Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.03.2015, Blaðsíða 12
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | SAMFÉLAG „Besta forvörnin gegn mansali felst í að opna umræðuna og fræða samfélagið um mála- flokkinn. Þá er einnig mikilvægt að styrkja og styðja við samfélög innflytjenda til að tryggja að ein- staklingar séu ekki misnotaðir í skjóli vanþekkingar á réttindum sínum. Það er vissulega erfitt verk- efni að koma í veg fyrir mansal, en það er ýmislegt hægt að gera til að vinna gegn mansali og ann- arri skipulagðri brotastarfsemi,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðs- stjóri hjá Útlendingastofnun, sem hefur ásamt fleiri starfsmönnum stofnunarinnar síðustu ár sótt sér þekkingu um mansal og kynnt sér reynslu nágrannalandanna. Það hafa starfsmenn stofnunarinnar gert af vaxandi þörf. „Við erum alltaf með mansalsvinkilinn uppi í hælismálum hjá okkur, þá koma upp mansalsmál ótengd hælismál- um hér á landi, við reynum að læra af hverju þeirra,“ segir Þorsteinn og segir fyrst hafa orðið vart við hugsanleg mansalsmál upp úr síð- ustu aldamótum þótt vafalaust hafi það átt sér stað í íslensku samfélagi fyrr. Íslendingar verða nú varir við sambærilega þróun og aðrir Norður landabúar um síðustu alda- mót. Fórnarlömbum, sem leita hing- að frá löndum þaðan sem skipulögð glæpasamtök skipuleggja man- sal, fer fjölgandi. Löndum eins og Nígeríu. Árið 2012 sóttu nítján Níger- íumenn um hæli hér á landi og voru flestir hælisleitenda. Á því ári dvöldu þrjár konur úr þessum hópi í Kristínarhúsi, úrræði fyrir vændiskonur og mansalsfórnar- lömb, sem nú hefur verið lokað. Á síðasta ári sóttu sjö Nígeríumenn um hæli, en þar áður höfðu sárafáir sótt um hæli frá landinu, alls 20 frá árinu 2008. Mikill meirihluti þeirra kvenna sem kom hingað frá Nígeríu voru hugsanleg mansalsfórnarlömb. Lögreglu, félagsmálayfirvöldum og starfsmönnum Útlendingastofnunar reyndist erfitt að ná trausti þeirra. Það er vegna þeirra eiða (juju) sem þær eru látnar sverja áður en þær leggja af stað. Draumar um betra líf Svala Heiðberg er verkefnastýra næturathvarfs fyrir erlendar vænd- iskonur í Istedgade í Kaupmanna- höfn og hefur reynslu af því að ná trausti kvenna í þessari erfiðu stöðu. Í viðtali í helgarblaði Frétta- blaðsins síðastliðna helgi sagði hún að mikill meirihluti þeirra kvenna sem kæmu í athvarfið væru frá Níg- eríu og flestar þeirra fórnarlömb mansals. „Mjög týpísk saga er að þeim sé lofað vinnu í Evrópu. Þær vita í rauninni ekki hvert þær eru að fara en eiga að fara til Evrópu að vinna í hárgreiðslu, sem au pair eða eitt- hvað annað sem hefur verið sagt við þær. Áður en þær leggja af stað eru þær látna sverja juju-eið,“ segir hún. Eiðinn eru þær látnar sverja í því skyni að ef þær standa ekki við sitt þá muni eitthvað koma fyrir einhvern í fjölskyldu þeirra. Konurnar fara burt úr heimahög- unum með drauma um betra líf en enda flestar í vændi. Yfirleitt eru þær sendar fyrst til Spánar eða Ítalíu en þar eru margar vændis- konur fyrir og lítið að fá. Þær eru svo sendar til Norðurlandanna. Yfirleitt er svokölluð maddama yfir þeim sem sér um að senda