í KEA
Það er því alveg sama hvað stjórnin
gerir af sér eða hversu litlu hún
áorkar í störfum sínum, hún mun
alltaf sitja eftir í meirihluta að aflokn-
um aðalfundi KEA!
Unnar
Jónsson
AÐSEND GREIN GUÐLAUG J. S. CARLSDÓTTIR
Virðum leikvelli Akureyrarbæjar
Í Ránargötu er lítill leikvöllur með
ágætis leiktækjum. Þar er reyndar
frekar mikið af hundaskít, hunda-
eigendur í nágrenninu mega taka
það til sín og lagfæra, en það
er ekki meginefni þessarar
greinar. Heldur sú staðreynd
að snjó er sturtað inn á leik-
völlinn og eiga börn (og full-
orðnir) stundum í erfiðleikum
með að komast inn á hann
vegna mikilla snjóruðninga
við framhlið hans.
Í kringum nýja leikvöll-
inn í Hafnarstræti, á móti
Laxdalshúsi, var í sumar sett lág tré-
girðing. Hún er nú mölbrotin vegna
snjóruðninga. Snjó hefur í miklum
mæli verið sturtað þar inn á leik-
völlinn.
Við vitum öll að starfsfólk á snjó-
ruðningstækjum á oft í erfiðleikum
með að losna við snjóinn þegar mikið
snjóar t.d. á stuttum tíma.
,,Ekki getum við hent honum upp í
loft“ eins og einn starfsmaður orðaði
það. En hvað sem gert er við
snjóinn; EKKI sturta hon-
um inn á leikvelli bæjarins!!
Virðum leikvellina sem við
sjálf höfum lagt til peninga
í að byggja upp, með útsvar-
inu okkar!! Leikvellirnir eru
notaðir af börnunum okkar,
barnabörnum og gestum,
ALLT árið!!
Það er hægara sagt en
gert að fjarlægja þennan snjó og
tekur langan tíma fyrir svona þéttan
stump að bráðna.
Það er orðið talsvert um
útlendinga hér á veturna sem hafa
t.d. afþreyingu af að ganga um bæ-
inn, sérstaklega innbæinn, miðbæ-
inn og eyrina. Viljum við að þeir hafi
þetta fyrir augunum?
Ég fór nýlega á Atvinnu- og ný-
sköpunarhelgi Akureyrar í Háskól-
anum og sendi hér með kærar þakk-
ir til alls þess góða fólks sem þar
starfaði. Þar þróaðist sú hugmynd
að undirbúa skipulagðar gönguferðir
með leiðsögn fyrir útlendinga um
Akureyrarbæ, allt árið, sérstaklega
á Eyrinni og mér finnst óhugs-
andi ganga með ferðamennina um
Ránargötu og Hafnarstæti innan við
Höfnershús á meðan þessi ósköp eru
á leikvöllunum. Eins og Akureyri er
gullfallegur bær.
Tökum þetta til athugunar og
pössum upp á fallega bæinn okkar,
ekki bara á sumrin, líka á veturna
og líka á leikvöllunum. a
FRÁ RÁNARGÖTU. Tekið í byrjun apríl.
Bak við snjóruðningana leynist leikvöllur.
Hvenær verður þessi snjór farinn?
FRÁ HAFNARSTRÆTI. Tekið í byrjun apríl.
Hvað kostar að lagfæra þetta?
GUÐLAUG J. S.
CARLSDÓTTIR