Fréttablaðið - 23.02.2015, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.02.2015, Blaðsíða 16
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 NÆGUR RAKI „Meðan plönturn- ar eru að spíra þarf að passa að rak- inn sé nægur en ekki of mikill. Nota til dæmis úðabrúsa og úða yfir.” Flestum tegundum er sáð í mars og apríl en það er full ástæða til að fara að huga að sáningu sumarblómanna núna. Stjúpurnar hafa til að mynda lengri spírunartíma en önnur sumarblóm og þá sérstaklega rauðu stjúpurnar,“ segir Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur en við fengum hann til að ráðleggja um allra fyrstu garðverkin. Þótt enn sé febrúar er marga farið að lengja eftir vorinu. HREINLÆTI „Bakkar og ílát sem á að nota verða að vera hrein en í gamalli mold geta leynst sjúkdómar eins og sveppasýkingar. Því ætti að þvo allt sem á að nota vel, til dæm- is með uppþvottalegi, og skola sápuna vel burt.“ SÁÐMOLD OG HENTUG ÍLÁT „Best er að nota sáðmold því pottamold er of næringarrík fyrir ungplöntur. Einnig þarf að velja rétt ílát sem henta þar sem á að koma öllu fyrir.“ BLEYTA MOLDINA MEÐ VOLGU VATNI „Moldin fer svo í bakkana eða ílátin. Ekki fylla þó alveg upp að brún svo hægt verði að vökva án þess að flæði út fyrir. Bleyta svo í moldinni með volgu vatni svo fræin fái ekki sjokk.“ SÁNING „Fræjunum er sáldrað yfir moldina. Það fer eftir stærð þeirra hvort moldarlag fer yfir þau. Ef þau eru pínulítil eins og stjúpufræ- in er nóg að þrýsta þeim létt ofan í mold- ina. Með stærri fræ er hægt að miða við að setja fræið þrisvar sinnum þvermál þess niður, svo mold yfir og vökva. Í því meiri snertingu sem fræið er við jarðveginn því fljótara er það að spíra. Að endingu er gott að setja glært eða hvítt plast yfir. Þá þarf ekki að vökva eins oft.“ HITASTIG OG BIRTA „Hitastig þarf að vera 18-22 gráður meðan plönturnar eru að spíra. Hitastig og birta fara saman og því meiri birta sem er því hærra getur hitastigið verið. Hitinn má þó ekki vera of hár, það getur leitt til þess að plönturnar verði langar og veiklulegar. Meðan plönturnar eru að spíra þarf að passa að rakinn sé nægur en ekki of mikill. Nota til dæmis úðabrúsa og úða yfir.“ LÆGRI HITI OG MEIRI BIRTA „Spírunartími er mjög misjafn eftir tegund- um og eins hafa ytri aðstæður áhrif. Þegar fyrstu spírurnar og kynblöðin koma skal hafa plönturnar á eins björtum stað og hægt er og við 15-18 gráður. Þegar komnir eru tveir þrír blaðkransar eftir kynblöð má fara að dreifa plöntunum í venjulega gróðurmold.“ HJÁLEIÐ „Það er hægt að spara sér eitt skref í ferlinu með því að nota einungis litla potta en ekki sáðbakka. Þá má setja tvo þriðju af venjulegri gróðurmold í pottinn og sáð- mold efst, sá svo fræjum á sáðmoldina og þá vex plantan niður í hinn jarðveginn.“ VENJA PLÖNTURNAR VIÐ ÚTIVISTINA „Þegar plönturnar eru orðnar nógu stálpaðar og farið að hlýna í lofti, þarf að venja þær við í áföngum. Setja þær út í stuttan tíma daglega, ekki í beina sól og taka þær inn yfir nóttina. Ef kalt er í veðri þarf að breiða akríldúk yfir þær.“ VORVERKIN KALLA HEIMILI Þótt enn sé febrúar er marga farið að lengja eftir vorinu. Til að friða óþreyjufulla græna fingur má fara að undirbúa sáningu sumarblómanna. Í GARÐINUM Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur ráð- leggur um allra fyrstu garðverkin. MYND/VILHELM FEBRÚAR ■ Stjúpublóm - (Viola x wittrock- iana) – aðrar en rauðar ■ Drottningarfífill (Zinnia eleg- ans) ■ Ljónsmunnur (Antirrhinum majus) FEBRÚAR-MARS ■ Brúðarauga - (Lobelia erinus) ■ Frúarhattur - (Rudbeckia ful- gida var. speciosa) MARS ■ Apablóm - (Mimulus cupreus) ■ Bláhnoða - (Ageratum hou- stonianum) ■ Daggarbrá - (Leucanthemum paludosum) ■ Garðajárnurt - (Verbena x hy- brid) ■ Hádegisblóm - (Dorotheanthus bellidiformis) ■ Ilmskúfur - (Matthiola incana) ■ Skógarmalva - (Malva sylv- estris) ■ Sólblóm (Helianthus annuus) MARS-APRÍL ■ Aftanroðablóm - (Lavatera trimestris) ■ Dalía - (Dahlia x hortensis) ■ Flauelsblóm - (Tagetes patula) ■ Klæðisblóm - (Tagetes erecta) ■ Morgunfrú - (Calendula offic- inalis) ■ Paradísarblóm - (Schizanthus x wisetonensis) ■ Sólbrá - (Coleostephus multi- caulis) ■ Skjaldflétta - (Tropaeolum majus) SÁNINGARTÍMI SUMARBLÓMA Ólíkum tegundum er sáð á mismunandi tímum. Vilmundur Hansen listaði upp nokkrar tegundir MORGUNFRÚ Morgunfrú þarf að sá í apríl. BLÁHNOÐA Sá þarf bláhnoðu í mars. STJÚPUR Stjúpum þarf að sá í febrúar. Skipholti 29b • S. 551 0770Fylgist með okkur á Allar b uxur á Útsöl unni komna r á 50% afslátt! Yfirhaf nir fyrir vo rið komna r frá Basler! Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 2 2 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 E 2 -5 F D C 1 3 E 2 -5 E A 0 1 3 E 2 -5 D 6 4 1 3 E 2 -5 C 2 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.