þær milli landa. „Konurnar skuldbinda sig til þess að greiða upp skuld til þeirra sem sjá um þetta. Upphæðin er yfirleitt 50 þúsund evrur og er sögð vera fyrir ferðinni, vegabréfi, pappírum og öðru. Gangandi gegnum eyðimörkina „Ég hef hitt konur sem hafa borg- að alla skuldina og það getur tekið þær frá tveimur árum og upp í fimm. Ég hef líka hitt konur sem eru að reyna að semja við maddöm- una um að sleppa fyrr. Fjölskyldur þeirra eru þá stundum með í því og það er verið að reyna að díla á milli. Þá kannski getur konan ekki meir og vill losna,“ sagði hún í viðtalinu. „Konurnar eru á valdi madd am- anna og þótt þær séu í öðru landi er fylgst með þeim. Þess vegna reynist oft erfitt að hjálpa þeim. Maddöm- urnar hafa sterk tök á þeim og ef það fréttist að konurnar séu farn- ar af götunni þá er jafnvel ráðist að fjölskyldu þeirra. Þetta er því snúin staða sem þær eru í og þó að dönsk yfirvöld reyni að bjóða þeim aðstoð við að öðlast nýtt líf þá hræðast þær afleiðingarnar fyrir aðra.“ Jörgen Carling hjá Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnuninni í Ósló (PRIO), hefur rannsakað innflutn- ing, smygl og mansal frá Nígeríu til Evrópu. Það gerði hann að frumkvæði dómsmálaráðuneytis og lögreglu vegna aðgerðaáætlunar norskra stjórnvalda gegn mansali. Mikil og skyndileg aukning varð í vændi kvenna frá Nígeríu árið 2004. Síðan þessi aukning varð breyttist sam- setning í vændi í Noregi og nú eru flestir sem starfa í vændi í Noregi frá Nígeríu. Á sama tíma og þessar breytingar urðu sótti sífellt fleira flóttafólk frá Nígeríu um hæli í Noregi. Í skýrslu sinni, Migration, Human Smuggling and Traffick- ing from Nigeria to Europe (2004), tekur Jörgen fram að honum þyki leitt að fáar rannsóknir hafa verið gerðar á lífi venjulegs fólks frá Níg- eríu sem flyst til Evrópu. Hundruð þúsunda Nígeríumanna búi um gjörvalla Evrópu. Helming- ur þeirra í Bretlandi, næststærstur hluti þeirra á Ítalíu. Mikill meiri- hluti Nígeríumanna sé friðsamt fólk sem kemur ekki nálægt glæp- um af nokkru tagi. Megináhersl- an í verkefnum hans hafi verið að skoða fólksflutninga með hliðsjón af glæpum og vændi. Jörgen skýrir ítök skipulagðra glæpasamtaka í mansali. Margir hælisleitendur þurfi í neyð sinni að reiða sig á smyglara til þess að kom- ast til Evrópu. Í Nígeríu bjóði man- salar ungum konum að ferðast til Evrópu. Sumar þeirra vita af því að þær þurfa að starfa við vændi áður en lagt er af stað. Aðrar hafa ekki minnsta grun um það. Áður en lagt er af stað er konan sett í skuld eins og Svala hefur heyrt frá þeim fórn- arlömbum sem hún hefur annast. Það tekur konurnar að jafnaði þrjú ár að greiða upp skuldina við man- salann. Skuldin er innsigluð með trúarathöfn sem hefur mikið vægi. Leið mansalans Jörgen lýsir leið mansalans. Í Níg- eríu eru höfuðstöðvar mansals í Edo-fylki. Frá höfuðborg héraðs- ins, Benin City, liggur straumur fólks í leit að betra lífi til Ítalíu. Önnur stór meginstöð mansals er fylkið Delta. Margir ferðast til Evrópu í gegn- um nokkur lönd og velja þá helst lönd þar sem eftirliti er ábótavant eða reglur frjálslegar. Algengt er að fyrst sé farið frá Benin