Fréttablaðið - 23.02.2015, Blaðsíða 8
23. febrúar 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
SAMGÖNGUR Önnur leið var farin
við endurskipulagningu Ferða-
þjónustu fatlaðra en lagt var upp
með á vettvangi velferðarráðs
Reykjavíkur. Þar hafði þjónust-
an og leiðir til úrbóta verið til
umræðu í nokkur ár áður en lagt
var í breytingar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var fyrir síðustu sveit-
arstjórnarkosningar takmörkuð
ánægja innan meirihluta velferð-
arráðs borgarinnar með að fela
Strætó áframhaldandi umsjón
með ferðaþjónustu fatlaðra.
Fundargerðir velferðarráðs
bera með sér að nokkurrar
óánægju hafi gætt með kostnað
við Ferðaþjónustuna, auk þess
sem notendur þjónustunnar höfðu
kvartað yfir þunglamalegri þjón-
ustu. Ferðir þurfti til að mynda
að panta fyrir ákveðinn tíma deg-
inum áður og sveigjanleiki þjón-
ustunnar var lítill.
Horfði bæði hluti fulltrúa vel-
ferðarráðs, sem og hagsmuna-
samtök fatlaðra, til árangurs
sem náðst hafði hjá Ferðaþjón-
ustu blindra. Þar panta notendur
leigubíla þegar þörf er á akstri og
eiga rétt á ákveðnum fjölda ferða
í mánuði hverjum.
Einnig hafði sýnt sig að sú
þjónusta var töluvert ódýrari en
hjá Ferðaþjónustu fatlaðra fyrir
breytinguna í nóvember síðast-
liðnum. Niðurgreiðsla borgarinn-
ar er sögð hafa verið um 45 pró-
sentum hærri á hverja ferð með
Ferðaþjónustu fatlaðra en Ferða-
þjónustu blindra.
Innan velferðarráðsins var þó
einnig haldið á lofti öðrum sjón-
armiðum og þá sér í lagi hjá full-
trúa Vinstri grænna í ráðinu, Þor-
leifi Gunnlaugssyni. Hann talaði
fyrir því að þjónustu við fatlaða
ætti ekki að skilja frá öðrum
almenningssamgöngum.
„Að mati velferðarfulltrúa
Vinstri grænna verður aðeins
þannig unnið gegn samfélagi
aðskilnaðar,“ segir í fundargerð
6. september 2012. Tillögur hans
voru þó jafnharðan felldar.
Á seinni hluta árs 2013, þegar
stefndi í að efnt yrði til útboðs
um aksturinn, bæði til að bæta
þjónustu og draga úr kostnaði hjá
borginni, þá breyttust viðhorf hjá
Strætó, sem fram að þeim tíma
hafði sagt ómögulegt að taka upp
svokallaða samdægursþjónustu.
Þá hafði verkfræðistofan Mann-
vit unnið skýrslu um sveigjan-
legri þjónustu (svokallaða FLEX-
þjónustu) og skipulagsbreytingar
með nýju kerfi sem einnig gæti
náð utan um þjónustu við fatlaða.
Seint á árinu 2013 er málið
komið í hendur verkefnastjórnar
hjá Samtökum sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu (SSH). Innan
SSH talaði Guðrún Ágústa Guð-
mundsdóttir, bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar (sem 2010 til 2011 var
stjórnarformaður Strætó), fyrir
svipuðum hugmyndum og Þor-
leifur Gunnlaugsson hafði hald-
ið á lofti í velferðarráði Reykja-
víkur og vildi láta fresta útboði
þar til farið hefði verið yfir hvort
Strætó gæti sinnt þjónustuborðs-
þætti ferðaþjónustunnar.
Sveitarfélögin vildu öll ná fram
hagræðingu og síðan var ákveð-
ið í framhaldinu að fela Strætó
utanumhald þjónustunnar. Skrif-
að var undir samkomulag þeirra
í maí 2014 og í nóvember var svo
hafinn akstur í nýju kerfi.
Í MAÍ Í FYRRA Stjórn SSH kom saman í ráðhúsinu í Reykjavík til að skrifa undir
samkomulag um sameiginlega Ferðaþjónustu fyrir fatlaða. MYND/SSH
VAGN Á FERÐ Ferðaþjónusta fyrir fatlaða á höfuðborgarsvæðinu er mikið verkefni en samkvæmt því sem framkvæmdastjóri SSH segir eru daglega farnar 17 til 18 hundruð ferðir í
kerfinu. Vandamál nái kannski til fimm prósenta umfangsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fóru aðra leið með Strætó
en velferðarráð hefði kosið
Óánægja með þunglamalega þjónustu og kostnaður varð til þess að velferðarráð Reykjavíkur vildi bjóða út
akstur Ferðaþjónustu fatlaðra í borginni. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sömdu svo við Strætó.
Hæpið er að náist á þeim hálfa mánuði sem eftir er af þeim tíma sem gefinn
var til að lagfæra ferðaþjónustu fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu að sníða
vankantana af kerfinu, hefur fréttastofa RÚV eftir Stefáni
Eiríkssyni, formanni neyðarstjórnar ferðaþjónustunnar. Rætt
var við hann eftir fund Sjálfsbjargar, Öryrkjabandalagsins
og Þroskahjálpar á miðvikudag um ferðaþjónustu Strætó.
