Fréttablaðið - 23.02.2015, Blaðsíða 40
23. febrúar 2015 MÁNUDAGUR| SPORT | 20SPORT
„Takk elsku Edda mín fyrir að gefa okkur
endalausan hlátur og gleði!...Eddan var algjört æði! “
Vala matt
Miðasala: í síma 563 4000
19. FEB. UPPSELT
20. FEB. örfá sæti laus
01. MAR. örfá sæti laus
11. MAR. laus sæti
13. MAR. UPPSELT
13. MAR. Miðnætursýn.
N
Æ
S
TU
S
Ý
N
IN
G
A
R
hópasala í síma 786 3060 • Miðasala er opin í Gamla bíó
frá 15-18 virka daga og 15-20 sýningardaga
KÖRFUBOLTI Grindavík varð bikar-
meistari kvenna í körfubolta öðru
sinni á laugardaginn þegar liðið
lagði nágranna sína í Keflavík,
68-61, í Laugardalshöllinni. Sigur
þeirra gulu var sanngjarn og rúm-
lega það þrátt fyrir að Keflavík
átti flotta tilraun til endurkomu í
síðasta leikhlutanum.
Grindavík mætti margfalt betur
stemmdara til leiks og var komið
með tíu stiga forystu í hálfleik,
40-30. Sú forysta var orðin 20 stig,
62-42, fyrir síðasta leikhlutann og
sigurinn nánast í höfn.
En Keflvíkingar gefast aldrei
upp og fór eflaust um öfluga, gul-
klædda stuðningsmenn Grindavík-
ur í stúkunni þegar Keflavíkur-
stúlkur minnkuðu muninn í fimm
stig, 66-61, þegar 20 sekúndur
voru eftir. Þá gerði Grindavík það
eina rétta og setti sigurvegarann
Pálínu Gunnlaugsdóttur á lín-
una. Hún hitti úr báðum vítunum
og gekk frá leiknum. Bikarinn til
Grindavíkur í annað sinn.
Grindavík skoraði ekki nema
sex stig í fjórða leikhluta sem það
tapaði, 19-6, en liðið lagði grunn-
inn að sigrinum í öðrum og þriðja
leikhluta þar sem Keflavíkurliðið
gat ekki keypt sér körfu. Þriggja
stiga nýting liðsins í heildina er
eflaust einhvers konar Evrópumet,
en það hitti aðeins úr sex prósent
skota sinna fyrir utan teiginn.
Popp og kók
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari
Grindavíkur, var í Höllinni fjórða
árið í röð. Hann stýrði karlaliði
Grindavíkur í fyrra og árið þar
áður í bikarúrslitum, en varð bik-
armeistari sem þjálfari kvennaliðs
Njarðvíkur árið 2012.
„Þetta var frábær sigur og það
var gaman að sjá hversu grimmar
og einbeittar stelpurnar mættu til
leiks og við höfðum mjög gaman
af þessu,“ sagði Sverrir eftir leik.
„Það voru margar sem lögðu
hönd á plóg og við erum þannig
lið. Þegar við gerum hlutina hver
í sínu horni höfum við verið í tómu
tjóni og tapað. En þegar við gerum
hlutina saman erum við með feyki-
lega gott lið.“
Þegar Sverrir vann með Njarð-
vík fyrir þremur árum var Petr-
únella Skúladóttir í liði Njarð-
víkur og skoraði 18 stig. Hún var
vitskuld með Grindavík á laugar-
daginn og skoraði 17 stig og tók tíu
fráköst. Fyrir þá frammistöðu var
hún kjörin besti leikmaður leiks-
ins.
Sverrir og Petrúnella eru pott-
þétt tvenna, bara eins og popp og
kók, þegar kemur að bikarúrslit-
um. Þau eru eina þjálfara- og leik-
mannstvennan sem hefur orðið
bikarmeistari saman með tveim-
ur mismunandi liðum.