til Gana, Miðbaugs-Gíneu, eða Tógó og þaðan sé ferðast til Ítalíu, Spánar eða til annarrar evrópskrar borgar. Það gera þeir sem eru með til þess bær skjöl. Aðrir ferðast í gegnum Sahara- eyðimörkina og er smyglað til Evrópu með skipi. Mörg þúsund Nígeríumenn komast ekki frá Norð- ur-Afríku til Evrópu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Neyðin í Nígeríu er margþætt. Til að mynda hafa aðstæður kvenna í Nígeríu verið mjög erfiðar síðustu ár. Boko Haram hefur valdið mikl- um skaða og hræðslu, þá eru átök víðar í landinu, þar er barnaþrælk- un vandi og fátækt mikil. Vantar móttökustöð Líkt og komið hefur fram í umfjöll- un Fréttablaðsins um mansal á Íslandi þá vantar hér á landi úrræði til að vinna gegn mansali. Þorsteinn segir flesta sammála um að hér vanti móttökustöð fyrir hælisleitendur. „Móttökukerfið hjá okkur byggist á frjálsri búsetu, það getur verið óhentugt úrræði þegar fólk þarf vernd. Í innanríkisráðu- neytinu er verið að skoða málefni hælisleitenda sérstaklega í því skyni að finna leiðir til úrbóta og að sögn Ólafar Nordal innanríkis- ráðherra er vinna langt komin með að bæta kerfið er varðar móttöku hælisleitenda. „Það er mikilvægt að um leið og fólk kemur til landsins fari af stað skoðun og greining á aðstæðum þess bæði til að tryggja öryggi fólksins sjálfs og samfélags- ins,“ sagði hún nýverið í viðtali við Fréttablaðið. Úr neyð í Nígeríu til Norðurlanda Til Íslands leitar aukinn fjöldi mansalsfórnarlamba frá helstu upprunalöndum mansals í heimi. Eitt þeirra er Nígería. Þorsteinn Gunnars- son, sviðsstjóri hjá Útlendingastofnun, segir bestu forvörnina gegn mansali felast í því að opna samfélagið betur innflytjendum. Hann segir neyð fólks frá helstu upprunalöndum mansals í heimi mikla og hér skorti úrræði til að taka á móti þeim og veita vernd. MANSAL FRÁ NÍGERÍU Vi ðs ki pt av in ir Vi ni r o g fj öl sk yl da Aðrar vændiskonur Sendill maddömu Ítalía Nígería Maddömur á Ítalíu Maddama í Nígeríu Töfralæknir Tengiliður Fórnar- lamb Svört tákn = Bein tenging við mansal Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is NEYÐ Í NÍGERÍU „Boko Haram hefur valdið miklum skaða og hræðslu, þá eru átök víðar í landinu, þar er barnaþrælkun vandi og fátækt mikil. Þetta fólk leitar sér að betra lífi. Nígería og löndin í kring hafa ætíð skorað hátt sem upprunalönd fórnar- lamba mansals,“segir Þorsteinn Gunnars- son, sviðsstjóri hjá Útlendingastofnun. Í skýrslu Jörgens kortleggur hann mansal frá Nígeríu. Fórnarlambið kemst fyrst í kynni við tengilið sem starfar fyrir mansalshring í gegnum vini eða fjölskyldu. Tengiliðurinn kynnir konuna fyrir maddömu og fær heimsókn frá töfralækni sem lætur hana vinna eið. Þaðan liggur ferðin til Evrópu, oft til Ítalíu eða Spánar og þaðan ferðast konan til Norðurlanda, stundum nokkrum árum seinna. Heimild: Migration, Human Smuggling and Trafficking from Nigeria to Europe (2004). ASKÝRING | 12 MANSAL Á ÍSLANDI 7 8 9 101 2 3 4 5 6 11 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 1 6 -F E 9 8 1 4 1 6 -F D 5 C 1 4 1 6 -F C 2 0 1 4 1 6 -F A E 4 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.