Stefán segir alvarlegt atvik sem upp kom í þjónustunni
á þriðjudag endurspegla að enn sé ekki komið gott lag á
þjónustuna. „En það eru allir að leggja sig fram við að koma
þessu í rétt og öruggt horf og vonandi tekst okkur það fyrr
en síðar,“ er eftir Stefáni haft. Þá útilokar hann ekki að
gerðar verði tillögur um einhverjar grundvallarbreytingar.
„Það er bara ekki tímabært að segja til um það.“
Ekki tímabært að ræða breytingar
FRÉTTASKÝRING
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Ferðaþjónusta fatlaðs fólks
MALDÍVEYJAR, AP Yfirvöld á Maldív-
eyjum hafa handtekið Mohamed
Nasheed, fyrrverandi forseta
landsins, vegna ákvörðunar hans
um að hand-
taka hæstarétt-
ardómara árið
2012. Nasheed
er núverandi
leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar og
hafa stuðnings-
menn hans mót-
mælt úti á götum höfuðborgarinn-
ar Male. Mikil pólitísk óvissa ríkir
á eyjunum vegna málsins.
Forsetinn fyrrverandi tapaði
embættinu einmitt vegna þessa
máls en hann sagði af sér eftir
margra mánaða mótmæli. Hann
tapaði síðan kosningum um emb-
ættið árið 2013. - jóe
Fyrrverandi forseti ákærður:
Mikil óvissa á
Maldíveyjum
Egilshöll var rýmd seinnipartinn
í gær eftir að brunakerfið þar fór
í gang. Fljótlega kom þó í ljós að
enginn reykur eða eldur var sjáan-
legur og hvergi hafði kviknað í.
Slökkviliðið var ekki kallað út
vegna þessa. Í samtali við Vísir.is
sagði starfsmaður hússins að lík-
lega hafi börn eða unglingar verið
að fikta í kringum brunaboða.
Reyndist ekki vera eldur:
Egilshöll rýmd
FIKT Talið er líklegt að einhver hafi
verið að fikta í brunaboða.
MENNTUN Háskóli Íslands braut-
skráði á laugardag 480 kandídata.
Kristín Ingólfsdóttir rektor hélt
ávarp við brautskráningarathöfn-
ina þar sem sem hún sagði að það
þyrfti að leggja stóraukna áherslu
á stærðfræðikennslu á öllum
skólastigum Háskóla Íslands. Því
mun háskólinn á næstunni ráðast
í breytingar, meðal annars á námi
stærðfræðikennara. Þá verður
öllum nemendum skólans fært að
styrkja stærðfræðikunnáttu sína
með nýjum hugbúnaði sem nú er
í þróun, þeim að kostnaðarlausu.
Hún sagði stærðfræði vera orðna
undirstöðugrein í vaxandi fjölda
fræðisviða og í atvinnulífi. - vh
Leggja áherslu á stærðfræði:
480 brautskráðir
FRÁ ATHÖFNINNI Kristín Ingólfsdóttir
rektor sagði stærðfræði vera orðna
undirstöðugrein.
LÖGREGLUMÁL Um klukkan hálf
fimm aðfaranótt sunnudags var
bifreið ekið á grindverk í Skeifunni
og ók ökumaður af vettvangi. Þetta
kemur fram í dagbók lögreglu. Við
áreksturinn féll númeraplata bíls-
ins af og tókst lögreglu þannig að
hafa uppi á eigandanum. Umráða-
maður bílsins var áberandi ölv-
aður þegar lögreglu bar að garði
og var hann handtekinn og færður
á lögreglustöð. Hann var vistaður
í fangaklefa þangað til hann yrði í
ástandi til að yfirheyra hann. - vh
Ók á grindverk og stakk af:
Númeraplatan
afhjúpaði hann
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisráðherra
segir það áhyggjuefni ef foreldrum held-
ur áfram að fækka sem bólusetja börn
sín. Hann segir að rætt hafi verið um
að krefjast þess að börn séu bólusett
til þess að þau geti gengið í skóla hér á
landi. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar
2 í gær.
Í vikunni kom fram að á bilinu fimm
til tólf prósent barna hér á landi eru
ekki bólusett. Ráðherrann segir að vel
sé fylgst með þróun mála hérlendis.
„Við höfum áhyggjur af því ef það fer
að slakna á þessu,“ segir Kristján Þór.
Dæmi eru um það, til að mynda í Banda-
ríkjunum, að þess sé krafist að börn
séu bólusett gegn ákveðnum sjúkdóm-
um til þess að þau megi ganga í opin-
bera skóla. Foreldrar þurfa þá oft að
framvísa bólusetningarskírteinum svo
hægt sé að skrá börnin í skóla. Kristján
Þór segir að rætt hafi verið hvort hægt
sé að fara slíka leið á leikskólum hér á
landi ef börnum sem eru bólusett held-
ur áfram að fækka. „Það er ein af þeim
leiðum sem hefur komið upp í umræðu
en á þessu stigi tel ég ekki vera ástæðu
til slíkra inngripa. - lvp
Heilbrigðisráðherra segir það vera áhyggjuefni að færri foreldrar velji að bólusetja börn sín:
Rætt um að krefjast bólusetningar leikskólabarna
ÁHYGGJUR
Kristján Þór telur
ekki ástæðu til
inngripa eins
og að krefjast
bólusetninga, á
þessu stigi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
2
2
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
2
-6
4
C
C
1
3
E
2
-6
3
9
0
1
3
E
2
-6
2
5
4
1
3
E
2
-6
1
1
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K