„Við erum himinlifandi,“ sagði
besti leikmaður leiksins við
Fréttablaðið eftir leik. „Ég held að
vilji og frábær vörn hafi verið lyk-
illinn að þessum sigri.“
Hún viðurkennir að liðið hafi
verið orðið aðeins of sigurvisst
í fjórða leikhluta. „Við vorum
kannski orðnar full sigurvissar í
fjórða leikhlutanum. Eðlilega þá
dregur aðeins úr liðinu, en þetta
var orðið óþarflega tæpt.“
Sigur með þriðja liðinu
Pálína Gunnlaugsdóttir undir-
strikaði einnig á laugardaginn
hversu mikill sigurvegari hún er.
Hún vann bikarmeistaratitilinn
með þriðja liðinu á ferlinum; hafði
áður gert það tvívegis með Kefla-
vík og Haukum. Hún er sú þriðja
sem vinnur bikarinn með þremur
félögum.
„Þetta er alltaf jafn skemmtilegt
og ég er ótrúlega þakklát fyrir að
taka þátt í þessu. Að fá að spila
fyrir fullri höll, þvílík mæting hjá
stuðningsmönnum Grindavíkur og
ég er bara mjög þakklát og þakka
kærlega fyrir mig,“ sagði sigurreif
Pálína Gunnlaugsdóttir eftir leik.
tomas@365.is
Pottþétt bikartvenna
Grindavík varð bikarmeistari kvenna með sigri á Kefl avík. Sverrir Þór Sverrisson
og Petrúnella Skúladóttir hafa nú unnið bikarinn saman með tveimur liðum.
GLEÐI Petrúnella Skúladóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir lyfta bikarnum fyrir Grindavík í Höllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRDÍS
BEST Petrúnella Skúladóttir var kjörin besti leikmaðurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRDÍS
FRJÁLSAR „Við vonuðumst eftir betra sæti,“ segir Gunnar Páll Jóakimsson,
þjálfari hlaupadrottningarinnar Anítu Hinriksdóttur, um 800 metra hlaup
hennar á sterku innanhússmóti í Birmingham sem fram fór á laugardaginn.
Aníta hljóp á 2:03,09 mínútum og hafnaði í fimmta sæti.
„Hlaupið þróaðist eins og við vonuðumst eftir en það vantaði léttleika í
hana síðustu 300 metrana,“ segir Gunnar Páll.
„Hugsanlega vorum við ekki að hvíla hana nógu mikið fyrir hlaupið til að ná
þessum frískleika. Ég hef samt engar áhyggjur af þessu gagnvart Prag.“
Næsta verkefni Anítu er bikarkeppnin um næstu helgi en eftir það heldur
hún til Prag í Tékklandi þar sem EM innanhúss fer fram.
„Það safnast saman reynsla í svona hlaupum. Það er öðruvísi og betra að
hlaupa þegar allir keppendurnir í kringum þig eru jafn sterkir eða sterkari.
Þetta er eitthvað sem Aníta má búast við að gerist á EM,“ segir hann.
Stefnan er skýr fyrir Prag: „Við reiknum með að hlaupin í Prag verði á
þessum styrkleika og þar þarf hún einfaldlega að vera framar. Stefnan er að
komast í úrslit.“ - tom
Mikilvæg reynsla fyrir EM í Prag
FIMMTA Aníta Hinriksdóttir vonaðist
eftir betra sæti. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Liverpool vann gríðarlega mikilvægan sigur á Southampton,
2-0, í lokaleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Phillipe Coutinho skoraði eitt af mörkum tímabilsins og Raheem
Sterling bætti við öðru marki liðsins þegar 17 mínútur voru eftir
af leiknum.
Liverpool er búið að vinna fjóra leiki í röð og færist nær
Meistaradeildarsætunum í ensku úrvalsdeildinni. Það fékk
fína hjálp frá Swansea, sem vann Manchester United öðru sinni,
2-1, og West Ham, sem gerði jafntefli við Tottenham á útivelli, 2-2.
Manchester United hangir í fjórða sætinu með 47 stig,
Southampton er stigi á eftir og Liverpool er með 46 stig.
Tottenham er með 44 stig í í sjöunda sætinu. Arsenal er í þriðja
sæti deildarinnar með 48 stig og heldur þessi magnaða fimm
liða barátta um tvö laus sæti í Meistaradeildinni áfram.
Liverpool færist nær
Meistaradeildinni
2
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
E
2
-5
5
F
C
1
3
E
2
-5
4
C
0
1
3
E
2
-5
3
8
4
1
3
E
2
-5
2
4
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K